Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 40
24 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 12 12 L L 7 L 10 L IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.35 IT´S COMPLICATED LÚXUS kl. 5.25 - 8 - 10.35 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 3.40 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 3.40 - 5.50 DYHAT MORGANS kl. 8 - 10.20 MAMMA GÓGÓ kl. 6 - 8 - 10 AVATAR 3D kl. 4.40 - 8 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.50 SÍMI 462 3500 L 12 L 10 L SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 5.50 IT´S COMPLICATED kl. 5.30 - 8 - 10.35 MAMMA GÓGÓ kl. 6 - 8 - 10 AVATAR 3D kl. 8 NIKULÁS LITLI kl. 6 - 8 - 10 Íslenskur texti SÍMI 530 1919 L L 16 16 L L CLOUDY WITH MEATBALLS 2D kl. 5.50 - 8 - 10.10 enskt tal SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 5.50 íslenskt tal HARRY BROWN kl. 8 - 10.20 THE ROAD kl. 8 - 10.20 ALVIN & ÍKORNARNIR 2 kl. 6 íslenskt tal JULIE & JULIA kl. 5.30 - 8 - 10.35 SÍMI 551 9000 .com/smarabio 103.000 GESTIR! 9 ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGAR M.A. BESTA MYND OG BESTI LEIKSTJÓRI AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ, BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL. L 12 7 10 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 6 IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.10 MAMMA GÓGÓ kl. 6 AVATAR 2D kl. 8 Fráskilin... ...með fríðindum. Frá höfundi/leikstjóra SOMETHING´S GOTTA GIVE www.graenaljosid.is TILNEFND TIL 3 GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16 16 16 16 12 12 12 12 V I P L L L L L L L 7 THE BOOK OF ELI kl. 8D - 10:30D WHERE THE WILD THINGS ARE kl. 5:50 - 8 - 10:30 UP IN THE AIR kl. 8 - 10:20 PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 5:50D SHERLOCK HOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40 SHERLOCK HOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40 BJARNFREÐARSON kl. 5:50 - 8 - 10:30 Denzel Washington og Gary Oldman eru frábærir í þessari mögnuðu spennumynd í anda I Am Legend og Mad Max CARMEN Ópera kl. 6 THE BOOK OF ELI kl. 10 BJARNFREÐARSON kl 5:40 SHERLOCK HOLMES kl. 8 UP IN THE AIR kl. 10:30 CARMEN Ópera endurflutt kl. 6 THE BOOK OF ELI kl. 5:50D - 8:10D - 10:40D IT’S COMPLICATED kl. 5:30 - 8 - 10:10 SHERLOCK HOLMES kl. 10:30 - bara lúxus Sími: 553 2075 IT’S COMPLICATED kl. 5.40, 8 og 10.20 12 SKÝAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM... 3D kl. 3.50 - Ísl. tal L UP IN THE AIR kl. 5.50, 8 og 10.10 7 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 4 - Ísl. tal L MAMMA GÓ GÓ kl. 4 10 AVATAR 3D kl. 6 og 9 10 Bókaútgáfan Opna hefur gengið frá samningi við sjónvarpskokkinn Gordon Ramsay um útgáfu á bók hans, World Kitchen, á íslensku í haust. „Við höfum verið að kanna hvort við fáum hann hugsanlega til að koma hingað í tengslum við útgáfu bókarinnar. Það er ekki frágeng- ið enn þá en það væri draumur- inn,“ segir Sigurður Svavarsson hjá Opnu. Bókin er nýkomin út á heimsvísu og hefur hún fengið góðar viðtökur. „Hún þykir mjög pottþétt. Þó að sumir sjái hann [Ramsay] sem sjónvarpsmann og stundum dálít- ið grófan og orðljótan þá er hann algjör meistarakokkur og aðrir kokkar bera honum mjög vel sög- una. Það er líka mjög auðvelt að elda upp úr bókunum hans,“ segir Sigurður. „Þarna geta menn farið í taílenskan mat eða ítalskan eða franskan mat og alla þessa helstu matargerðarskóla. Menn geta farið í ýmsa til- raunastarfsemi með það en líka þessa rétti sem öllum finnst þeir þurfa að geta eldað úr viðkomandi landi, svona lykilrétti.