Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 25.01.2010, Blaðsíða 10
10 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR Pant ið tíma í síma 511–1551 Hárs nyrt ing Villa Þórs Lyng hálsi 3 UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 3-7. 110 Reykjavík. Sími 515 0000. www.oddi.is HEILBRIGÐISMÁL Matvælastofn- un kallar eftir upplýsingum um ýmis fæðubótaefni vegna gruns um að þau innihaldi stera. Evrópska viðvörunarkerfinu fyrir matvæli og fóður hefur bor- ist tilkynning frá bandarískum yfirvöldum um að netfyrirtækið bodybuilding.com hafi innkallað umræddar vörur. MAST hvetur alla sem upplýsingar geta veitt um þessar vörur á Íslandi að senda tölvupóst á mast@mast.is merkt „fæðubótarefni“ eða hafa samband við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga. Um er að ræða 65 vörutegundir. Þær má sjá á www.mast.is. - jss Matvælastofnun: Sterar í fæðu- bótarefnum STAÐFESTIR STÖÐU SÍNA Evo Morales, sem nýlega var endurkjörinn forseti Bólivíu, tók þátt í athöfn frumbyggja landsins þar sem hann hlýtur viður- kenningu þeirra sem leiðtogi landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP REYKJAVÍK Einn maður er með lög- heimili í Skeifunni, meðan jafn stórt svæði hinum megin Miklu- brautar hýsir þrettán hundruð manns, að mestu í einbýlishúsum. Gísli Marteinn Baldursson borgar- fulltrúi bendir á þetta. Skeifan sé gott dæmi um tækifæri til að þétta byggð í borginni. „Þarna geta léttilega búið um þrjú þúsund manns,“ segir hann. Gísli vill bjóða eigendum húsa í Skeifunni að byggja upp á nýtt og hærra. „Oft heldur fólk, þegar maður er að tala um endurnýjun byggðar, að það eigi að byggja á græna blettinum í hverfinu, en tækifærin eru víðar.“ Skeifan hafi verið byggð sem iðnaðarsvæði í útjaðri borgar- innar. Nú er hún miðsvæðis, með Laugardalinn skammt undan, allar vegtengingar og lagnir til staðar: „Ólíkt nýjum hverfum fyrir aust- an þarf ekki að leggja vatn og raf- magn eða neitt. Stofnkostnaðurinn er því miklu minni.“ Gísli stingur upp á blandaðri byggð, þar sem verslanir fái neðstu hæðina en íbúðir verði fyrir ofan. „Þarna er hrikalega farið með verðmætt land. Svona svæði hafa verið að ganga í gegnum endurnýj- un erlendis og engin ástæða til að gera ekki hið sama hér.“ - kóþ Gísli Marteinn Baldursson vill þétta og blandaða byggð á illa nýttu svæðinu: Einn maður býr í Skeifunni SKEIFA FRAMTÍÐARINNAR? Einhvern veginn svona segist Gísli Marteinn sjá fyrir sér hugsanlegar betrumbætur á Skeifunni. MYND/GÍSLI MARTEINN STJÓRNSÝSLA Þróunarfélag Kefla- víkurflugvallar var ranglega látið greiða tæpar 83 milljónir króna í skipulagsgjald vegna bygginga sinna á varnarsvæðinu en fær aðeins rúmar 4 milljónir endur- greiddar vegna þess að kærufrest- ur var að mestu liðinn. „Þarna er um að ræða gjaldtöku sem ekki er heimild fyrir. Við munum ræða við þessa aðila um að fá þetta til baka,“ segir Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri Þró- unarfélags Keflavíkurflugvelli. Þróunarfélagið, sem er í eigu ríkisins, yfirtók á annað hundrað byggingar á Keflavíkurflugvelli eftir brotthvarf Bandaríkjahers frá Íslandi. Með því að margar þessara bygginga voru síðan seld- ar eða leigðar út voru þær skráðar hjá Fasteignaskrá ríkisins. Í fram- haldinu lagði Skipulagsstofnun skipulagsgjaldið á og sýslumaður innheimti það. Þessari álagningu var vísað til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála í okt- óber síðastliðnum. Úrskurðarnefndin tók undir með Þróunarfélaginu að ekki hafi verið heimilt að leggja gjaldið á þar sem það eigi að innheimta af nýreistum mannvirkjum. Byggingarnar sem um ræðir voru allar reistar fyrir árið 2000 og margar löngu fyrr. „Verður og að líta til þess að um er að ræða eldri fasteignir á