Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 8
8 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR
MILLJÓNIR BEINT Í VASANN
Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 6611
eða hjá næsta umboðsmanni.
SJÁVARÚTVEGUR Jón Bjarnason sjáv-
arútvegsráðherra hefur gott sem
tekið af allan vafa um að strand-
veiðar eru komnar til að vera. Nið-
urstöður úttektar Háskólaseturs
Vestfjarða (HV) á framgangi og
áhrifum veiðanna túlkar ráðherra
sem svo að reynsla af veiðunum
sé góð. Smábátasjómenn hvetja
til þess að veiðarnar verði festar í
sessi á meðan útgerðir innan LÍÚ
finna þeim allt til foráttu.
Í úttekt HV er meðal niður-
staðna að ánægja sé meðal strand-
veiðimanna með veiðarnar og fyrir-
komulag þeirra. „Þó tilfinningar
séu blendnari meðal annarra hags-
munaaðila er þó meirihlutinn á því
að strandveiðarnar geti verið leið
til að styrkja hinar dreifðu byggðir
landsins,“ segir í kynningu.
Sjávarútvegsráðherra segir að
næsta skref sé að vinna frum-
varp til breytinga á lögum um
stjórn fiskveiða sem lagt verði
fyrir Alþingi á næstunni. „Tekið
verður mið af þeim lærdómi sem
hér hefur verið safnað saman við
gerð frumvarpsins og allar líkur
benda til þess að lagt verði til að
strandveiðarnar séu komnar til að
vera og því verður ekki lagt til nú
að heimild til þeirra verði sett til
bráðabirgða líkt og var gert á síð-
asta ári.“
Þess má geta að Jón Bjarnason
staðfesti í viðtali við Fréttablað-
ið á aðalfundi LÍÚ í lok október
að strandveiðar væru komnar til
að vera, aðeins væri eftir að sníða
ýmsa vankanta af fyrirkomulagi
veiðanna.
Skýrsluhöfundar telja að mark-
miðum hafi verið náð með veiðun-
um. Þar á meðal að gefa fleiri en
handhöfum kvóta möguleika á tak-
mörkuðum veiðum í atvinnuskyni,
nýliðun og að auðvelda fólki að afla
sér reynslu og þekkingar.
Samkvæmt könnun Háskólaset-
urs Vestfjarða höfðu áttatíu pró-
sent þeirra, sem þær stunduðu,
áður gert út bát, fjörutíu prósent
útgerðanna réðu yfir kvóta og 24
prósent höfðu áður selt allan sinn
kvóta.
„Skýrslan staðfestir að strand-
veiðarnar eru sóun á verðmæt-
um,“ segir Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, á heima-
síðu sambandsins. Hann segir
sóun hafa einkennt þessar veiðar
hvar sem á er litið. Allt of margir
bátar hafi verið að veiðum með til-
heyrandi offjárfestingu. Þá stand-
ist gæði stórs hluta strandveiðiafl-
ans ekki samanburð við annan afla
sem berst að landi. Svör kaupenda
staðfesti það. svavar@frettabladid.is
Úttekt ýfir upp deilu
um strandveiðarnar
Úttekt á strandveiðum síðastliðins sumars er af sjávarútvegsráðherra talin renna
stoðum undir það að markmið veiðanna hafi náðst. Útgerðarmenn hafna því
alfarið en smábátasjómenn, eins og ráðherra, vilja festa veiðarnar í sessi.
Í HÖFN Alls voru 595 leyfi til strandveiða veitt en 554 þeirra voru nýtt af 529 útgerðum. 3.400 tonn af þorski komu á land.
VIÐSKIPTI Nýi Landsbankinn (NBI)
hefur síðustu mánuði unnið að yfir-
töku á öllu hlutafé Icelandic Group
(áður Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna) og færir það inn í eignar-
haldsfélagð Vestia á næstu dögum.
Það verður selt í opnu söluferli eftir
óákveðinn tíma.
Félagið var áður í meirihluta-
eigu Grettis, félags Björgólfs Guð-
mundssonar, fyrrverandi formanns
bankaráðs Landsbankans. Skuld-
ir hafa lengi sligað reksturinn og
var fyrirtækið á barmi gjaldþrots
í kringum hrun bankanna haustið
2008. „Bankar voru að loka lánalín-
um og greiðslutryggingum Iceland-
ic Group. Mikilvægt var að bregð-
ast skjótt við og rétta við efnahag
félagsins,“ segir Ásmundur Stefáns-
son, bankastjóri Landsbankans.
