Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 18
Doppur eru alltaf jafnvinalegt og heillandi form. Fallegir deplar sjást nú víða í heimilismunum, textíl og hvers konar hönnun. Þar er þó ekki verið að finna upp hjólið því doppur voru til dæmis mjög áberandi í hönnun Vernars Panton og fleiri hönnuða upp úr miðri síðustu öld. -jma Doppur og dílar í hávegum Ekki fer á milli mála að hönnuðir eru þessa dagana undir miklum áhrifum hins fallega forms sem hringurinn er. Um leið eru hringirnir oft í fallegum og glaðlegum litum, gulir, bláir og grænir. Sniðugt er að mála doppur á veggi, til að mynda fyrir ofan rúm og eflaust kæmi þessi gjörningur mjög vel út í eldhúsi líka. NORDICPHOTOS/GETTY Snagar Anne eru af öllum stærðum og gerðum og litum. Danski hönnuðurinn Anne Heinsuig gerir þessa skemmtilegu snaga sem vakið hafa mikla athygli undanfarið. Enn sem komið er fást vörur Anne ekki á Íslandi en áhugasömum er bent á síðuna www.helgo.dk Nina Jobs er sænskur iðnhönnuður sem á hugmyndina að þessari snilldar kar- öflu þar sem tappinn er geymdur undir karöflunni. Design House Stockholm er framleiðandinn. Falleg og exótísk flaska fyrir hvers kyns vökva, sápu, upp- þvottalög eða annað. Habitat, Holtagörðum. Verð: 2.640 kr. Dásamlega dopp- óttir pottaleppar. Habitat, Holtagörð- um, Verð: 2.640 kr. Bolli með gulum glaðlegum doppum. Habitat, Holtagörðum. Verð: 880 kr. Hang it All-snagar eftir Eames-hjónin eru alltaf jafn fallegir og sniðugir til þess að hengja svuntur og viskustykki á. Penninn, Hallarmúla 4. Verð: 45.026 kr. Í hinni nýju PS-línu IKEA er að finna þessa fallegu vefn- aðarvöru úr hör sem hönnuð er af Kazuyo Nomura. Nomura hlaut fyrir þremur árum virtustu textílverð- laun Norðurlanda: „The Nordic award in textiles“. IKEA, Kauptúni. Verð: 3.590 kr. LOK Á KRUKKUM geta verið erfið viðfangs. Eitt gott húsráð til að opna krukku þar sem lokið virðist sem límt á er að taka gúmmiteygju, setja hana utanum lokið og skrúfa. Teygjan veitir viðnám svo hendurnar renna ekki á lokinu. Miðstöðvar Ertu með eitthvað gott á prjónunum? Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn, sem kallast Föt sem framlag , mun hittast næst og prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð, miðvikudaginn 27. janúar kl. 15-18. Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa garn í verkefnið vinsamlega hafið samband. Kaffi á könn- unni og með því. Allar nánari upplýsingar í síma 554 6626 . Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 opið virka daga kl.10-16 sími 554 6626 kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.