Samtíðin - 01.12.1968, Side 12
4
SAMTÍtJIN
þjóðum verkfræðiþekking’u og framkvæma
stórkostleg mannvirki fyrir þær, eins og
danska smáþjóðin liefur til dæmis lengi gert,
eða vera eins konar hráefnanýlenda, sem
ávailt virðist eiga undir högg að sækja með
að geta selt matvælaframleiðslu sína, enda þótt
veruiegur hluti mannkynsins svelti. I*að er
ekki liehlur björgulegt að sækja ávallt flest
andleg viðhorf til annarra þjóða og gleypa við
þeim, einatt að lítt rannsökuðu máli og án
tillits til, hvort þau lienti sem bezt.
RAD D I R --------
------R A D D I R-
-----------RADDIR
Arthur Knut Farestveif:
OF IUIKID AFTURHALD
Ég hef þá skoðun, að maðurinn fylgist
ekki nægilega vel með breyttum tímum.
Maðurinn veldur breytingum, en dregst aftur
úr eigin verkum. Hávaðinn af Islendingum
reynir t. d. alltaf að halda aftur af forystu-
mönnum sínum. Við erum svo miklir ein-
staklingshyggjumenn, að við þolum ekki, að
nokkur sé öðrum fremri og reynum því að
draga alla niður til okkar, sem fram úr
skara. Þetta tel ég vera aðalgalla á íslenzku
þjóðinni. Við reynum alltaf að gera minna
úr náunganum í stað þess að styðja við bak-
ið á þeim, sem vilja ryðja brautina og njóta
um leið góðs af því, að slíkir menn skuli
vera til. Tækninni fleygir fram, við stöndum
eftir sundraðir og máttvana.
Fólk hér á mjög erfitt með að slíta sig frá
uppruna sínum og fjölskyldum. Ferskar nýj-
ar hugmyndir eiga erfitt uppdráttar. Okkur
hættir oft við að halda, að við séum guðs
útvalda þjóð. Við gleymum okkur í sjálfs-
ánægju yfir verkum forfeðranna.
(Úr samtali við Arthur Knut Farestveit rit-
höfund í Vísi 9. okt. 1968).
SAMTÍÐIN
óskar öllum Islendingum
jóla.
Helurilu
heyrt
þessar
?
Verra gat það verið
MAÐUR nokkur sagði oft, þegar hann
lieyrði vondar fréttir: „Ja, verra gat það
verið“. Eitl sinn liitti liann kunningja
sinn, sem sagði:
„Nú er það svart, maður! Heldurðu
ekki, að hann Siggi skósmiður hafi kom-
ið heim til sin í gær og sótt þannig að
konunni sinni, að hún var í hörku faðm-
lögum við einhvern náunga. Og hvað
heldurðu, að Siggi hafi þá gert: Hann
dró hara upp skammbyssu og skaut þau
hæði — og sjálfan sig á eftir!“
„Ja, verra gat það verið, lagsmaður!“
„Hvað áttu við, maður?“
„Ég á við það, að ef hann Siggi hefði
rekizt heim til sin daginn áður, þá liefði
liann fundið mig í faðmlögum við kon-
una sína“.
Leizt ekki á nemendurna
INNBROTSÞJÓFUR kom fyrir kvið-
dóm í Englandi, og forseli dómsins sagði
við liann: „Skýrið þér háttvirtum dóm-
endum nú frá því, hvernig þér fóruð að
því að opna peningaskápinn“.
„Það liorgar sig ekki, því þeir mundu
aldrei geta lært það“, anzaði þjófsi.
Grét af engu
MAÐUR nokkur sagði við eiginkonu
siua: „Ileldurðu, að þú færir að gráta,
ef ég dæi?“
„Því gæti ég' bezt trúað, því ég er svo
tilfinninganæm, að ég græt stundum
hókstaflega af engu“, anzaði konan.