Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 42
26 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR
Enska bikarkeppnin:
Stoke-Arsenal 3-1
1-0 Ricardo Fuller (2.), 1-1 Denilson (42.), 2-1
Ricardo Fuller (78.), 3-1 Dean Whitehead (86.)
Scunthorpe-Man. City 2-4
0-1 Martin Petrov (3.), 1-1 Paul Hayes (29.), 1-2
Nedum Onuoha (45.), 1-3 Sylvinho (57.), 2-3
Dedryck Boyata, sjm (69.), 2-4 Robinho (84.),
Preston-Chelsea 0-2
0-1 Nicolas Anelka (37.), 0-2 Daniel Sturridge
(47.)
Reading-Burnley 1-0
1-0 Gylfi Þór Sigurðsson (87.).
Tottenham-Leeds United 2-2
1-0 Peter Crouch (42.), 1-1 Jermaine Beckford
(52.), 2-1 Roman Pavlyuchenko (75.), 2-2 Jerma-
ine Beckford, víti (90.).
Accrington Stanley-Fulham 1-2
0-1 Erik Nevland (21.), 1-1 Darren Kempton (42.),
1-2 Damien Duff (59.)
Aston Villa-Brighton 3-2
1-0 Nathan Delfouneso (5.), 1-1 Tommy Elphick
(41.), 2-1 Ashley Young (48.), 3-1 Fabian Delph
(63.), 3-2 Nicky Forster (90.)
Bolton-Sheff. Utd 2-0
1-0 Grétar Rafn Steinsson (48.), 2-0 Johan
Elmander (84.)
Cardiff-Leicester 3-2
1-0 Jay Bothroyd (17.), 1-1 Michael Morrison
(34.), 1-2 Dany N´Guessan (39.), 2-2 Peter Whitt-
ingham (71.), 3-2 Chris Burke (90.).
Derby-Doncaster 1-0
1-0 James McEveley (88.)
Everton-Birmingham 1-2
0-1 Christian Benitez (7.), 0-2 Barry Ferguson
(40.), 1-2 Leon Osman (56.)
Notts County-Wigan 2-2
1-0 Lee Hughes (26.), 2-0 Ben Davies (41.), 2-1
Jason Scotland (52.), 2-2 Ben watson (83.)
Portsmouth-Sunderland 2-1
0-1 Darren Bent (15.), 1-1 John Utaka (42.), 2-1
John Utaka (57.)
Southampton-Ipswich 2-1
1-0 Wayne Thomas (31.), 2-0 Michail Antonio
(74.), 2-1 Pablo Counago (90.).
WBA-Newcastle 4-2
1-0 Jonas Olsson (17.), 2-0 Graham Dorrans,
víti (31.), 2-1 Andrew Carroll (62.), 3-1 Graham
Dorrans, víti (72.), 4-1 Jerome Thomas (76.), 4-2
Andrew Carroll (90.).
Wolves-Crystal Palace 1-2
0-1 Alan Lee (3.), 1-1 David Jones (37.), 1-2
Darren Ambrose (49.)
Enska úrvalsdeildin:
Man. Utd-Hull 4-0
1-0 Wayne Rooney (8.), 2-0 Wayne Rooney (82.),
3-0 W. Rooney (86.), 4-0 Wayne Rooney (90.).
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Wayne Rooney var hreint
magnaður á laugardag þegar
Manchester United vann öruggan
4-0 sigur á Hull. Hann skoraði öll
fjögur mörk leiksins og skaut þar
með Englandsmeisturunum aftur á
topp ensku úrvalsdeildarinnar en
Arsenal og Chelsea eru þó skammt
undan og eiga leiki inni.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
skora fjögur mörk í alvöru mót-
sleik. Ég get ekki annað en bros-
að. Allt liðið á þó hrós skilið því
það lék virkilega vel og menn eru
að stíga upp. Við skorum nú fleiri
mörk en við gerðum á síðasta tíma-
bili,“ sagði Rooney eftir leik. Hann
er nú markahæstur í deildinni með
19 mörk en á sama tíma í fyrra
hafði hann skorað 9 mörk.
Mest hefur Rooney skorað 23
mörk á einu tímabili og stefnir því
allt í að hann bæti það persónulega
met. „Þegar Cristiano Ronaldo fór
vissi ég að ég þyrfti að skora fleiri
mörk og það hefur tekist. Ég hef
engar áhyggjur af aukinni pressu
á mér því það hafa verið gerðar
miklar kröfur alveg síðan ég skrif-
aði undir hérna.“
Fabio Capello, landsliðsþjálfari
Englands, hlýtur að gleðjast yfir
því formi sem Rooney er í enda er
heimsmeistaramót fram undan í
sumar. Það er þó ólíklegt að Roon-
ey fái mikla hvíld fram að því móti
ef mið er tekið af mikilvægi hans
fyrir Manchester United. „Mér
finnst ekkert skemmtilegra en
að spila leiki og alltaf þegar ég er
beðinn um að spila þá geri ég það.
