Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 34
BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar 18 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Það er ekki mikill kraftur í þessum kylfingum. Þeir ganga um túnið í spari- buxum með einkaþræl á hælunum sem ber töskuna fyrir þá. Það kallast kylfuberi og þeir fá greitt fyrir það. Hmmm. Kannski ég ætti að ráða strák fyrir næsta mót. Einhvern sem gæti hlaupið hratt. Farið upp á móti manni. Ég gæti ráðið strák sem kastar sjálfur. Góður kylfuberi gefur kylfingn- um einnig góð ráð á meðan á leiknum stendur. Eins og „mundu að klæðast köfl- óttri skyrtu“? Meðal annars. Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á að sá hluti heilans sem við notum til að taka ákvarðanir verður ekki fullmótaður fyrr en um 25 ára aldur. Þannig að við höfum afsökun fyrir þetta hér. Nema þetta sé meðfætt. Pabbi, ferðu ekki í vinnuna í dag? Nei, ég ætla að taka mér frí þessa vikuna. Af hverju? Ég er í jólafríi. Enginn kenn- ari... engin heimavinna... engin próf! Taka þér frí frá hverju? Mig langar að skila biluðu GPS-tæki. Geturðu gefið mér leið- beiningar um hvernig ég kemst til ykkar? Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns Aðeins 1.900 kr. ÁVAXTABAKKI Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. FERSKT & ÞÆGILEGT Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Skömmu áður en góðærið svokallaða náði hæstu hæðum áskotnaðist mér dálítil fjárhæð þannig að ég sá mér fært að kaupa mér nýjan bíl eða öllu held- ur ekki eins gamlan og þann síðasta sem ég hafði átt. Þetta var ekki há fjárhæð, kannski ein mánaðarlaun mín á þess- um tíma. Það sem var nýtt var að ég var aflögufær um hana alla í einu til annars en brýnustu nauðsynja. AFTUR á móti gekk erfiðlega að koma bílasölum í skilning um að þetta væri peningurinn sem ég ætlaði að eyða í bíl. Allir byrjuðu þeir á að spyrja mig um greiðslugetu og ekki laust við að þeir móðguðust eilítið þegar ég sagði þeim að hún kæmi þeim ekkert við, en getan væri þó talsvert meiri en áhuginn. Flest- ir spurðu þeir mig um eftirstöðvarnar og hvernig ég hygðist dreifa þeim. Þeim gekk ámóta erfiðlega að skilja að ég kærði mig ekki um neinar eftirstöðvar. Maður sem gat slett fram meðalmánaðar- launum sínum sem útborg- un í bíl gat nefnilega ekið burt á bíl sem kostaði ein til tvenn árslaun hans. Það, að ég hefði ekki áhuga á að kaupa eins dýran bíl og ég gat mögulega komist upp með, heldur eins góðan og ég gat fengið skuldlausan í skiptum fyrir þessa örfáu hundraðþúsundkalla sem ég átti í handraðanum þá stundina, virtist jaðra við glæp gegn hagkerfinu. TÍMI er peningar. Við öflum tekna með því hvernig við verjum tíma okkar. Í hvert sinn sem við eyðum þúsundkalli erum við því í raun ekki að eyða þúsundkallinum heldur þeim hluta ævi okkar sem við vörð- um í að afla hans. Þegar tími er peningar segir það sig nefnilega sjálft að peningar eru tími. Þegar við veltum því fyrir okkur hvort eitthvað sé peninganna virði væri því skynsamlegra að velta því fyrir sér hvort það sé dagsins, vikunnar, mánaðar- ins eða jafnvel áranna virði. Hver stórs hluta ævinnar er það virði að aka um á einum bíl frekar en öðrum? MÉR er í mikilli nöp við orðið greiðslu- geta og hve sjálfsagt og einboðið það þykir að miða allt við hana. Þannig er okkur nefnilega talin trú um að ekkert sé eðlilegra en að greiða eins mikið og maður getur. Ég legg því til – í ljósi þess að peningar eru tími – að í staðinn tökum við upp hugtakið „greiðslunenna“. Sjálf- ur nenni ég ekki að verja mikið meira en einum mánuði ævi minnar í að vera frek- ar á þokkalegum bíl en engum. Sá bíll hefur reyndar ekki enn verið framleiddur sem er virði mikið stærri hluta lífs míns. Greiðslunenna

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.