Fréttablaðið - 25.01.2010, Síða 2
2 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR
SAMFÉLAGSMÁL Ætli alþjóðasamfé-
lagið að bregðast við hörmungum
á Haítí með því að ættleiða munað-
arlaus börn úr landi bíða yfir 130
fjölskyldur og einstæðar konur
þess hér á landi að geta ættleitt
börn, segir Hörður Svavarsson,
formaður Íslenskar ættleiðingar.
Félagið hefur sent Rögnu Árna-
dóttur, dóms- og manréttindamála-
málaráðherra, bréf þar sem vakin
er athygli á þessari stöðu. Þar
segir að hugsanlegt sé að eitthvað
af því fólki sem bíði þess að ætt-
leiða börn sé tilbúið til að fá börn
frá Haítí inn í sínar fjölskyldur.
Hörður segist þrátt fyrir þetta
ekki gera sér miklar vonir til þess
að munaðarlaus börn frá Haítí
komi hingað til lands. Ekki sé
formlegt ættleiðingarsamband á
milli landanna, og reynslan sýni að
mikið sé að gera hjá þeim starfs-
mönnum dómsmálaráðuneytisins
sem fari með þennan málaflokk.
„En stundum er stjórnsýslan
öflug, við sáum hvernig hægt var
að bregðast við þegar rústabjörg-
unarsveitin fór út,“ segir Hörður.
Talið er að um 50 þúsund mun-
aðarlaus börn hafi verið á Haítí
áður en jarðskjálftinn lagði höf-
uðborg landsins og nærsveitir að
segja má í rúst.
UNICEF og önnur alþjóðleg
samtök hafa varað þjóðir heims
við hættu á því að nokkurs konar
gullgrafaraæði brjótist út hjá fólki
sem vilji ættleiða börn í kjölfar
hörmunganna á Haítí. Þá er varað
við hættu á mansali með börn frá
landinu.
Hörður segir stjórn Íslenskrar
ættleiðingar vel meðvitaða um þá
hættu, og tekur undir varnaðar-
orðin. Treysta verði stjórnvöldum
hér og annars staðar til að tryggja
hagsmuni barna við ættleiðingar.
Ragna Árnadóttir dómsmála-
ráðherra staðfesti í gær að erindi
Íslenskrar ættleiðingar hefði bor-
ist. Ekki hafi verið tekin afstaða til
þess hvernig því verði svarað.
brjann@frettabladid.is
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Nýr Rauðmagi
OPNUM KL 8.00
Frá mekka fi skanna.........Ólafsvík & Rifi
Glæný Línuýsa og Hrogn
Nýlagaður Plokkfi skur
að hætti Fiskikóngsins
Vilja ættleiða börn
frá Haítí til Íslands
Félagið Íslensk ættleiðing hefur lýst áhuga á ættleiðingu barna frá Haítí til
Íslands í kjölfar náttúruhamfara í landinu í bréfi til dómsmálaráðherra. Taka
undir með samtökum sem óttast mansal á börnum í kjölfar hörmunga.
Í kjölfar flóðbylgjunnar miklu í Asíu annan í jólum 2004 settu alþjóðasam-
tök upp fjölmörg heimili fyrir munaðarlaus börn í þeim löndum sem verst
urðu úti, og rætt er um að bregðast eins við nú eftir jarðskjálftann á Haítí.
Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar, segir reynsluna af
slíkum heimilum misjafna. Dæmi séu um að foreldrar barna komi þeim á
munaðarleysingjahæli til að tryggja þeim fæðu og menntun.
Best sé fyrir munaðarlaus börn að fá nýja fjölskyldu í heimalandinu, en
næst best að fá nýja fjölskyldu utan landsteinanna. Síst sé fyrir börnin að
dvelja á munaðarleysingjaheimilum.
BEST AÐ BÖRNIN FÁI NÝJA FJÖLSKYLDU
ÆTTLEIDD Frönsk kona faðmar stúlku sem hún ættleiddi frá Haítí. Stúlkan var í
hópi 33 barna sem komu frá Haítí til kjörforeldra í Frakklandi á föstudag.
NORDICPHOTOS/AFP
Gerður, er þetta góð uppskera?
