Samtíðin - 01.12.1968, Blaðsíða 26

Samtíðin - 01.12.1968, Blaðsíða 26
18 SAMTlÐlN fleygastur allra fugla er freigátufuglinn í hitabeltinu. Hraði hans hefur mælzt 375 km á klst. í logni. Næstur honum er múrsvölungurinn með 355 km hraða á klst. og veiðir meira að segja flugur á þeim hraða! En talið er, að flugur hrindi öllum metum í þessum efnum. Vísinda- menn þykjast hafa mælt viðbragðsflýti uxakleggjans, sem nam allt að 500 km á klst. Sá bitvargur er a. m. k. alltaf búinn að stinga fólk og er floginn á burt, áður en menn hafa haft ráðrúm til að slá liann. Gullsmiðurinn flýgur með 90 km hraða á klst. og getur stöðvað sig á centímetra, sem reynast myndi öðrum lifandi verum bráður bani. Sverðfiskurinn er allra fiska hrað- syndastur; hann kemst 110 km á klst. Hákarl kernst tæpa 60 km, lax 40. Hér verður nú staðar numið að sinni. Við liættum okkur ekki út i að segja frá þeim hraða, sem mennirnir hafa þegar náð með ýmsum tækniráðum. Sú frásögn yrði líka vísast orðin úrelt, þegar þessar línur koma á prent. Nýstárleg bankaþjónustu f danska blaðinu Politiken birtist nýlega eftirfarandi smágrein: Danskir bankar eru ekki enn komnir það langt, að unnt sé að fá þar léða peninga í peningasjálfsafgreiðslum (pengeautomater). En þar er hægt að taka út peninga á þann hátt, ef menn taka ekki meira en þeir eiga inni. Sjálfsafgreiðsla (automat-service) hef- ur nú í fyrsta sinn í Danmörku verið tekin upp við Norðurport, þar sem Sparisjóður Kaupmannahafnar og nágrennis hefur kom- ið fyrir sjálfsafgreiðslu peninga, er annast þjónustu úti fyrir, eftir að peningastofnun- inni hefur verið lokað. f þessari sjálfs- afgreiðslu er hámarksúttekt 500 kr. Við- skiptavinir Sparisjóðsins geta nytfært sér hana með plastkorti, sem kostar 10 kr. Raf- reiknir vakir yfir útborgununum og fylgist með því, hvort innstæða sé fyrir þeim á bankareikningnum, áður en sjálfsafgreiðslan afhendir peningana. 0LIK SJ0NARMIÐ Eg geri það ekki — segir letinginn. Eg gel það ekki — segir dugleysinginn, Eg veit það ekki — segir sá fáfróði. Ég vildi ég gæ.ti það — segir óskhyggju- maðurinn. Ég kynni að geta það — segir draumóra- maðurinn. Eg ætla að reyna það — segir sá framsýni. Ég get það áreiðanlega — segir kjarkmað- urinn. Ég ætla að gera. það — segir sá ötuli. Eg er búinn að því — segir sigurvegarinn. Tveir stjórnmálaskörungar HÉR kemur aldargömul saga: Ensk ungl- ingsstúlka varð þess einstæða lieiðurs að- njótandi að vera borðdama stjórnmálaskör- unganna Gladstones og Disraelis hvort kvöld- ið eftjr annað. Aðspurð, við hvorn þeirra henni hefði likað betur, svaraði stúlkan: „Þegar ég hafði hr. Gladstone tii borðs, viit- ist mér hann vera vitrasti maður á öllu Eng- landi. En þegar ég hafði herra Disraeli, þá fannst mér hann vera vitrasta kona á Eng- Iandi!“ MERKINGAR ORÐTAKA á bls. 16. 1. Að fara á sömu leið. 2. Að vera á vegum einhvers. 3. Að vera forviða. 4. Að bregðast. 5. Að leysa verk af hendi til þess að rækja einhverja skyldu. ^ SÉRHVER fjölskylda þarfnast fjölbreylts og skemmtilegs heimilisblaðs. SAMTÍÐIN kapp- kostar að veita fslendingum þá þjónustu. ^ ScgiS vinum yðar frá SAMTÍÐINNI.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.