“ Sigurður og félagar hjá Opnu ákváðu að ráðast í útgáfu bókarinnar eftir miklar vinsældir hinnar endurútgefnu Matur og drykkur eftir Helgu Sig frá árinu 1954. Hún var á meðal söluhæstu bóka síðasta árs, sem er óvenju- legt þegar um endurútgáfu er að ræða. - fb Bók Ramsays á íslensku í haust NÝ MATREIÐSLUBÓK Sigurður Svavars- son með matreiðslubók Helgu Sig. Næst á dagskrá er ný bók frá Gordon Ramsay sem gæti hugsanlega verið á leiðinni til Íslands á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Stórmyndin Avatar og spennumyndin The Hurt Locker fengu flestar tilnefningar til Óskars- verðlaunanna í ár, eða níu talsins. Næst á eftir kom stríðsópus Quentins Taran- tino, Inglorious Basterds, með átta tilnefningar. Alls voru tíu kvikmyndir til- nefndar sem besta mynd árs- ins og er það í fyrsta sinn síðan 1943 sem sá háttur er hafður á hjá Óskarsakademíunni. Auk hinna þriggja ofantöldu mynda voru tilnefndar geimverutryllir- inn District 9, teiknimyndin Up, The Blind Side, Up in the Air með George Clooney í aðalhlutverki, A Serious Man eftir Coen-bræður, An Education og Precious. Athygli vekur að í flokkunum besta myndin og besti leikstjór- inn keppa hjónin fyrrverandi James Cameron (Avatar) og Kat- hryn Bigelow (The Hurt Locker). Það verður einnig forvitnilegt að sjá hvort Cameron endurtaki leikinn frá síðustu mynd sinni Titanic sem rakaði til sín ellefu Óskarsverðlaunum árið 1998, þar á meðal fyrir bestu mynd og leik- stjórn. Þeir fjórir leikarar sem hafa sópað til sín verðlaunum að undanförnu voru allir tilnefndir til Óskarsins. Sandra Bullock fyrir aðalhlutverk sitt í The Blind Side, Jeff Bridges fyrir mynd- ina Crazy Heart, Mo´nique fyrir aukahlutverk sitt í Precious og hinn austurríski Christoph Waltz fyrir frammistöðu sína í Inglor- ious Basterds. Beri þau sigur úr býtum 7. mars næstkomandi verða það fyrstu Óskarsverðlaun þeirra allra. Auk Bullock voru tilnefndar fyrir aðalhlutverk Óskarsverð- launahafarnir Meryl Streep og Helen Mirren ásamt nýliðun- um Carey Mulligan og Gabourey Sidibe. Í karlaflokki voru tilnefnd- ir auk Bridges þeir George Cloon- ey, Colin Firth, Jeremy Renner og Morgan Freeman, sem fékk þarna sína fimmtu tilnefningu. Þrátt fyrir að The Hurt Lock- er hafi fengið níu tilnefningar var hún ekki tilnefnd fyrir listræna stjórnun. Karl Júlíusson, sem hannaði leikmyndina, fær því ekki tækifæri til að ganga eftir rauða dreglinum í þetta sinn. Annar Íslendingur kemur þó við sögu þegar Óskarinn er annars vegar því Karl Örvarsson var í hljóm- sveitinni sem spilaði tónlistina sem hljómar í Sherlock Holmes. Karl hefur undanfarin ár starfað með Hans Zimmer, sem er tilnefndur fyrir tónlistina í myndinni. Avatar og The Hurt Locker með flestar tilnefningar AVATAR Kvikmyndin Avatar fékk níu tilnefningar til Óskarsverðlaunanna, rétt eins og The Hurt Locker. FLESTAR TILNEFNINGAR: 9 - Avatar og The Hurt Locker 8 - Inglourious Basterds 6 - Precious og Up In the Air 5 - Up 4 - Dictrict 9, Nine og Star Trek 3 - An Education, Crazy Heart, The Princess and the Frog og Queen Victor ÞAÐ SLEPPUR ENGINN UNDAN HEFNDINNI FRÁ LEIKSTJÓRA "CASINO ROYALE" Hann svífst einskis til þess að hefna dóttur sinnar MasterCard korthafar fá tvo miða á verði eins á sérstakar MasterCard forsýningar á morgun 4. febrúar, kl. 20.00 í Laugarásbíói, Smárabíói og Borgarbíó Akureyri, greiði þeir með kortinu. 2 fyrir 1 á morgun kl. 20.00

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.