„Heldur betur, eins og jafnan þegar
ráðist er á Garðinn þar sem hann er
draugalegastur.“
Til stendur að kvikmynda draugasöguna
Garðinn eftir Gerði Kristnýju Guðjóns-
dóttur.
HAÍTI Manni var bjargað úr rústum hótels í Port-au-
Prince á Haíti á laugardag, ellefu dögum eftir að jarð-
skjálfti lagði borgina í rúst. Nokkrum klukkustundum
áður hafði verið tilkynnt að hætt yrði að leita að fólki
á lífi í rústunum. Nú er talið að að minnsta kosti 150
þúsund manns hafi látið lífið í höfuðborginni einni.
Maðurinn heitir Wismond Exantus, er 24 ára gam-
all og starfaði í verslun á hótelinu. Hann er við góða
heilsu og sagði fréttamönnum að hann hefði haldið lífi
með því að drekka Coca Cola og borða snarl. Hann var
í litlu holrými sem myndaðist í rústunum og gat hreyft
sig aðeins. Fjórir aðrir voru fastir á svipuðum stað að
sögn Exantus, en hann segir fólkið hafa hætt að hreyfa
sig nokkrum dögum áður en honum var bjargað.
Fjölskyldumeðlimir Exantus heyrðu hljóð úr rústum
hótelsins á laugardag. Einn þeirra lét grískan blaða-
mann vita, sem hafði samband við gríska björgunar-
sveit á staðnum. Björgun mannsins tók um tvær og
hálfa klukkustund.
Tveimur var bjargað á lífi úr rústum í borginni á
föstudaginn. 84 ára gömul kona fannst alvarlega slös-
uð og vannærð í rústum heimilis síns. 21 árs gamall
maður fannst einnig og er á spítala. Hann hefur greint
frá því að hann hafi þurft að drekka eigið þvag til þess
að lifa af. - þeb
Ungur maður lifði á gosi og snarli í rústum hótels á Haíti:
Fannst á lífi eftir ellefu daga
BJÖRGUNIN Grískir, franskir og bandarískir björgunarsveitar-
menn unnu að björgun mannsins úr rústunum. Hann brosti
við áhorfendum þegar hann var fluttur á börum inn í sjúkrabíl.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AFGANISTAN Þingkosningum í
Afganistan hefur verið frestað
um fjóra mánuði, fram í sept-
ember.
Peningaleysi og áhyggjur af
öryggismálum eru sagðar ástæð-
ur frestunarinnar. Forsetakosn-
ingarnar í landinu á síðasta ári
voru mikið gagnrýndar vegna
kosningasvika og þrýst hefur
verið á stjórnvöld að endurbætur
séu gerðar á framkvæmd kosn-
inga.
Fjölmenn ráðstefna um málefni
Afganistans verður haldin í Lond-
on í næstu viku. Öryggismál og
umbætur í stjórnkerfinu verða
þar í aðalhlutverki. - þeb
Þingkosningar í september:
Fresta kosning-
um í Afganistan
BANDARÍKIN Osama Bin Laden
segir að hryðjuverkaárásum á
Bandaríkin verði haldið áfram á
meðan landið styðji við Ísrael.
Þetta kemur fram í hljóðupp-
töku sem birtist á fjölmiðlinum
Al-Jazeera í gær, en í upptök-
unni segir að skilaboðin séu frá
Osama til Obama.
Þá sagði Bin Laden Al-Kaída
bera ábyrgð á sprengjutilræði í
Bandaríkjunum á jóladag, þegar
reynt var að sprengja upp flugvél
á leið til Detroit.
Ekki hefur verið staðfest að
það sé Bin Laden sem talar á upp-
tökunni. - þeb
Ný hljóðupptaka birt í gær:
Bin Laden hót-
ar fleiri árásum
STJÓRNMÁL Náist ekki samkomu-
lag við Breta og Hollendinga um
að taka upp viðræður vegna Icesa-
ve í vikunni gengur það tækifæri
mönnum úr greipum. Það er mat
þeirra stjórnmálamanna sem
Fréttablaðið ræddi við. Fari svo,
verði haldið óhikað í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, en undirbúningur
hennar hefur haldið áfram sam-
hliða viðræðum við Breta og Hol-
lendinga.
Málið er á viðkvæmu stigi, svo
viðkvæmu að ekki er talað um við-
ræður á milli manna heldur þreif-
ingar. Þær héldu áfram á laugar-
dag, en eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst voru engir eiginlegir
fundir haldnir á sunndag. Þá er
öllum fregnum af viðræðum hald-
ið í lágmarki og deiluaðilar stíga
varlega til jarðar til að styggja
ekki hver annan.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
á laugardag munu Bretar og Hol-
lendingar ekki sætta sig við annað
en að Íslendingar greiði lágmarks-
tryggingu innstæðureikninga,
20.877 evrur. Þeir líti raunar svo
á að Íslendingar hafi margoft
skuldbundið sig til þess. Þá hafa
þeir lagt á það áherslu að stjórn-
arandstaðan skuldbindi sig einn-
ig samningunum, þeir verði ekki
teknir upp eftir á vegna óánægju
hennar.
Náist samstaða flokkanna hér-
lendis um að greiða lágmarks-
trygginguna gætu viðræður haf-
ist á ný. - kóp
Viðræður um Icesave halda áfram en ekki hefur náðst niðurstaða:
Tími samninga að renna út
MÁLIN RÆDD Forystumenn flokkanna
hafa nokkrum sinnum fundað um
mögulega nýja samninga við Breta og
Hollendinga um Icesave.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fremur rólegt hjá lögreglu
Tilkynnt var um átta þjófnaði á höfuð-
borgarsvæðinu á laugardagskvöld og
aðfaranótt sunnudags. Þar á meðal
var innbrot í Hjallaskóla, þar sem
skjávarpa var stolið. Þá var brotist inn
í þrjá bíla og tvö heimahús.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SLYS Rúmlega þrítugur sjómaður
á Kristrúnu II RE slasaðist alvar-
lega á höfði þegar hann féll í lest
skipsins þegar það var nýlagt frá
bryggju seinnipart dags í gær.
Skipinu var þegar snúið aftur
að bryggju og var maðurinn flutt-
ur meðvitundarlaus frá borði, og
á bráðamóttöku Landspítalans.
Maðurinn var að taka beitu upp
úr lest skipsins þegar slysið varð.
Fallið var um tveir metrar, og
lenti maðurinn illa að sögn skips-
félaga. - bj
Sjómaður alvarlega slasaður:
Féll í lest við
siglingu úr höfn
FRÁ BORÐI Sjúkraflutningamenn hífðu
manninn á börum upp úr lestinni þegar
skipið kom að landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DANMÖRK Lögregla í Danmörku
sleppti fyrir helgina manni sem
grunaður var um morð á tví-
tugri stúlku á nýársnótt. Maður-
inn hafði verið í haldi frá því 2.
janúar.
Stúlkan fannst myrt í þvotta-
húsi í kjallara húss í bænum
Herning. Henni hafði verið
nauðgað. Maðurinn á heima á
hæðinni fyrir ofan kjallarann.
Niðurstöður úr DNA-prófi pöss-
uðu ekki og urðu til þess að mann-
inum var sleppt. Lögregla vinnur
nú að því að safna DNA-sýnum
frá öllum mönnum sem höfðu
aðgang að þvottahúsinu. Þeir eru
milli 30 og 40 talsins. - þeb
Morð í Danmörku:
DNA sýknaði
þann grunaða
ÍSRAEL, AP Ísraelar munu aldrei
gefa eftir hluta Vesturbakkans að
sögn Benjamins Netanyahu, for-
sætisráðherra landsins.
Forsætisráðherrann lýsti þessu
yfir nokkrum klukkustundum
eftir fund með sérstökum friðar-
erindreka Bandaríkjanna, George
Mitchell. Mitchell hefur verið á
svæðinu síðan í vikunni sem leið
til að reyna að glæða friðarvið-
ræður lífi. Mahmoud Abbas, for-
seti Palestínu, hefur sagt yfirlýs-
inguna eyðileggja þær tilraunir.
Abbas fundaði með Mitchell á
föstudag og ítrekaði þar þá kröfu
að allri uppbyggingu Ísraela á
svæðinu verði hætt. - þeb
Forsætisráðherra Ísraels:
Gefa ekki eftir
Vesturbakkann
SPURNING DAGSINS