Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 12
12 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Gólfþjónustan er með sérlausnir í smíði borða fyrir fyrirtæki og heimili. Við smíðum borð algjörlega eftir þínu máli svo sem borðstofuborð, sófaborð og fundarborð. SÉRSMÍÐI ÚR PARKETI info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 Járnlafðin á einhverju sinni að hafa sagt af sinni alkunnri góðmennsku, að hver sá maður sem sé að nálgast þrítugsaldur og fari til vinnu sinnar í almenn- ingsvagni – en ekki í einhverri tryllikerru sem kostar morð fjár – sé í hennar augum „misheppn- aður“. Á Íslandi, þar sem stjórn- völd hafa nú áratugum saman reynt með góðum árangri að venja fólk af þeim ósið að nota almenningsvagna, hlýtur viðmið- unin að sjálfsögðu að vera með öðrum hætti, og í þá átt gengur þróunin sennilega líka annars staðar. Um þetta hafði ég nokkurt tóm til að hugsa nýlega þegar ég flaug frá París til Keflavíkur. Samkvæmt gamalli reynslu tók ég þann kostinn að koma tíman- lega á flugvöllinn, og reyndist það skynsamlegt. Fyrsta biðröð- in var þegar löng og mjakaðist hægt áfram, enda skoðaði sá sem var við innritunina allan hand- farangur gaumgæfilega, hann spurði um innihaldið, hvort menn hefðu þetta eða hitt sem hann þuldi upp með vélrænni röddu, og vigtaði síðan handtöskuna, því nú var komið upp stórt skilti þar sem tekið var fram að sá far- angur mætti ekki vera yfir tíu kíló. Ef taskan reyndist þyngri rak hann menn stundum til taka eitthvað úr henni. Mér hætti að lítast á blikuna, því ég var með sitthvað sem ég vildi ekki sleppa úr augsýn og það seig nokkuð í. Þegar til kastanna kom greip ég því til gamals ráðs, sem gott er að þekkja, ég spurði áhyggjusam- lega um eitthvert lítilræði: mætti ég örugglega hafa það meðferðis? Afgreiðslumaðurinn velti vöng- um um stund, greinilega dauð- hræddur við að þurfa að gefa eitt- hvert ákveðið svar, og sagði svo með semingi „já, sennilega“, eins og ég bjóst við. En fyrir bragð- ið gleymdi hann að vigta tösk- una sem var allavega vel yfir hámarksþyngd. En svo tók ekki betra við. Fyrir framan „vopnaleitina“ var önnur biðröð, sem var lengri en ég hafði nokkru sinni áður séð, og hún hreyfðist varla. Einn klukku- tími leið, ég var loks kominn svo nálægt hliðinu að ég gat lesið skilti sem á var letrað allstór- um stöfum að í biðsalnum fyrir innan „vopnaleitina“ væri ekkert salerni að finna, en þá heyrðust allt í einu hróp og formælingar á annarlegu tungumáli. Eftir það stöðvaðist röðin góða stund. Ég innti eftir því hvað væri á seyði og fékk þau svör að einhverj- ir sem voru líklega að missa af flugvél hefðu reynt að troða sér áfram og þá hefði konan sem stjórnaði „vopnaleitinni“ – en það var ekki nema ein gegnumlýs- ingavél og eitt hlið fyrir farþega í margar flugvélar – ákveðið að stöðva allt saman þangað til lög- reglan væri komin á vettvang. Svo birtust tveir stæðilegir lag- anna verðir með alvæpni og þá fór röðin aftur af stað, jafnhægt og áður. En menn urðu sífellt óró- legri. Eftir rúmlega klukkutíma og vel það, var ég loksins kom- inn að leitarvélinni og hliðinu, þar sem geðstirðir verðir fyrir- skipuðu ungum konum jafnt sem öldruðum að draga af sér belti og skó. Sumar þeirra mótmæltu all- hneykslaðar, og ein sagði: „Var það eitthvað fleira fyrir yður?“ En þeim var ekki sýnd nein misk- unn. Þrátt fyrir allt þetta klingdi rafeindabjallan öðru hverju og hlupu þá verðir til í óðagoti og með krumlurnar á lofti. Mér tókst að komast klakk- laust gegnum alla þessa leit, og var þá loksins kominn inn í þenn- an salernislausa biðsal, sem var troðfullur af farþegum á leið- inni hingað og þangað um alla heimsbyggðina, því miklar trufl- anir virtust vera á flugi þennan dag. Og þar fékk ég umsvifalaust þau tíðindi án frekari skýringa að fluginu til Keflavíkur myndi seinka um þrjár klukkustundir. En ég var ekki einn í þeirri stöðu og ekki verst settur, því einhverri flugvél til Madrid hafði seink- að um sólarhring; hún