Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.02.2010, Blaðsíða 10
10 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR BÚAST TIL SÝNINGAR Prufur þar sem leitað var stúlkna til að sýna á haust- og vetrartískusýningu í Nýju-Delí á Indlandi í lok mars fóru fram í tísku- hönnunarráði Indlands í gær. NORDICPHOTOS/AFP 4. febrúar Selfoss Réttindi lífeyrisþega 11. febrúar Bæjarhraun Réttindi lífeyrisþega 18. febrúar Hornafjörður Fjármál heimilisins 25. febrúar Grafarholt Fjármál heimilisins 11. mars Sauðárkrókur Fjármál heimilisins 18. mars Snæfellsbær Fjármál heimilisins Skráning og nánari upplýsingar eru á vef Landsbankans, landsbankinn.is, og í síma 410 4000. Allir velkomnir. Landsbankinn kynnir röð fjármálanámskeiða fyrir almenning undir yfirskriftinni Fimmtu- dagskvöld eru fjármálakvöld. Markmið nám- skeiðanna er að auðvelda fólki að öðlast betri yfirsýn yfir fjármál heimilisins. Réttindi lífeyrisþega Á námskeiðinu verður farið yfir helstu breytingar sem gerðar voru á réttindum og greiðslum lífeyrisþega frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2009. Sólveig Hjaltadóttir, framkvæmdastjóri, og Margrét Jónsdóttir, deildarstjóri á Réttindasviði TR, kynna breytingarnar og svara fyrirspurnum ásamt sérfræðingum bankans. Fjármál heimilisins Námskeiðinu er ætlað að auðvelda fólki að halda utan um fjármálin. Sérfræðingar bankans fjalla um skipulag og stýringu fjármála heimilisins, útgjöld, endurskipu- lagningu, kosti heimilisbókhalds, sparnaðarleiðir og lánamöguleika. Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld N B I h f. (L an d sb an ki n n ), k t. 4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 40 46 6 Námskeiðin verða haldin í eftirtöldum útibúum: UMHVERFISMÁL Getur hugsast að umhverfisráðherra sé á móti virkjunum í neðri hluta Þjórsár og sé því „vanhæfur þegar kemur að endurteknum úrskurðum um formsatriði í þessu máli?“ Svo er spurt í grein á vef Samorku, Sam- taka orku- og veitufyrirtækja, eftir Gústaf Adolf Skúlason aðstoðar- framkvæmdastjóra. Gústaf segir Samorku ekki hafa nein áform um að láta reyna á hæfi ráðherra, enda sé Samorka ekki aðili að málinu. Samtökin hafi einfaldlega viljað velta þess- um fleti upp. Þá segir hann engu líkara en Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð- herra skilji ekki eðli endurnýjan- legra orkulinda, en hún velti því upp, í Frétta- blaðinu í gær, hvort núver- andi kynslóð gæti ráðstafað „öllum mögu- legum virkjana- kostum um ókomna framtíð eins og það sé ekki fleiri kynslóða að vænta á Íslandi“. Í grein sinni segir Gústaf: „Þarna talar ráðherrann um nýt- ingu vatnsafls með rennslisvirkj- unum eins og um námagröft sé að ræða. Ráðherrann virðist ekki skilja eðli endurnýjanlegra orku- linda, þrátt fyrir að aukin nýting þeirra sé efst á baugi í umhverfis- umræðunni um veröld alla, í stað brennslu jarðefnaeldsneytis.“ Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra segist ekki hafa sérstaka skoðun á úrskurðinum og túlkun umhverfisráðuneytisins á skipu- lagslögum virðist vera í lagi. Hún vill þó endurskoða skipulagslög- in, ekki sé hægt að fámenn sveit- arfélög beri mikinn kostnað vegna framkvæmda sem jafnvel eru taldar þjóðhagslega hagkvæmar. Hvað virkjanir í neðri hluta Þjórsár varðar segir Katrín lykil- atriði að þær hugmyndir séu inni í ferli rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. „Það hefur alltaf legið ljóst fyrir að þessi ríkisstjórn mun ekki taka ákvörðun um neðri hluta Þjórsár utan við það ferli.“ Rammaáætlun er væntanleg í lok þessa mánaðar og Katrín segir að þá sé það Alþingis að taka afstöðu til mögulegra virkjanakosta. kolbeinn@frettabladid.is Efasemdir um hæfi ráðherra Samorka spyr hvort umhverfisráðherra sé vanhæfur til að úrskurða um virkjanir í Þjórsá. Hefði alltaf beðið rammaáætlunar, segir iðnaðarráðherra. ÞJÓRSÁ Hér hyggst Landsvirkjun reisa virkjun. Umhverfisráðherra hefur hafnað skipulagi þar um. Samorka telur ráðherra jafnvel vanhæfan þar sem hann sé á móti virkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Þarna talar ráðherrann um nýtingu vatnsafls með rennslis- virkjunum eins og um námagröft sé að ræða. GÚSTAF ADOLF SKÚLASON HJÁ SAMORKU BORGARMÁL „Það er helber lygi að þarna sé um að ræða eitthvert einkahlutafélag mitt,“ segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-list- ans í Reykjavík, um tilkynningu sem Frjálslyndi flokkurinn sendi frá sér í gær. Ólafur telur tilkynn- inguna runna undan rifjum lítill- ar klíku í flokknum, sem trúlega samanstandi af færra fólki en séu á bak við Borgarmálafélag F-Lista í borginni. Í tilkynningunni áréttar Frjáls- lyndi flokkurinn að Ólafur sé ekki í flokknum og að heilsíðuauglýs- ing sem hann birti í Fréttablaðinu í gær sé ekki á vegum F-listans í borginni. „Auglýsingin er sögð í nafni Borgarmálafélags F-lista. Af því tilefni ítrekar Frjálslyndi flokkurinn að það félag hefur ekk- ert með Frjálslynda flokkinn að gera eða Borgarmálafélag Frjáls- lynda flokksins í Reykjavík. Félag það sem Ólafur kallar „Borgar- málafélag F-lista“ er einkahluta- félag sem Ólafur stofnaði á valda- tíma sínum sem borgarstjóri til þess eins að færa til fjárstyrk af hálfu borgarinnar sem áður hefur jafnan runnið til Frjálslynda flokksins,“ segir í tilkynningunni. Ólafur segist furða sig á að fjöl- miðlar hafi í gær kosið að éta upp „gamla lygi“ um Borgarmálafélag- ið. Hann bendir á að kjördæma- ráð Frjálslynda flokksins hafi lýst eindregnum stuðningi við hann og gefur ekki mikið fyrir tilkynning- una sem send var út í gær. - óká Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi F-listans: Hafnar fullyrðingum Frjálslynda flokksinsLÖGREGLUMÁL Fimm líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunn- ar eftir helgina. Ein átti sér stað aðfaranótt laugardags og fjórar aðfaranótt sunnudags. Í miðborginni fékk karlmaður um fertugt skurð á hnakk- ann eftir að hafa verið sleginn hnefahöggi. Þá var karlmaður á fimmtugsaldri bitinn í hand- legginn en málsatvik þykja óljós. Einnig kom til ósættis í heimahúsi á höfuðborgarsvæð- inu. Það leiddi til þess að karl- maður lagði til manns með sverði. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Árásarmaðurinn var handtekinn. Tilefni átak- anna lá ekki ljóst fyrir í gær en fyrir liggur að mennirnir höfðu setið að sumbli. - jss Fimm líkamsárásir tilkynntar: Bitið í handlegg og sverði beitt MENNTUN „Foreldrar eiga að hafa eitthvað að segja um hvar skorið er niður í skólum barna þeirra,“ segir Guðrún Valdimarsdóttir framkvæmdastjóri Samfok, Sam- taka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Samfok sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem ítrekað er mikilvægi þess að haft sé samráð við skólaráð þegar ákvarðanir eru teknar um niður- skurð í skólum. Menntasviði Reykjavíkur er gert að skera niður um fjögur prósent í ár. Guðrún segir foreldra ugg- andi um hvar verður borið niður, reyndar megi ekki skera niður í almennri kennslu, sérkennslu eða nýbúakennslu. En leiðir sem gætu orðið fyrir valinu séu til dæmis tækjakaup, gæsla í frímínútum eða skólaferðir. Samfok harma að skera þurfi niður í menntakerfinu og bendir Guðrún á að þetta sé annað árið í röð sem skorið er niður þar og svigrúmið því ekki mikið. „En fyrst að skera þarf niður þá er mjög mikilvægt að foreldrar séu með í ráðum, þeir fái að láta sínar skoðanir í ljós og skólastjórnend- ur upplýsi um rök fyrir sínum tillögum,“ segir Guðrún. Samkvæmt lögum um grunn- skóla ber að hafa samráð við skóla- ráð um allar ákvarðanir er snerta skólastarf, þar með talið rekstr- aráætlanir. Í skólaráði sitja tveir fulltrúar foreldra, auk skólastjórn- enda, fulltrúa nemenda og fulltrúa nærsamfélagsins. -sbt Foreldrar séu með í ráðum þegar niðurskurður í skólum er ákveðinn: Foreldrar uggandi yfir niðurskurði BÚLGARÍA, AP Villihundar drápu þrettán dýr í dýragarði Sofíu, höf- uðborgar Búlgaríu, í síðustu viku. Ivan Ivanov, framkvæmdastjóri dýragarðsins, segir hundana hafa komist í gegnum girðingu og ráð- ist á átta villisauði, fjóra krón- hjartartarfa og eina hind. Hann segir atvikið það alvarlegasta sem upp hafi komið í dýragarðinum á síðari árum. Frosthörkur og hung- ur hafi rekið hundana í árásina. Tvö hjartardýr og einn villi- sauður sluppu áður en öryggis- verðir skárust í leikinn. Hundarn- ir komust undan. Dýragarðurinn er sá stærsti í Búlgaríu með 1.310 dýrum. - óká Áhrif kulda í Búlgaríu: Hundar drápu dýr í dýragarði GUÐRÚN VALDI- MARSDÓTTIR Framkvæmda- stjóri Samfok segir foreldra uggandi vegna niðurskurðar í skólum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.