Fréttablaðið - 25.01.2010, Síða 6
6 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR
Eignastýring og séreignarsparnaður
fyrir hugsandi fólk
Opinn kynningarfundur
þriðjudaginn 26. janúar
kl. 17:15 að Borgartúni 29.
Viltu ábyrgari
fjármálaþjónustu?
Allir velkomnir
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi af þessum glæsilega grip.
Tryggðu þér eintak í tíma.
TÆKNI Búist er við að rúmlega þúsund manns, þar
af um hundrað erlendir gestir og fyrirlesarar, sæki
alþjóðlega risaráðstefnu Microsoft á Íslandi um
upplýsingatækni, sem haldin verður í Reykjavík á
morgun og miðvikudag. Á ráðstefnunni er að finna
rjómann af þremur ráðstefnum sem haldnar voru í
Bandaríkjunum og í Evrópu í fyrra.
Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft
á Íslandi, segir ráðstefnuhaldið viðbrögð við gengis-
hruni krónunnar. „Íslendingar hafa í gegnum tíðina
verið duglegir að sækja tækniráðstefnur erlendis og
hafa þrír til tólf frá okkur farið með um þrjú hundr-
uð manna hópi og haldið Íslendingakvöld fyrir hann.“
Þegar krónan féll hafi aðeins þrjátíu skráð sig til
fararinnar. Í kjölfarið lagði Halldór höfuðið í bleyti
og komst að því að miðað við aðstæður væri hag-
kvæmt að halda sambærilega ráðstefnu hér.
„Ég reiknaði út að við kæmum út á sléttu. Við
getum meira að segja boðið ókeypis inn á hana í stað
þess að fara,“ segir Halldór en þetta er í annað skipt-
ið á jafnmörgum árum sem blásið er til ráðstefnu
af þessum toga þar sem nýjasta tækni Microsoft er
kynnt. Á sambærilega ráðstefnu hér í fyrra mættu
850 manns og var þetta þá stærsta ráðstefna í upplýs-
ingatækni sem haldin hefur verið hér á landi. - jab
HALLDÓR JÖRGENSSON Microsoft á Íslandi brást við gengis-
hruninu með því að halda tækniráðstefnu hér í stað þess að
fara með nokkuð hundruð manna hóp til útlanda.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Microsoft á Íslandi skipuleggur rúmlega þúsund manna ráðstefnu í kreppunni:
Fær erlenda fyrirlesara heim
STJÓRNMÁL Niðurstaða prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
skilar lista sem lítur ágætlega út,
með óumdeildan leiðtoga. Veikleiki
listans er helst skortur á endurnýj-
un, segir Gunnar Helgi Kristins-
son, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri hlaut afgerandi kosn-
ingu í fyrsta sætið, sem sýnir öðru
fremur að hún er fremur óum-
deildur leiðtogi flokksins í borg-
inni, segir Gunnar Helgi.
Í öðru sæti hafnaði Júlíus Víf-
ill Ingvarsson, einn þeirra fimm
sem sóttist eftir því sæti á listan-
um. Gunnar Helgi segir niðurstöð-
una í slagnum um annað sætið ekki
koma sérstaklega á óvart. Júlíus
Vífill komi vel út, og fyrirfram hafi
verið vitað að staða Gísla Mart-
eins Baldurssonar, sem hafnaði í
fimmta sætinu,
væri erfið.
Niðurstaðan
er ákveðinn
varnar sigur
f y r i r Gí s l a
Martein, þrátt
fyrir að rætt
hafi verið um
að hann hafi
verið framtíð-
ar forystuefni
flokksins í borginni fyrir nokkr-
um árum.
Það hljóta að vera vonbrigði
fyrir Geir Sveinsson að hafna í
sjötta sætinu, segir Gunnar Helgi,
en hann var einn þeirra sem sótt-
ust eftir öðru sætinu. Þetta sýni
að það sé ekki sjálfrötuð leið í for-
ystusæti í stjórnmálum
Það hljóta að vera vonbrigði
fyrir Jórunni Frímannsdóttur að
hafna í áttunda sætinu á listanum
eftir að hafa sóst eftir því þriðja,
segir Gunnar Helgi. Ýmislegt geti
hafa haft áhrif á hennar gengi, til
dæmis umdeilt sjónvarpsviðtal í
Ríkissjónvarpinu nýverið.
