Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 48
DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 Mest lesið VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is OPIÐ Laugardag frá kl. 11-17 Sunnudag frá kl. 13-17 Virka daga frá kl. 10-18 www.dorma.is Útsala - ótrúlegt verð Sængur - mikið úrval Verð frá kr. 5.900,- Heilsurúm - mikið úrva l Verðdæmi 1 60x200 kr. 1 49.000,- Svefnsófar - margar gerðirVerð frá kr. 69.000,- Stillanleg heilsurúm - mikið úrval Verð frá kr. 312.000,- Nú kostar minna að hvíla sig! Jogastudio.org Fréttablaðið er með 143% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009. Allt sem þú þarft... MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 71,4% 29,3% Milljónir í súginn Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag voru það kvikmynd- irnar Avatar og The Hurt Locker sem fengu flestar tilnefningar til Óskarsverðlaun- anna, eða alls níu. Kvikmynd Sigurjóns Sighvatssonar, Brothers, fékk hins vegar enga en aðstandendur mynd- arinnar höfðu gert sér vonir um að fá einhverjar tilnefningar og eyddu nokkrum milljónum í sérstaka Ósk- ars-kynningarherferð. Sérstaklega höfðu þeir veðjað á frammistöðu Tobey Maguire og lagið Winter með U2 en allt kom fyrir ekki, Akademí- an horfði framhjá Köngulóarmann- inum og írsku risunum. - fgg Flokkur í klípu Frjálslyndi flokkurinn er í vanda staddur. Forkólfar hans vilja ekkert með borgarfulltrúann Ólaf F. Magnússon hafa, og afneita honum statt og stöðugt, en eru samt háðir hjálp hans um skil á ársreikningi fyrir árið 2008. Illa gengur að nálgast svör við því hvernig á að leysa úr þessari klemmu, því þegar hringt er í símanúmer flokksins, sem gefið er upp á vefsíðu hans, fást þau svör að númerið sé ekki rétt valið. 1 Dóttir Sophiu Hansen bar vitni á tyrknesku 2 Hjó drukkinn félaga sinn í höfuðið með sverði 3 Jóhanna hittir Barroso 4 Náttfari gripinn á Selfossi 5 Óskarstilnefningarnar komnar Sjö fylgja fjórum keppendum Í gær var tilkynnt hverjir færu fyrir Íslands hönd til keppni á vetrar- ólympíuleikunum í Vancouver, en þeir hefjast á föstudag. Að þessu sinni fara fjórir keppendur og eru þeir allir í alpagreinum. Vonandi ná þeir góðum árangri á mótinu, í það minnsta verður ekki hægt að kenna um ónógri umsjón á staðn- um verði svo ekki. Keppendum fjórum fylgja nefnilega sjö manns: þjálfarar, sjúkraþjálfi, flokksstjóri og aðalfararstjóri, ásamt forseta og framkvæmdastjóra ÍSÍ. Ellefu manns og fjórir að keppa.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.