Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 2
2 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSMÁL Sophia Hansen neit-
aði fyrir dómi í gær að hún hefði
skrifað undir þrjú viðskiptabréf,
samtals að upphæð um 42 millj-
ónir króna og fleiri pappíra. Hún
fyllyrðir að Sigurður Pétur Harð-
arson hafi falsað undirskrift henn-
ar á bréfunum. Hún hefur nú verið
ákærð fyrir fjársvik.
Sigurður Pétur, sem starfaði
náið með Sophiu við að fá dætur
hennar heim til Íslands, bar að
hann hefði séð Sophiu undirrita
umrædd bréf, ýmist á hóteli í
Tyrklandi eða á heimili hennar.
Rúnu dóttur hennar hefði hann
séð votta undirskriftina á sumum
skjalanna.
„Ég skil ekki hvað þú ert að
bulla,“ heyrðist Sophia þá segja
hálfhátt.
Sigurður Pétur bar að hann
hefði farið út að borða á hóteli í
Istanbúl með Sophiu, Rúnu, eig-
inmanni hennar og barni á tíma-
bilinu 2005 þegar þær mæðgur
hafi skrifað undir eitt bréfanna.
Þessu neituðu bæði Sophia og
Rúna. Sænskur rithandarsér-
fræðingur sem kom fyrir dóminn
sagði rannsókn sína og samstarfs-
manns síns benda eindregið til
þess að Sophia hefði skrifað undir
umrædd skjöl.
Nokkur vitni voru leidd fyrir
dóminn í gær, auk þess sem Rúna
Hansen, dóttir Sophiu, bar vitni
símleiðis frá Tyrklandi. Undir-
skrift Rúnu var á sumum þeirra
skjala sem lögð voru fram í dóm-
inum, þar sem hún var sögð hafa
vottað undirskrift Sophiu. Sophia
taldi það af og frá að dóttir sín
hefði skrifað eitthvað sem hún
ekki skildi, þar sem hún hvorki
talaði né læsi íslensku. Rúna sjálf
neitaði að hafa vottað undirskrift
Sophiu.
Athygli vöktu hörð viðbrögð
Sophiu í dómsal þegar vitni sögðu
eitthvað sem henni hugnaðist
sjáanlega ekki.
Ragnar H. Hall kvaðst hafa
útbúið bréf að beiðni Sigurðar Pét-
urs, til tryggingar því að sá síð-
arnefndi fengi greiddar þær fjár-
hæðir sem hann hefði lagt út til
greiðslu á skuldum Sophiu. Þetta
hefði verið með hennar vitund og
samþykki.
„Mér er alveg sama hvað Ragn-
ar segir hér. Ég ber ekki ábyrgð á
hans orðum,“ heyrðist þá Sophia
segja.
Hörður, faðir Sigurðar Péturs,
kvaðst hafa útbúið veðskuldabréf
upp á þrjár milljónir til að greiða
skuldir Sophiu er hún dvaldi í
Tyrklandi. Sjálf hefði hún lagt til
upphæð og greiðslukjör.
„Ég get bætt við að ég fékk jóla-
kort frá henni með afskaplega
miklu þakklæti fyrir aðstoðina,“
sagði Hörður. Sophia hefði þó ekki
greitt bréfið fyrr en það hafði verið
sett í innheimtu. jss@frettabladid.is
SOPHIA HANSEN Mætti ásamt verjanda sínum, Kristjáni Stefánssyni hæstaréttarlög-
manni, í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sophia brást hart
við í dómsalnum
Sophia Hansen neitaði fyrir dómi í gær að hún hefði skrifað undir þrjú við-
skiptabréf. Hún hefur verið ákærð fyrir fjársvik. Rúna Hansen, dóttir hennar,
bar vitni símleiðis frá Tyrklandi. Hörð viðbrögð Sophiu í dómsal vöktu athygli.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPNUM KL 8.00 ALLA VIRKA DAGA
Nýr
Rauðmagi
Glæný Línuýsa
Páll, gréstu krókódílatárum
yfir bráðinni?
„Nei, ég grét veiðitárum.“
Páll Reynisson veiðimaður veiddi sinn
fyrsta krókódíl í Suður-Afríku á dögunum.
Konan sem lést eftir að hafa
fallið ofan í sprungu á Langjökli
um helgina hét Halldóra Bene-
diktsdóttir. Hún var fædd 8. okt-
óber 1964 og var til heimilis að
Brekkubyggð 28 í Garðabæ.
Halldóra lét eftir sig eigin-
mann og þrjú börn á aldrinum
7 til 20 ára. Sjö ára sonur Hall-
dóru féll einnig í sprunguna en
er á batavegi.
Lést í slysi
á Langjökli
SVISS Viðræður milli Rússa og
Bandaríkjamanna um fækkun
kjarnorkuvopna hafa hafist á ný í
Genf í Sviss, að sögn bandarískra
embættismanna sem ræddu við
fréttamenn AP-fréttastofunnar.
Viðræðurnar hafa staðið lengi
og snúast um hvað koma skuli í
stað samkomulagsins frá 1991 um
fækkun kjarnorkuvopna. Til stóð
að nýtt samkomulag yrði tilbúið
þegar fyrri samningurinn rann út
5. desember síðastliðinn.
Michael Parmly, talsmaður
bandarísku sendinefndarinnar,
sagðist í byrjun vikunnar von-
ast til þess að „hægt yrði að ljúka
fljótlega þeim viðræðum sem
eftir standa“. Hann vildi hins
vegar ekki spá fyrir um hvenær
það kynni nákvæmlega að vera.
Sergey Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússa, lét í síðustu viku
hafa eftir sér að vonir stæðu til
að samkomu-
lag næðist um
frekari afvopn-
un „innan fárra
vikna“.
Embættis-
menn í viðræðu-
nefnd Rússa í
Genf vildu ekk-
ert láta hafa
eftir sér um
málið þegar við
þá var rætt í byrjun vikunnar.
Nýtt samkomulag þjóðanna um
fækkun kjarnorkuvopna á að vera
til tíu ára, en viðræður komust á
skrið á ný eftir að Barack Obama
Bandaríkjaforseti og Dmitrí Med-
vedev, forseti Rússlands, náðu
samkomulagi um að skorið yrði
niður um þriðjung í kjarnaoddum
beggja þjóða sem þegar hafi verið
komið fyrir á hernaðarlega mikil-
vægum stöðum. - óká
FUNDUR Í FYRRASUMAR Dmitrí Med-
vedev og Barack Obama á fundi þeirra
í Moskvu í júlíbyrjun í fyrra. Forsetarnir
hittust til að ræða fækkun kjarnavopna.
NORDICPHOTOS/AFP
Viðræður sendinefnda Rússa og Bandaríkjamanna í Sviss hafnar á ný:
Rætt um fækkun kjarnorkuvopna
SERGEI LAVROV
STJÓRNMÁL Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir, alþingismaður Sjálfstæðis-
flokksins, hefur tekið sæti
Ásbjörns Óttarssonar, flokksbróð-
ur síns, í nefnd alþingismanna
sem fara á yfir skýrslu rannsókn-
arnefndar þingsins um orsakir
hruns fjármálakerfisins á Íslandi.
Ásbjörn ákvað sjálfur að víkja
úr nefndinni eftir að hafa viður-
kennt að hafa tekið sér ólögleg-
ar arðgreiðslur upp á tuttugu
milljónir króna úr fyrirtæki
sínu. Ásbjörn kveðst hafa skilað
umræddri upphæð aftur til fyrir-
tækisins. Það hafi hann gert eftir
að honum varð ljóst við umfjöll-
un fjölmiðla að arðgreiðslan hafi
ekki verið lögleg þar sem eigin-
fjárstaða fyrirtækis hans hafi
verið neikvæð þegar arðurinn var
tekinn á árinu 2006. - gar
Mannaskipti í hrunnefndinni:
Ragnheiður
í stað Ásbjörns
RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR Tekur
sæti í nefnd alþingismanna um við-
brögð við hrunskýrslu.
DÓMSMÁL Eignarhaldsfélagið
Skildingur, í eigu Sigurðar
Helgasonar, stjórnarformanns
Icelandair, var
í Héraðsdómi
Reykjavíkur
í gær dæmt
til að greiða
Glitni 1,1 millj-
arð vegna
gjaldfallinnar
skuldar. Skuld-
in er vegna
láns sem var
tekið árið 2007.
Skildingur var stofnaður 2004
um hlutabréf í FL Group. Sig-
urður stofnaði félagið ásamt
þáverandi lykilstjórnendum
Flugleiða. Samkvæmt ársreikn-
ingi frá 2007 átti félagið hluti í
Bakkavör, Kaupþingi og Lands-
bankanum. Eignir félagsins hafa
rýrnað til muna við bankahrun-
ið. Þá staðfesti dómurinn kyrr-
setningu á rúmlega 91 millj-
ónar króna á bankareikningi
Skildings. - sh
Félag Sigurðar Helgasonar:
Gert að greiða
1.100 milljónir
SIGURÐUR
HELGASON
Ljósabúnaður víða í ólagi
Það hefur vakið sérstaka athygli
lögreglu undanfarið að ljósabúnaði
margra ökutækja er ábótavant.
Ökumenn eru hvattir til að ganga
úr skugga um að ljósin séu í lagi
enda er hér um mjög mikilvægt
öryggisatriði að ræða í skammd-
eginu.
STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra er bjartsýnn
á að það takist að ná samstöðu
um markmið Íslendinga í við-
ræðum við Breta og Hollendinga
um Icesave, komi til þeirra. For-
ystumenn stjórnmálaflokkanna
funduðu í gær.
„Það var harður en jákvæður
tónn í þessum fundi og eftir hann
er ég bjartsýnn á að ríkisstjórn-
inni og stjórnarandstöðunni tak-
ist að ná samstöðu. Það er algjör
forsenda fyrir því að hægt sé að
nota sér þau færi sem eru í stöð-
unni. Ég er líka orðinn nokkuð viss
um það að það eru opnanir gagn-
vart viðsemjendum okkar. Ég tel
að þeir geri sér grein fyrir þeirri
gríðarlega þröngu stöðu sem málið
er í.“
Össur segir vitaskuld mun á
skoðunum stjórnar og stjórnarand-
stöðu, en hann sé bjartsýnn. „Ég
er orðinn sannfærður um að þeir
eru af mikilli einlægni og heilind-
um að skoða það í fyllstu alvöru
hvort þeir geti lagt í þessa sjóferð,
í herrans nafni og fjörutíu, með
okkur. Menn verða að hafa þrek
til þess að ná samstöðu í svona
örlagastundu í lífi þjóðarinnar.“
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra telur að viðræður
gætu hafist innan hálfs mánaðar
og staðið stutt yfir. - kóp
Forystumenn stjórnmálaflokkanna funduðu á ný um Icesave:
Össur bjartsýnn á samstöðu
UTANRÍKISRÁÐHERRA Segir menn ekki
mega bresta þrek til að ná samstöðu á
ögurstundu í lífi þjóðarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUFRÉTTIR
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir telur að skynsamlegt hefði
verið að hafa sérfræðing með í
viðræðum við Breta og Hollend-
inga um Icesave. Hún vildi þó
ekki viðurkenna að það hefðu
verið mistök að skipa Svavar
Gestsson yfir samninganefndina.
Þetta kom fram í Kastljósi í gær.
Jóhanna sagði að hún hefði
ítrekað mótmælt því að tengja
lán Norðurlandanna við Icesave.
Jóhanna hélt utan í gær og mun
funda með José Manuel Barroso,
forseta framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, um aðildar-
umsókn Íslands að sambandinu.
Iceave mun bera á góma. - kóp
Forsætisráðherra:
Áttum að hafa
sérfræðing með
Bærinn vill HSS
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar vill koma
að rekstri Heilbrigðistofnunar Suður-
nesja til að tryggja grunnþjónustu við
íbúa. Bókun þessa efnis var samþykkt
á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi, að
því er fram kom á vef Víkurfrétta. Í
bókuninni segir að bæjarstjórnin vilji
að óvissu um framtíðarrekstur stofn-
unarinnar verði eytt nú þegar.
HEILBRIGÐISMÁL
SPURNING DAGSINS