Fréttablaðið - 25.01.2010, Side 46
30 25. janúar 2010 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. verð, 6. einnig, 8. tæki, 9. hljóð
rjúpunar, 11. þessi, 12. kárna, 14.
öngla, 16. tveir eins, 17. varkárni, 18.
skordýr, 20. fíngerð líkamshár, 21.
bylta.
LÓÐRÉTT
1. plan, 3. ólæti, 4. matjurt, 5. ská-
halli, 7. sveppur, 10. krass, 13. nægi-
legt, 15. frumeind, 16. upphrópun,
19. fæddi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. þarf, 6. og, 8. tól, 9. rop,
11. sá, 12. grána, 14. króka, 16. úú,
17. gát, 18. fló, 20. ló, 21. fall.
LÓÐRÉTT: 1. torg, 3. at, 4. rósakál, 5.
flá, 7. gorkúla, 10. pár, 13. nóg, 15.
atóm, 16. úff, 19. ól.
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Hann hefur alltaf haft nóg
fyrir stafni og er varla búinn
að klára eitt þegar hann er
byrjaður á því næsta. Ég hlusta
oft á Kanann fyrri part dags
en ég verð að viðurkenna að ég
vakna sjaldan nógu snemma til
að ná að hlusta á þáttinn hans
Einars!“
Klara Sæland er húsmóðir í sveit og
móðir athafnamannsins Einars Bárðar-
sonar. Hann spilaði nýju Eurovisionlögin
á Kananum í óþökk RÚV.
„Ég væri alveg til í að bjóða þeim
til okkar,“ segir Maríanna Þórð-
ardóttir sem þjálfar klappstýru-
lið á Kjalarnesinu. Nýlega greindi
Fréttablaðið frá öðru klappstýru-
liði í Vík í Mýrdal og aðspurð seg-
ist Maríanna endilega vilja hitta
það, enda um einu klappstýruliðin
að ræða hér á landi að því er hún
kemst næst.
Áhugann á klappstýruliðum
fékk hin tvítuga Maríanna þegar
hún bjó í Danmörku og æfði með
einu slíku. Sumarið 2007 byrjaði
hún að þjálfa íslenskar klappstýr-
ur og í fyrsta hópnum hennar voru
sextán stelpur á aldrinum 11 til 15
ára. Þær æfðu í sex vikur og héldu
sýningu á Kjalarnesi, þar sem
Maríanna býr, og á fótboltaleik í
Mosfellsbæ. Einnig sýndu þær á
vorsýningum UMFK.
Á síðasta ári ferðaðist Maríanna
til Ekvador þar sem hún æfði í
einn mánuð með klappstýrulið-
inu í Latacunga, sem er jafn-
framt Ameríkumeistari. Liðið fór
á heimsmeistaramót klappstýra
sem var haldið í Þýskalandi í nóv-
ember og stóð sig mjög vel. „Þetta
var rosagaman og ég gæti alveg
hugsað mér að prófa þetta aftur,“
segir Maríanna um lífsreynsluna í
Ekvador. Hún fékk að æfa með lið-
inu eftir að hún komst í kynni við
skiptinema frá Ekvador hér á landi
sem þekkti þjálfarann.
Eftir að Maríanna kom heim
hélt hún áfram klappstýruþjálfun
sinni á Kjalarnesi. Liðið er nú skip-
að átta stúlkum, eða þeim Petru,
Lindu, Rakel, Thelmu Ósk, Theu,
Karitas, Birtu og Katrínu. Þær
æfa tvisvar í viku, tvo klukkutíma
í senn og sumar þeirra hafa verið
undir stjórn Maríönnu frá byrj-
un. „Allar stelpurnar hafa tekið
gríðarlegum framförum og eru
rosalega duglegar,“ segir hún. Í
nóvember síðastliðnum tóku þær
þátt í danssýningu sem Háskóli
Íslands hélt á Laugarvatni í sam-
starfi við grunnskólana á Laugar-
vatni, Minni-Borg og í Reykholti.
Um fimm hundruð manns voru á
svæðinu og fengu stúlkurnar mjög
góðar undirtektir frá áhorfendum
sem kunnu vel að meta þessa nýj-
ung í íþrótta- og dansmenningu
Íslendinga. „Þetta gekk mjög vel
hjá þeim. Þetta var fyrsta stóra
sýningin þeirra og þær voru svolít-
ið stressaðar en aðalmálið fannst
mér að hafa gaman,“ segir klapp-
stýruþjálfarinn knái.
freyr@frettabladid.is
MARÍANNA ÞÓRÐARDÓTTIR: STELPURNAR ERU ROSALEGA DUGLEGAR
Klappstýrulið frá Kjalar-
nesi vekur mikla athygli
DUGLEGAR KLAPPSTÝRUR Klappstýrurnar frá Kjalarnesi eru átta talsins og hafa vakið
mikla athygli fyrir frammistöðu sína.
MARÍANNA ÞÓRÐARDÓTTIR Maríanna
fékk áhuga á klappstýruliðum þegar hún
bjó í Danmörku.
„Karlinn kom og söng þetta í „one-take“. Það er ekk-
ert vesen á gamla,“ segir Hlynur Benediktsson í
hljómsveitinni Mono. Sveitin hefur gert nýja „aðeins
rokkaðri“ útgáfu af gamla Hemma laginu „Út á gólf-
ið“ og fékk Hemma sjálfan til að syngja með. Lagið
verður á fyrstu plötu Mono sem kemur út í mars og
heitir einfaldlega Partý.