Þátttaka í prófkjörinu var
fremur dræm, tæplega 35 pró-
sent. Gunnar Helgi segir það lík-
lega tengjast því að ekki hafi verið
slagur um fyrsta sætið, en Hanna
Birna var sú eina sem bauð sig
fram til forystu á listanum. - bj
Júlíus Vífill lagði keppinauta um annað sætið á lista Sjálfstæðisflokks fyrir sveitastjórnarkosningar í Reykjavík:
Veikleiki listans er skortur á endurnýjun
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
ÚRSLIT PRÓFKJÖRSINS
1. Hanna Birna Kristjánsdóttir
2. Júlíus Vífill Ingvarsson
3. Kjartan Magnússon
4. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
5. Gísli Marteinn Baldursson
6. Geir Sveinsson
7. Áslaug María Friðriksdóttir
8. Jórunn Frímannsdóttir
9. Hildur Sverrisdóttir
10. Marta Guðjónsdóttir
Á að stækka álverið í Straums-
vík?
Já 65,2%
Nei 34,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er prófkjör heppileg leið til að
velja á framboðslista?
Segðu þína skoðun á vísir.is
MENNING „Það er verið að veita
í s len sk r i k v i k my nd a ger ð
náðarhöggið,“ segir Hjálm-
týr Heiðdal, formaður Félags
kvikmyndagerðarmanna um nið-
urskurðaraðgerðir RÚV. Þær fela
meðal annars í sér að dregið verð-
ur úr kaupum á innlendum kvik-
myndum, sjónvarpsþáttum og
heimildarmyndum.
Hjálmtýr segir að þátttaka
RÚV sé forsenda fyrir fjármögn-
un íslenskra kvikmynda og þátta.
„Fyrsta skrefið er ávallt að fá Sjón-
varpið í lið með sér. Það verður að
tryggja mynd sýningu til að hún
fái styrk frá Kvikmyndamiðstöð.
Það sama gildir um norræna og
evrópska sjóði.“
Áður höfðu framlög ríkisins til
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
verið skorin niður um 35 prósent.
Hjálmtýr segir niðurskurð RÚV
vera olíu á þann eld og gæti riðið
íslenskum kvikmyndaiðnaði að
fullu. „Það tekur langan tíma að
fjármagna kvikmynd. Ef Kvik-
myndamiðstöð er sett á hliðina í
eitt eða tvö ár er það ávísun á langt
tímabil stöðnunar.“
Í þjónustusamningi RÚV og
menntamálaráðuneytisins frá
2006 segir meðal annars að RÚV
skuli styrkja og efla innlenda
kvikmyndagerð með því að kaupa
og sýna efni frá sjálfstæðum
framleiðendum. Páll Magnússon
útvarpsstjóri bendir á að forsenda
samningsins sé sú að tekjur RÚV
minnki ekki frá því sem þær voru
að raungildi 2006. Sú grunnfor-
senda sé fallin.
„Við reynum engu að síður að
uppfylla lögbundið hlutverk okkar
af fremsta megni en það er ljóst
að þessi niðurskurður kemur niður
á öllum þáttum starfseminnar. Á
liðnu ári keyptum við og sýndum á
þriðja tug heimildarmynda og það
verður skorið niður eins og allt
annað,“ segir hann.
Páll segir kvikmyndagerðar-
menn beina gagnrýni sinni í ranga
átt. „Það er stjórnvalda að ákveða
skilyrðin fyrir því hverjir fá
úthlutun úr kvikmyndasjóði. Það
verður þá bara að rjúfa þá teng-
ingu að RÚV þurfi að skuldbinda
sig til að kaupa og sýna viðkom-
andi mynd. Hvaða skilyrði mennta-
málaráðherra og Kvikmyndamið-
stöð vilja hafa til að ráðstafa sínum
peningum getur ekki verið málefni
Ríkisútvarpsins.“
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra segir alltaf álitamál
hvernig sé forgangsraðað í niður-
skurði. Hún muni kanna hvernig
heimtur af nefskatti hafi skilað sér
til RÚV og innlendrar kvikmynd-
argerðar.
bergsteinn@frettabladid.is
Segja vegið að kvik-
myndagerð í landinu
Kvikmyndagerðarmenn segja það geta gert út af við íslenskan kvikmyndaiðnað
ef RÚV dregur úr kaupum á innlendu efni. Útvarpsstjóri segir það stjórnvalda
að ákveða skilyrði fyrir fjárveitingum til kvikmyndargerðarmanna en ekki RÚV.
VIÐ TÖKUR Á HAMRINUM Hjálmtýr Heiðdal segir þátttöku RÚV forsendu fyrir fjármögnun íslenskra kvikmynda. Útvarpsstjóri segir
það ekki geta verið málefni RÚV hverjir fái úthlutað styrkjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN