Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 38
BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 22 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott Mikilvægasta augnablikið á ferli Picasso Fyrirsætur óskast Hæ, Hugo, ég heiti Nanna Jóhanna og ég er í forsvari fyrir KókaKólatappasam- tökin í Varanger. Já, hæ! Ég hef heyrt svo ótrúlega mikið um tappa-safnið þitt, langar þig til að sýna mér það? Safnið? Já, mig langar ekkert meira en að baða mig uppúr töppunum þínum Ó boy, ó boy Komdu, Nanna Jóhanna, komdu og stingdu þér í tappana mína Ótrúlega flottir sokkar, Pierce. Ég er ekki í sokkum! Flott húðflúr, Pierce! Takk, þau eru af skoskum ættum! Jæja, ætli það sé ekki best að taka niður jólaskrautið! Nei, ekki strax! Hvað á ég þá að gera, bara bíða eftir því að þú segir að það megi taka það niður? Það væri fínt! Og á ég bara að þegja? Það væri líka fínt! Jólaljós, tengdaforeldr- ar, hátíðar- skreytingar… Maður fær enga forgjöf lengur á Spáni fyrir það að vera Íslendingur. Það er einn af kostunum við nýja Ísland. „Svo þú ert Íslendingur,“ sagði Juan á bæjarskrifstofu Zújar þegar ég var að gera grein fyrir búsetu minni þar í bæ með þar til gerðum pappírum. Síðan spurði hann hvort Eyjólfsson væri móður- nafn mitt. „Nei það er föðurnafnið,“ svar- aði ég. „Nú er Sigurður þá móðurnafnið?“ Ég útskýrði fyrir honum að við Íslend- ingar tækjum venjulega ekki eftirnafn frá móður líkt og Spánverjar. „Eruð þið svona miklar karlrembur?“ MÉR þótti þessi aðfinnsla hjá honum til marks um breytt viðhorf Spán- verja í garð Íslendinga. Áður var ég borinn á höndum þegar ég greindi frá þjóðerni mínu hér syðra. Hófst þá venjulega spænskur lofsöngur um Sigur Rós, Björk og einstaka sinnum um Eið Smára. Það var líka eins og Spanjólarnir væru upp með sér að Íslendingur sýndi af sér þá auðmýkt að yfirgefa allsnægt- irnar í þessu forríka fyrir- myndarlandi og drífa sig á Íberíuskagann til að borða af sama brauði og spænskur lýður. ÞÁ voru mér allar dyr opnar en svo sat ég skyndilega í eins konar yfirheyrslum, grunaður um karl- rembu. Ég varðist þó ásókn Juans fimlega og minntist á Vigdísi Finnboga, Kvenna- listann og að allir handhafar forsetavalds væru konur. ÉG var við það að sannfæra hann um hvað við værum mikil kvenfrelsisþjóð þegar hann spurði hvort íslenskan væri fallegt tungumál. Svaraði ég játandi og því til staðfestingar þuldi ég Þorraþrælinn. Hinn sjálfmiðaði Spánverji vildi hins vegar annað sýnishorn. „Hvernig segir maður „español“ á íslensku?“ spurði hann. „Spán- verji“ segi ég á minni ylhýru. „En españ- ola?“ spyr hann þá. ÞÁ voru góð ráð dýr. Ég var við það að hringja í Steinunni Valdísi en hún fann ekki einu sinni kvenkynsorð fyrir ráð- herra svo varla fyndi hún neitt fyrir Spán- verja. Baráttunni við Juan lauk síðan yfir bjórglasi á barnum. Var oft hart tekist á en síðan skildum við í mesta bróðerni, staðráðnir í því að taka upp þráðinn aftur við fyrsta hentugleika. ÞAÐ var ekki svona auðvelt að finna drykkjufélaga á Spáni í þá daga þegar Ísland var forríka fyrirmyndarríkið og hin þunglyndislega Sigur Rós blés spænskum viðhlæjendum anda í brjóst. Grunaður um karlrembu Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns Aðeins 1.900 kr. ÁVAXTABAKKI Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. FERSKT & ÞÆGILEGT Fbl.★★★★★ Elísabet Brekkan IÐN Ó TILBRIGÐI VIÐ STEF Stef: Hin sterkari eftir Strindberg Næstu sýningar: 4/2, 6/2, 11/2, 14/2, 21/2, 25/2, 27/2 – kl. 20 Sími: 562 9700 kl. 11–16 og tveim tímum fyrir sýningu – www.midi.is eftir Þór Rögnvaldsson Mbl. ★★★ Ingibjörg Þórisdóttir Klassískt verk fullt af leikgleði. Leikstjóranum Ingu Bjarnason tekst vel upp enda enginn nýgræðingur í faginu. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.