„Þarna verða eintóm íslensk partý-lög og við
fáum marga góða gesti með okkur. Hemmalagið er
það fyrsta sem fer í spilun, en þarna eru líka menn
eins og Magni, Gunni Óla og Sjonni Brink. Svo kom
Árni Johnsen og söng eitt lag. Hann valdi „Ég veit
þú kemur í kvöld til mín“ og leysti það með glans.
Svo eru nokkrir gestir í viðbót sem við viljum ekki
segja frá alveg strax. Við viljum eiga nokkur tromp
uppi í erminni.“
Mono hefur starfað í rúmt ár og meðlimirnir eru
að upplagi frá Norðfirði þó þeir búi allir í bænum
núna. Þetta er ballband fyrst og fremst og hefur
spilað út um víðan völl. Það er alltaf stuð á böllun-
um og Hlynur segir að hljómsveitin sé komin með
nóg af íslenska kreppuþunglyndinu.
„Við erum að koma með jákvæðnina inn, en það
eru kannski ekki allir tilbúnir til þess því það eru
allir í sorgarferlinu miðju. Maður er eiginlega skot-
inn niður á færi ef maður reynir að vera brosandi
og jákvæður. Þessi partýplata er hugsuð sem okkar
leið til að bjarga geði landans. Við eigum svo frum-
samin lög líka en við komum bara með þau seinna.“
- drg
Stuð í miðju sorgarferli
INN MEÐ JÁKVÆÐNINA Hljómsveitin Mono og Hemmi Gunn:
Bjarni, Hlynur, Hemmi og Þorlákur. Monomennina Magnús og
Þorlák vantar á myndina.
„Þetta er annað myndbandið sem
við gerum með Editors og það
fer vel á með okkur,“ segir Siggi
Kinski.
Leikstjórarnir Siggi Kinski og
Stefán Árni gerðu nýverið mynd-
band við lagið You Don‘t Know
Love með bresku hljómsveitinni
Editors. Lagið er á þriðju plötu
hljómsveitarinnar, en hún er gríð-
arlega vinsæl í Evrópu og platan
fór beint í fyrsta sæti breska vin-
sældarlistans. Var þetta í annað
skipti sem hljómsveitin leitaði
til félaganna, en fyrir tveimur
árum gerðu þeir myndband við
lagið Smokers Outside the Hospi-
tal Door, af plötunni An End has
a Start.
„Við skutum fyrsta mynd-
bandið með þeim í Prag. Það var
frábær reynsla fyrir alla og allir
voru mjög ánægðir með mynd-
bandið,“ segir Siggi. „Þeir töluðu
við okkur aftur núna – og við töl-
uðum reyndar um að gera næsta
myndband með þeim líka. Það er
ekki komin dagsetning á það. Það
verður kannski gert eitt myndband
í viðbót af þessari plötu.“
Siggi Kinski og Stefán Árni
hafa áður gert myndband með
hljómsveitum á borð við Placebo,
Snow Patrol og Sigur Rós. Siggi er
ánægður með samstarfið við Edit-
ors og segir meðlimi hljómsveit-
arinnar listrænni en marga grun-
ar. „Við náum að tengja mjög vel
saman og þetta er rosalega fínir
strákar,“ segir hann. „Þeir hafa
gaman að því að teygja þennan
miðil sem tónlistarmyndbandið er
og hafa gaman af listrænum hlut-
um.“ - afb
Gerðu annað myndband með Editors
BEINT Á TOPPINN Nýjasta plata Editors fór beint á toppinn í Bretlandi. Árni og Kinski
hafa nú unnið tvö myndbönd með hljómsveitinni og eru hér við tökur.
Siggi og félagar í Hjálmum fengu
platínuplötur í föstudaginn, enda
búnir að selja plötuna IV í tæplega
12 þúsund eintökum. Bandið er
byrjað að taka upp næstu plötu
og þar kveður við svokallaðan
„dub“-tón. Nýju lögin eru ósungin,
heillöng, tilraunakennd og tekin
upp á lélegasta dótið í stúdíóinu
því „dub“ má ekki hljóma
vel. Mikael Svensson,
fyrrverandi meðlim-
ur Hjálma sem
nú spilar með
sænsku söng-
konunni Lykke Li,
tekur þátt í upp-
tökunum og hann
spilaði einnig með
bandinu á tónleik-
um á Rósenberg
um helgina.
Umboðsskrifstofan Prime og
söngkonan Hafdís Huld
hafa gert samning um
að Prime sjái hér
eftir um hennar mál
á Íslandi. þetta þykir
þeim hjá Prime enn
ein rósin í hnappagat
umboðsskrifstofunnar,
en hún er þegar með
fólk eins og Bubba, KK,
Ellen Kristjánsdóttur
og Pétur Jóhann á
sínum snærum. Af Hafdísi er það
annars að frétta að í gær spilaði
hún í frönsku borginni Cannes á
Midem-ráðstefnunni ásamt fleiri
efnilegum tónlistarmönnum víðs-
vegar að úr heiminum.
Kvikmyndaframleiðandinn og
leikstjórinn Kristófer Dignus er
byrjaður að skrifa handritið að
kvikmyndinni sem verður gerð
eftir draugabók Gerðar Kristn-
ýjar, Garðinum. Kristófer er
ekki ókunnur handrita-
skrifum því hann hefur
meðal annars skrifað
handritið að sjónvarps-
þáttaröðinni Fólkið
í blokkinni sem
enn á eftir að
sýna. - drg/fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1. 7.300 milljarðar króna.
2. Fimm.
3. Við Fischersund 3.