Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 17
Endurreisn
Frakkar vilja hjálpa
84
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
6-7
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 3. febrúar 2009 – 2. tölublað – 6. árgangur
Bókanir erlendra ferðamanna á
flugferðum til Íslands hjá Ice-
landair eru um fimmtán pró-
sentum fleiri nú en á sama tíma í
fyrra. Þetta er aukning umfram
þá tíu prósenta aukningu sem
er á sætaframboði hjá félaginu.
Þetta segir Birkir Hólm Guðnason
framkvæmdastjóri. „Við reiknum
með að toppa síðasta sumar, sem
þó sló öll met,“ segir Birkir.
Almenn bjartsýni með kom-
andi ferðasumar ríkir meðal
fyrirtækja sem starfa í ferða-
þjónustu hér á landi, segir Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar.
Áhyggjuefni sé hins vegar að nú
dragi úr komum ferðamanna utan
háannatíma. Erna bendir á að lágt
gengi krónunnar nái ekki að vega
upp almennan samdrátt á fjölda
ferðamanna í heiminum í kjölfar
heimskreppunnar.
Fjölgun
ferðamanna
frá fyrra ári
ÞJÓÐVERJAR ELTA
SKATTSVIKARA
Angela Markel, kansl-
ari Þýskalands, segir
að þýska ríkisstjórnin
sé reiðubúin að kaupa nafnalista
skattsvikara sem eru með leyni-
reikninga í Sviss. Fyrst verði hins
vegar að sannreyna að listinn, sem
fyrrverandi starfsmaður HSBC-
bankans í Genf hefur boðið til sölu
á 3,5 milljónir dollara, sé sannur.
Talið er að hátt í tvö þúsund Þjóð-
verjar hafi reynt að komast hjá
skattgreiðslum með því að stofna
reikninga í svissneskum bönkum
og að þýsk stjórnvöld gætu með
þessum hætti endurheimt hátt í
100 milljónir dollara.
BJARTSÝNI HJÁ BOEING
Randy Tinseth, yfirmaður mark-
aðsmála hjá Boeing, telur að rekst-
ur flugfélaga muni batna til muna
á næstu misserum og að árið 2011
verði þau farin að skila hagnaði.
Eftirspurn eftir nýjum flugvél-
um muni aukast árið 2012. Tin-
seth sagði að í lok þessa árs verði
fyrsta Dreamliner 787-flugvélin
afhent japanska flugfélaginu All
Nippon Airways.
AUGLÝSING Á 375 MILLJÓNIR
Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS
er búin að selja öll auglýsingapláss
fyrir úrslitaleikinn í bandaríska
fótboltanum (Super Bowl) sem fer
fram á sunnudaginn. Alls verða á
bilinu 50 til 60 auglýsingar sýnd-
ar og er verðið á bilinu
2,5 til 3 milljónir doll-
ara (313 til 375 millj-
ónir króna). Verðið er
svipað og í fyrra þegar
NBC-sjónvarpsstöðin átti
sýningarréttinn á úr-
slitaleiknum. Algengt er
að stórfyrirtæki noti úr-
slitaleikinn til að frum-
sýna auglýsingar.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Unnið er að því að opna fjárfestum leið inn í landið
með íslenskar krónur sem þeir hafa keypt á aflands-
mörkuðum eftir að gjaldeyrishöft voru sett í nóvem-
ber 2008. Ræddar hafa verið ýmsar hefðbundnar og
óhefðbundnar leiðir til að gera þetta mögulegt innan
stjórnsýslunnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins. Horft er til þess að aflandsféð verði nýtt til að
fjármagna íslensk fyrirtæki á meðan dyrnar eru
lokaðar landinu á erlendum lánamörkuðum. Ekk-
ert mun fast í hendi og vildi því enginn tjá sig um
það opinberlega.
Nokkur fjöldi erlendra fjárfesta mun hafa áhuga
á að fjárfesta hér með íslenskum aflandskrónum.
Reglur Seðlabankans um gjaldeyrisviðskipti hindra
slíka gjörninga, nema í þeim tilvikum að hægt er að
sanna að krónurnar hafi verið keyptar fyrir setningu
gjaldeyrislaganna í nóvember 2008. Gefi Seðlabank-
inn ekki græna ljósið á viðskiptin er eina færa leið-
in fyrir fjárfestana til að koma krónunum í verð að
skipta þeim í erlenda mynt ytra, svo sem evrur. Það
þykir óhagstæður kostur enda ljóst að krónurnar
seljast ekki nema með verulegum afslætti.
Nokkrar leiðir hafa verið ræddar um það hvaða
leiðir verði opnaðar til að hleypa aflandskrónunum
inn. Ein þeirra felur í sér að heimila útlendingum
að fjárfesta í óskráðum fyrirtækjum gegn skuld-
bindingu um að festa fé sitt til eins eða tveggja
ára. Önnur er sú að stofna sjóð fyrir aflandsféð,
sem muni dreifa áhættunni og fjárfesta í mörgum
fyrirtækjum. Sjóðnum yrði stýrt með hefðbundnum
hætti.
Viðmælendur Fréttablaðsins segja aflandskrón-
urnar geta haft góð áhrif á íslensk fyrirtæki, sem
ekki eru skráð á hlutabréfamarkað, jafnvel sem
vítamínsprauta fyrir nýsköpunarfyrirtækin.
Vilja hleypa „vond-
um“ krónum inn
Leitað er leiða innan stjórnsýslunnar til að koma aflands-
krónum inn í landið. Féð á að nýta til að fjármagna íslensk
fyrirtæki á meðan erlendir lánamarkaðir eru þeim lokaðir.
Samþykkt var á hluthafafundi 365
miðla síðdegis í gær, sem meðal
annars gefur út Fréttablaðið, að
skipta hlutafé fyrirtækisins í A-
hluta og B-hluta. Þá verður hluta-
fé fyrirtækisins aukið um einn
milljarð króna. Fjögur hundr-
uð milljónir falla til A-hluta,
sem nýtur atkvæðaréttar, en sex
hundruð milljónir í B-hluta, sem
er án atkvæðaréttar en nýtur for-
gangs 25 prósenta nafnvirðis arð-
greiðslna.
Ari Edwald, forstjóri fyrirtæk-
isins, segir að greint verði frá
hluthafahópi fyrirtækisins þegar
niðurstöður hlutafjáraukningar-
innar liggja formlega fyrir.
- jab
Hlutafé 365
skipt upp
Er prentverkið
Svansmerkt?
Stærstu fyrirtækin
Hverjir eiga
hvað?
Harold James
Afturhvarf til fortíðar í
efnahagsmálum
FIMM ÞÚSUND KRÓNUR Erlendir fjárfestar hafa leitað eftir því að kaupa hlut í íslenskum fyrirtækjum og eignum með íslenskum
krónum sem voru keyptar á aflandsmörkuðum eftir að gjaldeyrishöft voru sett á. Fram til þessa hefur slíkt verið bannað. MARKAÐURINN/VALLI