svæði sem löngu hafði verið byggt upp og skipulagt á kostnað framkvæmda- aðila er álagning skipulagsgjalds- ins fór fram,“ segir nefndin. Það kemur hins vegar Þróun- arfélaginu í koll að kærufrestur vegna langflestra bygginganna var liðinn áður en kæra félagsins var sett fram. Þess vegna ógildir nefndin aðeins 4,2 milljóna króna álagningu af 82,7 milljónum sem voru innheimtar í skipulagsgjald. Þróunarfélagið virðist þannig sitja uppi með að hafa greitt 78,4 millj- ónir í ólöglegt gjald. Kjartan segir þó að vegna þess hvernig í pottinn hafi verið búið muni félagið freista þessa að fá þetta leiðrétt. „Við sendum inn athugasemd til Skipulagstofnunar í október 2008. Eins og úrskurðarnefndin bendir á þá var okkur ekki leiðbeint þá með það í hvaða ferli málið hefði átt að fara. Ef svo hefði verið hefð- um við náttúrlega náð stærsta hlutanum af þessu til baka í gegn um kæru,“ segir Kjartan. „En við munum bara ræða við þá um þetta og heyra tóninn í þeim. Auðvitað er ríkið báðum megin í þessu máli en þetta lýtur að því að hver haldi utan um sitt.“ gar@frettabladid.is Halda stórfé sem var innheimt í leyfisleysi Þróunarfélag Keflavíkurfluvallar var ofrukkað um 83 milljóna skipulagsgjald en fær aðeins 4 miljónir til baka vegna ákvæðis um kærufrest. Félagið ætlar þó að freista þess að fá málið leiðrétt hjá hinu opinbera enda var gjaldið ólöglegt. KJARTAN EIRÍKSSON Framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ætlar að reyna til þrautar að endurheimta 78 milljónir króna sem voru lagðar ólöglega á félagið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐSKIPTI Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors, hlaut í gær viðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) fyrir árið 2010. Viðurkenningin var afhent í Perlunni fyrir helgi. Í tilkynningu segir að tilkoma fyrirtækisins hafi gerbylt öllu skólastarfi og auðveldað til muna samskipti kennara, foreldra og nemenda. Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical, hlaut hvatningarverðlaun FKA. Þá fékk Bára Magnúsdóttir, framkvæmda- stjóri Jazzballettskóla Báru þakk- arviðurkenningu fyrir framúrskar- andi ævistarf. - bj Framkvæmdastjóri Mentors: Fékk viður- kenningu FKA VIÐURKENNING Vilborg Einarsdóttir tók við viðurkenningunni í Perlunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun Evr- ópu hefur lagt til að markaðsleyfi fyrir lyf sem innihalda síbútra- mín verði innkallað tímabundið vegna gruns um aukna hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. „Síbútramín er ætlað til viðbót- armeðferðar í megrunaráætlun hjá ofþyngdarsjúklingum, sem eru of þungir vegna fæðuneyslu ef aðrir offitutengdir áhættu- þættir, svo sem insúlínóháð syk- ursýki eða blóðfituvandamál, eru fyrir hendi,“ segir á vef Lyfja- stofnunar. Hér er Reductil eina lyfið með markaðsleyfi sem inni- heldur síbútramín. - óká Innköllun Lyfjastofnunar: Lyfið Reductil tekið úr sölu VIÐSKIPTI AMR, móðurfélag banda- ríska flugfélagsins American Air- lines, tapaði 1,5 milljörðum Banda- ríkjadala í fyrra, jafnvirði rúmra 190 milljarða íslenskra króna. Þrátt fyrir gríðarlegt tap er þetta sex hundruð milljóna dala bati frá 2008. Kreppan hélt áfram að setja strik í reikning flugfélagsins en farþegum fækkaði um sex prósent í fyrra frá árinu á undan auk þess sem flugmiðaverð lækkaði að með- altali um þrettán prósent. Þrátt fyrir þetta jókst handbært fé AMR verulega. Það nam 4,9 milljörðum dala í lok síðasta árs samanborið við 3,6 milljarða árið á undan. - jab Afkoma móðurfélags American Airlines: Betra uppgjör flugrisa VÉLAR AMERICAN AIRLINES Hagur AMR vænkaðist nokkuð á milli ára þrátt fyrir að færri hafi flogið með vélum félagsins í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.