Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 21
FASTEIGNIR.IS
25. JANÚAR 20104. TBL.
Fasteignamarkaðurinn er með
á skrá 435,8 fermetra einbýl-
ishús á tveimur hæðum við
Hlíðarás 12 í Hafnarfirði. Þar af
er um það bil 90 fermetra rými,
sem er óuppfyllt og óinnrétt-
að.
K omið er inn í flísalagða for-stofu. Inn af henni er flísa-lagt baðherbergi með glugga
og stórum sturtuklefa. Stofur eru
parket- og flísalagðar, samliggjandi
og með útsýni yfir borgina til norð-
urs til sjávar. Stofur eru stórar og
er lofthæðin 3,7 metrar. Eldhús er
stórt, flísalagt og með innréttingum
úr svartbæsaðri eik. Stór hvít
sprautulökkuð eyja er í eldhúsinu
miðju, með innfelldum vaski og
tveimur uppþvottavélum. Útgengt
er úr eldhúsi á svalir til austurs.
Húsbóndaherbergi er rúmgott og
parketlagt.
Gengið er um parketlagðan
steyptan stiga með glerveggjum
og viðarhandriði á neðri hæðinn-
ni. Komið er inn í parketlagt hol.
Stór sjónvarpsstofa er á neðri hæð
þaðan sem útgengt er á lóð. Barna-
herbergi eru þrjú og öll parketlögð.
Hjónaherbergi er rúmgott, park-
etlagt og með útgengi á hellulagða
verönd. Inn af hjónaherbergi er
fataherbergi og innangengt í rúm-
gott, flísalagt baðherbergi. Í bað-
herbergi eru meðal annars skáp-
ar sem einnig eru opnanlegir úr
þvottaherbergi. Þvottaherbergi er
rúmgott, flísalagt og með innrétt-
ingum í vinnuhæð. Geymsla er stór.
Óuppfyllt 90 fermetra rými þar sem
gert er ráð fyrir til dæmis tækja-
geymslu eða tómstundaherbergi.
Instabus-hússtjórnarkerfi er í hús-
inu. Hiti er í öllu gólfinu og sjálf-
virk stilling fyrir hvert rými. Húsið
er ekki fullfrágengið að utan, eftir
er að múra og mála. Baklóð húss-
ins er frágengin en framlóð á eftir
að klára. Þó er búið að steypa vegg
og gólf um það bil 90 fermetra ver-
andar á framlóðinni.
Uppgert einbýlishús
Baklóð hússins er frágengin en framlóð
á eftir að klára. MYND/ÚR EINKASAFNI
Bogi
Pétursson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Eignamiðlun Suðurnesja, Hafnargötu 91, Reykjanesbæ, Sími 420-4050 – 894-2252