Á meðal aðgerðanna var stofnun
félagsins IG, sem skuldir, að mestu
við Landsbankann, voru færðar inn
í til að tryggja reksturinn en við
það tók bankinn Icelandic Group
óformlega yfir.
Ásmundur segir Icelandic Group
gríðarlega þjóðhagslega mikilvægt
enda fari um 35 prósent af útflutn-
ingi sjávarafurða í gegnum fyrir-
tækið. Gjaldþrot þess hefði verið
meiriháttar áfall fyrir sjávarút-
veginn á sama tíma og efnahagslíf-
ið var í uppnámi, að sögn Ásmund-
ar. - jab
ÁSMUNDUR STEFÁNSSON Nýi Lands-
bankinn vonast til að fá eitthvað upp í
skuldir með yfirtöku á Icelandic Group.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hörmulegt fyrir samfélagið hefði Icelandic Group farið í þrot, segir bankastjórinn:
Mikilvægt að bjarga félaginu
VIÐSKIPTI Skipt hefur verið um nafn
á fasteignafélaginu Landic Prop-
erty Ísland. Það heitir nú Reitir
fasteignafélag.
„Síðastliðið ár unnu stjórnend-
ur móðurfélagsins Landic Prop-
erty hf., í samvinnu við kröfuhafa,
að því að verja íslenska starfsemi
félagsins og losa um erlendar eign-
ir og veðskuldir en í því ferli hefur
meðal annars verið gengið frá sölu á
eignasöfnum félagsins í Danmörku
og Finnlandi,“ segir í tilkynningu
félagsins. „Rekstur íslenska fast-
eignasafnsins er nú tryggður og
stendur traustum fótum.“
Vegna þess að félagið starf-
ar eftirleiðis einvörðungu á inn-
lendum markaði var ákveðið að
taka upp íslenskt nafn. „Reit-
ir verða sjálfstætt félag í meiri-
hlutaeigu íslenskra banka. Stjórn-
endur Landic Property hf. sömdu
við NBI (Landsbankann), Arion
Banka, Íslandsbanka, Glitni, Haf
Funding og Byr um fjárhagslega
endurskipulagningu íslenska fast-
eignafélagsins og dótturfélaga.“
Fasteignasafn Reita samanstendur
af 130 fasteignum, einkum versl-
unar- og skrifstofuhúsnæði mið-
svæðis í Reykjavík. Félagið er sagt
stærsta þjónustufyrirtæki landsins
á sviði fasteignareksturs, en meðal
eigna þess eru Kringlan og Hilton
Reykjavík Nordica, Kauphallarhús-
ið, Holtagarðar og „margar af perl-
um íslenskrar byggingarsögu sem
staðsettar eru í miðbænum“. Eignir
félagsins eru sagðar yfir 90 millj-
arða króna virði. - óká
Rekstur íslensks fasteignasafns sagður tryggður eftir endurskipulagningu:
Landic Property heitir Reitir
VIÐAR ÞORKELSSON Viðar Þorkelsson er
forstjóri Reita. Félagið hét áður Landic
Property Ísland og þar áður Fasteignafé-
lagið Stoðir. MYND/REITIR
BRETLAND, AP Tveir breskir bræð-
ur, ellefu og tólf ára gamlir, hafa
hlotið dóm fyrir að hafa í apríl á
síðasta ári pyntað tvo aðra drengi.
Þeir þurfa að sæta gæsluvarð-
haldi í að minnsta kosti fimm ár.
Árásarpiltarnir, sem þá voru
tíu og ellefu ára, plötuðu fórnar-
lömb sín, sem voru níu og tíu ára,
til að koma með sér inn á lokað
svæði þar sem þeir börðu þá með
bareflum og múrsteinum. Vaski
var kastað í höfuð annars fórnar-
lambsins, en hitt var neytt til að
borða brenninetlur. Meðal ann-
ars reyndu ofbeldisdrengirnir að
þvinga hina piltana til hafa kyn-
mök. - gb
Drengir dæmdir í fangelsi:
Hlutu fimm ár
fyrir pyntingar
1. Hvað eru kröfur í þrotabú
Kaupþings háar?
2. Hversu margir nýliðar
tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík um
helgina?
3. Hvar er hús Þráins Bert-
elssonar, sem hann hyggst nú
selja?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
VEISTU SVARIÐ?