Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 24
 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR2 GOTT DEKUR þarf ekki að vera dýrt. Það eitt að skella sér í heita pottinn í sundlaugunum getur endurnært sál og líkama. Með því að skella olíu í bað- karið og kveikja á kerti er einnig hægt að búa til góðan dekurdag í heimahúsi. „Ég hef alltaf boðið herrana vel- komna og hef verið í þessu í tuttugu ár. En þetta hefur mikið breyst síðan ég var nemi,“ segir Brynhildur Jakobsdóttir, eigandi snyrtistofunnar Helenu fögru. „Þá var þetta meira feimnismál fyrir karlmennina og helst að mömm- urnar pöntuðu tíma fyrir ferm- ingardrenginn eða eiginkonurn- ar hringdu fyrir mennina sína. Nú hringja þeir bara sjálfir.“ Hún segir herrana sækja í allar meðferðir, fótsnyrtingu, vax, brúnku sprautun, augnháralit- un og andlitsmeðferðir. Stærsti aldurshópurinn er á bilinu 20 til 40 ára og stór hópur yngri stráka kemur einnig í húðhreinsun og brúnkusprautun fyrir ferming- una. Í raun sé ekki mikill munur á meðferðum fyrir kynin, sömu efni séu notuð nema þegar um andlits- meðferð er að ræða, þá eru notað- ar vörur sérhannaðar fyrir herra, með herrailmi. „Við húðgreinum alltaf við- skiptavininn og ef það er eitthvert vandamál, eins og bólur og annað, þá notum við bara efnin sem við erum með hér. Snyrtiiðnaðurinn er hins vegar farinn að hanna sér- staklega fyrir karlmanninn og í andlitsmeðferð notum við vörur með herrailmi. Við ráðleggj- um körlunum að koma nýrak- aðir til okkar í andlitsmeðferð, nema þeir sem vilja vera með skegg, þá höfum við ráð við því með efnum sem komast að húð- inni gegnum skeggið. And- litsmeðferðin fer svo fram með yfirborðshreinsun, djúphreinsun, gufu og kreistun ef þarf, herða- og andlitsnuddi og svo andlitsmaski í lokin. Meðferðin tekur á bilinu 60 til 90 mínútur.“ Brynhildur segir alla þurfa að hugsa vel um húðina og verja hana fyrir sól og þurrki, karla jafnt sem konur. Karlmenn sem vinna mikið úti þurfi sérstaklega að huga að húðinni, eins og bændur, smiðir og þeir sem stundi útivist eins og golf. Margir karlar noti þó eingöngu rakspíra á húðina eftir rakstur og verða mjög þurrir í framan. „Það er nauðsynlegt að nota góð krem og nú eru komin krem í öllum merkjum til að nota eftir rakst- ur. Karlmenn geta fengið inngró- in skegghár sem þarf þá að stinga á og ættu þá að koma á stofuna. Ég vil ráðleggja körlunum að hreinsa húðina kvölds og morgna, nota góð krem og fá ráðleggingar hjá snyrti- fræðingum um val á snyrtivörum.“ Brynhildur segir þó að ekki þurfi að vera vandamál til staðar til að karlarnir láti sjá sig á snyrti- stofunni. Það séu þægindi að koma í dekur sem karlarnir megi leyfa sér, enda séu þeir að sækja í sig veðrið. „Þeir horfa heldur ekkert á hvað hlutirnir kosta, meðan kon- urnar neita sér frekar um eitthvað ef þeim finnst það of dýrt.“ heida@frettabladid.is Karlar horfa síður í verð Andlitsbað, fótsnyrting og annað dekur á snyrtistofum er jafnt fyrir karla sem konur. Þótt konur hafi verið duglegri gegnum tíðina að heimsækja snyrtistofurnar eru karlarnir að sækja í sig veðrið. Brynhildur Jakobs- dóttir, eigandi snyrti stofunnar Helenu fögru, segir karlmenn duglega að sækja snyrti- stofurnar. Við notkun rakspíra eftir rakstur getur húðin orðið mjög þurr. Nauðsynlegt er að nota góð krem til að hlífa húðinni. NORDICPHOTOS/GETTY ÍANDA er nýtt fyrirtæki sem býð- ur upp á vellíðunarferðir fyrir konur á sérvöldum stöðum á landinu. Fyrstu ferðinni er heitið á Sólheima í mánuðinum. „Við bjóðum konum að komast frá borginni úr hinu iðandi lífi og upp í sveit þar sem þær geta upplifað kyrrð í kringum sig og innra með sér,“ segir Helga Sóley Viðarsdóttir, framkvæmda- stjóri Íanda. Hún stendur að fyrirtækinu ásamt Þóreyju Viðars- dóttur, leiðbeinanda í jógadansi, og Sólveigu Katrínu Jónsdóttur listmeðferðarfræðingi. Ætlunin er því að konurnar fari í ferðalag í tvenns konar skiln- ingi. Bæði út á land og inn á við. „Við erum með einstaka blöndu af jógadansi, sköpun og hugleiðslu. Þannig losum við um höft og tengjumst innsæi okkar og finn- um neistann,“ segir Helga Sóley. Fyrsta vellíðunarferðin ber ein- mitt yfirskriftina Finndu neist- ann þinn sem farin verður 19. til 21. febrúar. Er ferðinni heitið í Sól- heima í Grímsnesi en önnur slík ferð verður farin í mars. Gist verður í tvær nætur í gisti- heimilinu Veghúsum en dögun- um verður skipt upp í skipulagðan tíma og frjálsan tíma. „Við munum verja einhverjum tíma í jógadansi og sköpun,“ segir Helga Sóley en auk þess verður haldið sérstakt hreinsunarkvöld. „Þá leggjum við upp úr góðri fæðu en boðið verður upp á sérhannað grænmetisfæði fyrir hópinn,“ segir hún. Fimmtán konur geta komist í hverja ferð. Nánari upplýsingar um Íanda og ferðina er að finna á vefsíðunni www.ianda.is. - sg Konum boðið í innra ferðalag Á Sólheimum er gott að slaka á fjarri borgarniðnum og ferðast inn á við. EFTIR STREMBINN VINNUDAG JAFNAST EKKERT Á VIÐ AÐ LÁTA ÞREYTUNA LÍÐA ÚR TÁNUM Í HEITU FÓTABAÐI FYRIR FRAMAN SJÓNVARPIÐ. Lítið mál er að blanda gott bað með því sem finnst í eldhússkápunum. Byrjið á að stilla litlum bala upp fyrir framan sjón- varpið, hellið tveimur desilítrum af grófu sjávarsalti í balann, þá teskeið af ólífuolíu í saltið og fyllið balann að síðustu til hálfs með snarpheitu vatni. Skerið hálfa sítrónu í sneiðar og bætið út í og þá er þetta litla heimagerða spa tilbúið. Komdu þér svo fyrir með sjón- varpsfjarstýringuna í hendi og slappaðu af. Heima-spa fyrir tærnar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.