Reyndar vil ég líka spila þegar
Ferguson segist ætla að hvíla mig
en við verðum að sýna skynsemi,“
sagði Rooney.
Hann fékk mikið hrós frá Phil
Brown, knattspyrnustjóra Hull.
„Rooney gerði svo sannarlega
gæfumuninn í þessum leik. Hann
er klárlega einn allra besti sókn-
armaður í heiminum í dag,“ sagði
Brown.
Akkilesarhæll Englandsmeistar-
ana í vetur hefur verið varnarleik-
urinn þar sem mikið hefur verið
um skakkaföll en Rio Ferdinand er
kominn af meiðslalistanum og lék
gegn Hull. Um næstu helgi verð-
ur heldur betur risaslagur þegar
United heimsækir Arsenal. - egm
Englandsmeistararnir í Manchester United slátruðu Hull í eina leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni:
Wayne Rooney héldu engin bönd gegn Hull
ALDREI BETRI Wayne Rooney hefur átt frábært tímabil með Manchester United.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Hinn ungi Gylfi Þór Sig-
urðsson er heldur betur sjóðheit-
ur þessa dagana. Hann skoraði
laglegt sigurmark fyrir Reading
gegn Burnley í bikarnum á laug-
ardag. Markið kom seint í leiknum
og tryggði Reading sæti í næstu
umferð keppninnar.
„Það var gaman að vinna þenn-
an leik, það kom seint en það er
bara betra. Völlurinn okkar er
ekki upp á sitt besta núna og það
var ekki mikið um flottan fótbolta.
Þetta var opinn leikur og gat dottið
báðum megin. Það var algjör snilld
að klára þetta í lokin,“ sagði Gylfi,
þreyttur en glaður, við Fréttablað-
ið.
Gylfi fékk mikið hrós frá knatt-
spyrnustjóra Reading, Brian
McDermott. „Hann var búinn að fá
tvö önnur færi áður en hann skor-
aði. Þessi afgreiðsla hjá honum
var fyrsta flokks. Þetta er það
sem hann getur strákurinn,” sagði
McDermott en Gylfi hefur slegið
í gegn á sínu fyrsta tímabili með
aðalliði Reading.
„Við höfum verið að bíða eftir
því að hann væri klár í aðalliðið en
hann hefur verið hjá okkur nánast
síðan hann var 13 ára. Hann er að
stækka og hefur mikla og sterka
nærveru, sérstaklega eftir að hann
skoraði gegn Liverpool. Hann er
þrátt fyrir það mjög jarðbundinn
strákur.”
Fyrir stuttu tryggði Gylfi fram-
lengingu gegn Liverpool þegar
hann skoraði ískaldur úr víta-
spyrnu í uppbótartíma. Reading
tryggði sér síðan sigur í framleng-
ingu. „Sjálfstraustið er frekar hátt
eins og er. Það gaf manni aukinn
kraft að ná að vinna Liverpool og
það á Anfield,“ sagði Gylfi.
„Ég hef alltaf verið duglegur
að reyna að skora. Ég er sókn-
ar-miðjumaður og var framherji
þegar ég var yngri. Maður reynir
að skora eins mörg mörk og maður
getur.“
Hann var tæpur fyrir leikinn á
laugardag vegna meiðsla en gat
spilað og fór á kostum. „Ég missti
af leik gegn Nottingham Forest í
síðustu viku þar sem ég meidd-
ist aðeins gegn Liverpool. Þetta
er orðið skárra núna og ég fann
ekkert fyrir þessu í leiknum gegn
Burnley, bara aðeins eftir hann.“
Gylfi hefur spilað miklu meira
á tímabilinu en hann bjóst sjálf-
ur við. „Ég var lánaður í fyrra til
Shrewsbury og svo til Crewe. Ég
vissi ekki hversu mikið ég fengi að
spila, það var nýr þjálfari í byrjun
tímabils. Það var því erfitt að setja
sér einhver markmið því maður
vissi ekki hve mikið maður fengi
að spila. Þetta hefur verið fram-
ar öllum væntingum,“ sagði Gylfi
sem segir það hafa gert sér gott að
vera lánaður í neðri deildir.
