Samtíðin - 01.12.1968, Side 24
16
SAMTÍÐIN
að við gleymum því furðu fljótt, að við
höfum nokkurn tíma verið ung.
að enn verra sé, að við gleymum þvi oft
gersamlega, hvernig var að vera
ung(ur).
að örðugt hljóti að vera fyrir roskið
fólk nú á dögum að kenna æskunni,
hvernig hún eigi að vera ung.
að aldahvörf séu milli 19. aldar æsk-
unnar og unga fólksins í dag.
að æskan í dag telji sjálfsagt að gera
flestallt það, sem 19. aldar æskunni
var harðbannað að gera.
Niðurstaða: Æskan í dag er, hvað
sem liver segir, allra hezta fólk.
■ Hvað merkja þessi —-
~ ORÐTÖk?
1. Að hallast á einn meið.
2. Að vera á snærum einhvers.
3. Að vera steini lostinn.
4. Að ganga í tarnna.
5. Að gjalda Torfalögln.
Svörin eru á bls. 18.
IJR ocj KLUKKtR
mikið úrval
SIGURÐUR JÓNASSON
Laugavegi 10 B — Sími 10897
Sorgarsaga að sunnan
SJÚK blökkustúlka í borg einni í Suður-
Afríku var fyrir skömmu að bíða eftir stræt-
isvagni í hellirigningu. Nokkrir hvítir menn
biðu þarna einnig eftir vagni, sem einungis
var ætlaður hvítum farþegum. Þeir sáu aum-
ur á stúlkunni, og þegar vagn þeirra kom,
buðu þeir henni að verða sér samferða í hon-
um. Stúlkan ætlaði ekki að þora það, en lét
þó til leiðast, vegna þess hve lasin hún var.
En í því að hún steig upp í vagninn, kom
lögregluþjónn hlaupandi. Þreif hann til
blökkustúlkunnar, dró hana út úr vagnin-
um og hótaði að sekta alla farþegana, ef hún
dirfðist að fara aftur upp í hann.
Stúlkan varð að bíða langa stund eftir
blökkumannavagni. Áður en hann kæmi,
höfðu 3 hvítra manna vagnar staðnæmzt á
þessari biðstöð. Loks komst stúlkan þó heim
til sín, en þá var svo af henni dregið vegna
vosbúðar og sjúkleika, að hún lagðist þegar
rúmföst og andaðist skömmu síðar.
Allt erA þá þrennt er
ÞEGAR japanskur málari, Naga Imogo að
nafni, hafði „af tilviljun“ þ'risvar sinnum
misst málningarkrukku í höfuðið á lögreglu-
þjóni í sama mánuðinum, virtist réttvísinni
austur þar nóg komið af tilviljununum og
sektaði málarann.
Hátekjukonur
NÝLEGA sáum við þess getið í erl. blaði,
að Elizabeth Taylor væri ekki lengur tekju-
hæsta kvikmyndadís heimsins. Julie And-
rews hefði nefnilega farið fram úr henni,
hvað það snertir. Hún fékk fyrir leik sinn
í kvikmyndinni „Say it With Music“ 1.25
jnillj. dollara, en Elizabeth varð að láta sé."
nægja 1 milljón.
Útvarpstæki og útvarpsviðgerðir.
öll vinna fljótt og vel af hendi leyst.
IIADÍ ÓVIRKINN
Skólavörðustíg 10 — Sími 10450