átti að vísu að fara að leggja af stað, en Spánverjarnir sungu ámátlega. Mér tókst með naumindum að finna sæti þar sem ég gat hreiðr- að um mig, og ég velti því fyrir mér hvers konar hryðjuverka- starfsemi yfirvöld væru farin að óttast á salernum, fyrst þau væru hvergi til staðar í þessum þéttsetna biðsal, þar sem enginn gat vitað hvenær hann slyppi úr eftir að hann var einu sinni kom- inn inn. Þegar ég var sestur fór ég að fylgjast með öðrum farþegum, og heyrði þá á tal tveggja aldraðra kvenna sem voru að setja aftur á sig beltin með handbragði sem hefði gefið í skyn þetta og hitt við aðrar kringumstæður. „Fyrir fáum árum hefði enginn látið bjóða sér þetta,“ sagði önnur. Svar hinnar heyrði ég ekki, en nú var ég ekki lengur í neinum vafa um hið rökrétta samhengi: með þessu móti var sem sé verið að refsa mönnum fyrir að vera svo misheppnaðir að hafa ekki einka- þotu til að skutlast á milli landa. Misheppnun Á flugvellinum EINAR MÁR JÓNSSON Í DAG | UMRÆÐAN Ögmundur Jónasson skrifar um efnahagsmál Niðurskurðurinn í ríkisút-gjöldum er farinn að segja til sín. Ýmsir staðhæfa að við séum að fara í hundana. Að Ísland muni einangrast ef við förum ekki í einu og öllu að vilja Breta og Hollendinga. En van- metum ekki stöðu okkar. Kapítalisminn er ágeng- ari en margir halda; túristinn frá München ætlar til Íslands í sumar hvað sem tautar og raular; Ikea ætlar að selja Jóni og Gunnu á Íslandi stól og borð – fiskkaupmaðurinn í Grimsby ætlar að koma íslenskum fiski á veitingahúsaborð í London. Hann ætlar ekki að einangra Ísland. Vanmetum ekki heldur pólitíkina. Hún er okkur ekki að öllu leyti mótdræg. Gordon Brown þarf að sýna kjósendum sínum í tíma fyrir vorkosninguna í Bretlandi að hann kunni að laða fram lausnir. Hollenska ríkisstjórnin þarf nú að hlusta á kjós- endur spyrja hvað Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eigi við með því að segja að Ísland geti virkjað sig út úr vandanum. Er verið að tala um Gullfoss? Eða Geysi? Landmannalaugar? Er þetta kannski ekki milliríkjadeila? Er þetta barátta á milli málm- bræðslunnar annars vegar og fossanna og hvera- svæðanna hins vegar? Eða á milli fólks og fjár- magns, einsog skilja má á Alain Liebitz, evrópska þingmanninum sem tók þátt í smíði tilskipunar um tryggingarsjóði innstæðueigenda? Hann segir að við séum að misskilja sitthvað í þeirri smíði. Bret- ar og Hollendingar misskilji hins vegar ekki neitt. Þeir séu einfaldlega að nýta sér vald sitt. Þeir kunni á gikkinn frá gamalli tíð. Allt þetta er tal sem Evrópa skilur. Ísland mun rísa, mörg teikn eru á lofti um efna- hagsbata. Margt gengur okkur í haginn. Ef þver- pólitísk samstaða myndast um Icesave vænkast enn okkar hagur! Þá skapast forsendur til að ná betri niðurstöðu fyrir Ísland. Það væru góð tíðindi. Það er ekki nóg að fresta skuldadögum, það munar um hverja krónu sem við náum lántökum okkar niður. Nú er að tala kjarkinn upp. Og má biðja um aðeins minni úrtölur! Það myndi hjálpa. Höfundur er alþingismaður. Aðeins minni úrtölur ÖGMUNDUR JÓNASSON Þ að er áhyggjuefni að Ísland er að einangrast frá alþjóða- samfélaginu og ímynd þjóðarinnar hefur veikst á alþjóðavettvangi. Það ríkir eðlilega reiði í garð ýmissa einstaklinga og hálfgert upplausnarástand í efnahags- og stjórnmálum. Á sama tíma eigum við afburðafólk á fjölmörgum sviðum svo sem í íþróttum og menningu, vísindum og margvíslegum atvinnurekstri. Við mættum vekja meiri athygli á því. Fjölmiðlar eru að veikjast bæði fjárhagslega og faglega og starfs- fólki fækkar. Þeir taka oft illa grundaða afstöðu með og á móti ákveðnum málefnum. Nýlega tengdi RÚV núverandi og fyrrver- andi þingmenn, við óeðlileg fasteignaviðskipti. Fréttin átti ekki við rök að styðjast og baðst fréttastofan afsökunar. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn gagnrýndi í útvarpsþætti um helgina hlut fjöl- miðla í mótmælunum á Austurvelli. Fjölmiðar eru í efnahagslegri og eignarhaldslegri kreppu, lokaðir af í eigin þjóðfélagsumræðu og það þarf orðið að fylgjast með erlendum fjölmiðlum til að fá góðar upplýsinga um það sem er að gerast á alþjóðavettvangi. Fyrirtæki eru mörg í miklum rekstrarerfiðleikum. Þau njóta minna trausts í alþjóðaviðskiptum og eiga erfitt með eðlileg við- skipti við erlenda aðila. Atvinnulífið er smátt og smátt að einangrast. Aukin skattheimta og fjandsamlegt viðhorf ýmissa vinstri afla til reksturs fyrirtækja gæti dregi lífið úr þeim fyrirtækjum sem enn ganga sæmilega og hægt á stofnun nýrra. Við sölu margra fyrir- tækja í eigu fjármálafyrirtækja og ríkisins á eftir að koma í ljós að verðmæti þeirra er minna en gert var ráð fyrir. Forystumenn í stjórnmálum eru ekki að leiða þjóðina inn á rétta braut. Alþingismenn eru lokaðir í eigin hugarheimi Icesave og van- búnir til að takast á við það verkefni og önnur sem þjóðin hefur falið þeim. Það vakti furðu margra þegar utanríkisráðherra sagði í fjölmiðlum að hann þyrfti ekki að vera töskuberi forseta Íslands á ferðalagi til Indlands. Þetta átti áreiðanlega að vera fyndið og hefði hugsanlega verið það á málfundi í menntaskóla. Það eykur aftur á móti ekki álit útlendinga að heyra svona yfirlýsingar. Líklega hefur staða og virðing Alþingis og stjórnvalda aldrei verið jafn veik í sögu lýðveldisins. Íslendingar búa við alveg einstaklega góðar aðstæður hvað varðar menntun, náttúruauðlindir og almenn lífsgæði. Við eigum ekki að sætta okkur við fjárhagslega, stjórnmálalega og alþjóðlega einangr- un næstu árin. En það þarf mikið til að breyta þessu. Við höfum kosið yfir okkur núverandi alþingismenn og ríkisstjórn og ekki var hægt að hrópa „húrra“ yfir fyrrverandi ríkisstjórn. Aðalatriðið er þó að láta ekki bugast. Berjumst áfram og breytum þessu. Er ekki kominn tími á nýja byltingu, sem byggir ekki á búsáhöldum og hávaða heldur hugviti og þekkingu, nýjum stjórnarháttum og gömlum góðum gildum? Hinn þögli meirihluti þjóðarinnar er að bíða eftir einhverju, en hvað ætli hann þurfi að bíða lengi? Þjóðin má ekki gefast upp og greiða atkvæði sitt með því að „ganga“ úr landi og finna sér annan vettvang erlendis. En það er veruleg hætta á atgervisflótta ef þjóðinni verður áfram boðin naglasúpa úr pottum búsáhaldabyltingarinnar? Íslenska þjóðin á betra skilið! Íslenska þjóðin á betra skilið: Einangrun og stjórnleysi ÞORKELL SIGURLAUGSSON SKRIFAR Traustsyfirlýsing Hanna Birna borgarstjóri var ánægð eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hún mátti líka vera það, rúmlega 91prósent studdi hana og þar af 84 prósent í fyrsta sætið. Oft er sagt að allir komi ánægðir út próf- kjörum, í það minnsta eru yfirlýsingar þeirra þannig. Hanna Birna leit til að mynda á prófkjörið sem stuðningsyfirlýsingu við borgar- stjórnarflokkinn. Lítum aðeins nánar á það. Á laugardag bauðst 19.715 Reykvíkingum að velja næsta borgarstjórn- arflokk Sjálfstæðisflokksins. Um 37 prósent þeirra, eða 6.847, ákváðu að kjósa. Sumir myndu lýsa því öðru- vísi en að um yfirlýsingu um stuðning væri að ræða. Ábyrgðin Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, sagði í fréttum í gær að hans helsta hlutverk – og það sem hann þáði 3 milljónir í laun á mánuði fyrir – sem forstjóri hafi verið að tryggja að í kringum hann væri gott teymi fólks. Þá vitum við það. Þór var ígildi ráðningarstofu. Klárir leikskólakrakkar Sveinn Andri Sveinsson lögmaður fer mikinn í pistli á Pressunni. Hann er ósáttur við erindi Borgarahreyf- ingarinnar til lagadeildar og segir það svo „ævintýralega heimskulegt að ósofinn leikskólakrakki með hor í nös og króníska eyrnabólgu hefði ekki getað ropað þessu út úr sér í sand- kassanum“. Hér er ákveðin hugsana- villa á ferð, nema Sveinn Andri þekki marga leikskólakrakka sem geta ropað öðrum erind- um út úr sér. Má jafnvel segja röksemdafærslu lögmannsins þannig að ósofinn leikskóla- krakki með hor í nös og króníska eyrnabólgu hefði einmitt getað ropað þessu út úr sér í sandkassanum. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.