„Sérstaklega þegar ég fór til
Crewe. Ég var aðeins lengur þar
og fékk að kynnast tilfinningunni
að spila í hverri viku. Ég græddi
mikið á því og það var gaman að
vinna með Guðjóni Þórðarsyni þar,
hann er mjög góður þjálfari. Það
skilaði mér miklu.“
Gylfi hefur vakið mikla athygli
og verið orðaður við úrvalsdeildar-
lið. „Ég hef heyrt einhvern orðróm
en ég er ekkert að spá í honum. Ég
er nýkominn í liðið hér og búinn að
standa mig ágætlega. Ég ætla að
klára tímabilið hér en maður veit
aldrei hvað gerist,“ sagði Gylfi en
þrátt fyrir bikarævintýri Reading
hefur liðinu ekki gengið nægilega
vel í ensku 1. deildinni og er sem
stendur í fallsæti.
„Þetta lítur ekki nægilega vel út
í augnablikinu. Við eigum erfiðan
útileik á þriðjudag gegn Sheffield
United en svo koma leikir gegn
liðum sem eru í neðri helmingnum.
Við verðum að ná góðum árangri
í þeim leikjum ef við ætlum ekki
að vera í einhverju basli í lokin,“
sagði Gylfi. elvargeir@frettabladid.is
Sjálfstraustið er mjög gott hjá mér
Gylfi Þór Sigurðsson heldur áfram að vekja athygli á Englandi. Hann skaut Reading áfram í bikarnum um
helgina þegar liðið lagði úrvalsdeildarlið Burnley. Gylfi hefur farið á kostum í síðustu leikjum Reading.
VEL KLÁRAÐ Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Reading gegn Burnley á laugardaginn þegar hann skoraði laglegt sigurmark.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Breska blaðið The
Mirror greindi frá því í gær að
Eiður Smári Guðjohnsen hafi
hafnað því að ganga til liðs við
Liverpool og sé á leið í West Ham.
Sagt er að nánast sé frágengið að
Eiður verði lánaður út tímabilið
frá franska liðinu Mónakó.
Eiður þekkir Gianfranco Zola,
knattspyrnustjóra West Ham, vel
en þeir léku saman hjá Chelsea
á sínum tíma. Samkvæmt The
Mirror fór Eiður í viðræður við
Lundúnaliðið. Liverpool gerði
svo tilraun á síðustu stundu til að
krækja í hann en án árangurs.
- egm
Eiður líklega til West Ham:
Sagði Eiður nei
við Liverpool?
TIL WEST HAM Talið er að Eiður Smári
verði lánaður frá Mónakó.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Sepp Blatter, forseti
FIFA, hefur gefið í skyn að sam-
bandið gæti heimilað notkun
á myndbandsupptökum til að
aðstoða dómara við að taka rétt-
ar ákvarðanir. Fundað verður um
málið í mars.
Blatter hefur áður talað um
að þessi tækninotkun gæti eyði-
lagt flæði leiksins. „Ef tæknin er
að þróast þá er ég til í að skoða
þetta,“ sagði Blatter en hann
segir þó ljóst að þetta verði ekki
komið í gagnið fyrir heimsmeist-
aramótið í sumar. - egm
Dómarar gætu fengið hjálp:
Fundað um
tækninotkun
FÓTBOLTI Stoke og Man. City kom-
ust áfram í enska bikarnum í gær.
Man. City vann Scunthorpe en
Stoke vann heimasigur á ungu liði
Arsenal. Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, viðurkenndi að ungu
strákarnir hefði lítið átt í líkam-
legan styrk leikmanna Stoke.
„Þessi leikur snerist meira um
líkamlegan styrk en tækni. Þeir
voru sterkari en við þar enda ein-
faldur leikur. Mínir ungu leikmenn
réðu ekki við þennan slag,“ sagði
Wenger súr en Ricardo Fuller
skoraði tvö mörk í leiknum.
„Ég sé samt ekki eftir því að
hafa valið þetta lið í þennan leik,
ég gat í raun ekki annað. Það eru
tíu leikmenn meiddir og erfiðir
leikir fram undan. Það er augljóst
að við getum ekki spilað á sömu ell-
efu mönnunum í öllum leikjum.“
Tony Pulis, stjóri Stoke, var
að vonum himinlifandi með sína
menn í leiknum.
„Strákarnir sýndu mikinn bar-
áttuanda í þessum leik. Það skipti
okkur engu hver spilaði fyrir þá,
þeir verða alltaf með klassalið.
Það að Arsene hafi sagt að við
hefðum verið hættulegir í leiknum
er hrós að mínu mati. Ég þarf ekki
meira,“ sagði Pulis kátur en hann
vildi ekki að leiknum lyktaði með
jafntefli enda margir leikir fram
undan. - hbg
Tveir leikir fóru fram í ensku bikarkeppninni í gær:
Stoke lagði Arsenal
SJÓÐHEITUR Ricardo Fuller skoraði tvö góð mörk fyrir Stoke í gær. Hann fagnar hér
öðru þeirra. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES