Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 25. janúar 2010 19 Söngkonan Vanessa Paradis, sam- býliskona Johnny Depp, ræddi um samband þeirra í nýlegu viðtali við breska tímaritið Sunday Times. Hjónin búa stærsta hluta ársins í París og eiga saman tvö börn og segir Paradis að það ríki mikil virðing á milli þeirra. „Við skiljum að ef við viljum að sambandið gangi þá verðum við að gefa hvort öðru smá næði. Maður borðar ekki sama matinn daglega, maður les ekki sömu bókina eða hlustar á sömu tónlistina aftur og aftur. Maður verður að uppgötva sumt einn með sjálfum sér,“ sagði söngkonan. Þegar hún var spurð hvað henni þætti aðdáunarverðast í fari maka síns var hún óspar á hólið. „Ég gæti talað um það í allan dag. Ég hef gaman af því að fylgj- ast með honum þegar hann situr og hugsar, þegar hann er að ræða við annað fólk, mér finnst gaman að sjá hvernig hann bregst við ýmsum aðstæðum. Ég ber mikla virðingu fyrir honum sem leik- ara, föður og manneskju. Mest dái ég þó manninn sem hann er. Hann er einstakur,“ sagði Paradis um mann sinn. Ástfangin af Depp DÁIR DEPP Vanessa Paradis, sambýlis- kona Johnny Depp, segist bera mikla virðingu fyrir maka sínum. SPIDER-MAN-HÓPUR James Franco ásamt Kirsten Dunst og Tobey Maguire. James Franco, sem lék í þríleikn- um um kóngulóarmanninn, er sannfærður um að myndirnar haldi áfram að vera vinsælar þrátt fyrir fjarveru aðalleikarans Tobey Maguire. Framleiðendurnir hafa lýst því yfir að fjórða myndin ger- ist á menntaskólaárum Péturs Parkers. „Ég hef engar áhyggjur. Þetta gekk upp í Batman-myndun- um og það eru líka mismunandi höfundar og teiknarar sem koma að myndasögunum sjálfum,“ sagði Franco. Hann hefur samt áhyggj- ur af áætlunum um að frumsýna fjórðu myndina strax eftir tvö ár. „Ég held að áhorfendur þurfi smá svigrúm til að átta sig á breyting- unum.“ Spider-Man lifir Nýjustu fregnir herma að Mad- onna og kærasti hennar, bras- ilíska fyrirsætan Jesus, vilji eignast barn saman. Að sögn vina þráir Jesus, sem er aðeins 25 ára gamall, að eignast sitt eigið barn og er Madonna tilbú- in til að eignast sitt fjórða barn með honum. „Madonna hefur sagt að móðurhlutverkið sé það sem gefi lífinu tilgang. Hún veit að það verður erfitt fyrir hana að verða barnshafandi af nátt- úrunnar hendi en hún er við fullkomna heilsu og er tilbúin til að verða móðir aftur,“ var haft eftir innanbúðarmanni. Móðir Madonna MÓÐIR Á NÝ Madonna og Jesus vilja eignast barn saman.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.