Samtíðin - 01.12.1968, Qupperneq 17

Samtíðin - 01.12.1968, Qupperneq 17
SAMTÍÐIN 9 Hernjósnir stórveldanna eru geigvæn- legar. Hámarki ná þær vitanlega á styrjaldartímum, en þeim linnir ekki, þó að friður eigi að heita ríkjandi, eins og eftirfarandi frásögn sannar. SKANDALINN Á SKAPAFLÓA ÁRIÐ 1927 fluttist maður nokkur til Kirkwall (Kirkjuvogs) á Pomonaeyju í Orkneyjaklasanum. Hann sagðist heita Albert Ortel og vera Svisslendingur. Kom þá engum á óvart, þótt hann gerðist starfs- maður hjá úrsmið í bænum, Dennis Eynhall- ow að nafni. Albert þessi var hinn altillegasti og virtist hverjum manni vel. Hann reyndist framúr- skarandi geðfelldur afgreiðslumaður í úra- verzluninni. Útlendi ljóminn af honum varð íbúum smábæjarins þægileg tilbreyting í staðnaðri eymennskunni. Auk þess var Sviss- lendingur þessi afburða úrsmiður, eins og vænta mátti, og er ekki að orðlengja, að viðskiptin við Eynhallow stórjukust við til- komu hans. Albert Ortel var hófsamur og sparneyt- inn eins og sönnum Svisslendingi sæmdi. Hann stefndi brátt markvisst að því að stofna sjálfur úra- og listmunaverzlun í Kirkwall. Þóttist Eynhallow sjá sæng sína uppreidda, ef úr því yrði, og tók því það ráð að hækka við hann kaupið til að reyna að fá hann ofan af þessu. Það varð auðvitað til þess eins að flýta fyrir áformi Svisslend- ingsins, og árið 1931 stofnaði hann verzlun, Þar sem aðaláherzlan var lögð á úrasölu og úraviðgerðir. Er nú skemmst frá að segja. að viðskiptamenn Eynhallows streymdu til Alberts, enda fór hvort tveggja saman hjá honum: frábær kunnátta í úraviðgerðum og eindæma mannhylli. Hann gerði sér engan mannamun, heldur leiðbeindi öllum, örvaði Þá til athafna og hreif hvern mann, sem kynntist honum, með vinsemd sinni. Hentu eyjaskeggjar ekki sízt gaman að erlenda hreimnum í rödd hans, þegar hann var að bera sig að tala mállýzku þeirra. Meðal viðskiptamanna Alberts úrsmiðs voru sjóliðar frá brezku flotastöðinni í Skapa- flóa, sem var örskammt frá Kirkwall. Þeir keyptu af honum hvers konar gjafir handa ástvinum sínum. Þeir skeggræddu við hann um allt milli himins og jarðar, enda kunni úrsmiðurinn skil á löndum og þjóðum um víða veröld. Áhuga hans á málefnum sjó- liðanna virtust engin takmörk sett. Albert var ókvæntur, en honum leiddist samt ekki í hinu nýja umhverfi. Orkneying- ar tóku honum undir eins opnum örmum og kepptust um að bjóða honum heim til sín. Auk þess fór hann í róðra með fiskimönn- um, seig í björg með fuglurum og spilaði bridge við fólkið í Kirkwall. Hann gerðist brátt þvílíkur heimamaður á Pomonu, að honum þótti fyrir því að verða að skreppa þaðan til Sviss á hverju sumri til að hitta að máli aldurhniginn föður sinn og fjöl- mennt frændlið. Að fám árum liðnum hætti hann þessum heimsóknum, og árið 1932 öðl- aðist hann brezkt ríkisfang. Eftir það var ekkert, sem benti til þess, að hann væri út- lendingur annað en nafn hans, því að Bret- ar reyndust ekki þeir harðstjórar gagnvart erlendum innflytjendum að krefjast þess, að þeir skiptu um nöfn, eins og íslenzk yfir- völd láta sér sæma og teljast má með nokkr- um hætti undarleg ráðstöfun, svo að ekki sé dýpra tekið í árinni. Svo gróinn gerðist þessi svissneski úr- smiður við hina nýju átthaga sína, að hann sat þar brátt sem fastast og lét sér Þá nægja að skrifa karli föður sínum í stað þess að heimsækja hann ár hvert. Og synd væri að segja, að hann hefði reynzt pennalatur, því að hann skrifaði gamla manninum ekki sjaldnar en hálfsmánaðarlega. Auk þess var úrsmiðurinn sískrifandi öðrum ættmennum, enda sagði hann, að fjölskylda sín væri ákaf- lega stór og dreifð um alla Evrópu. Ýmsir frændur og vinir Alberts heim- sóttu hann í Kirkwall. Auðvitað töluðu þeir allir með svissneskum hreim. Nokkrir þeirra urðu svo hrifnir af eyjunni, að þeir settust þar að. Liðsinnti úrsmiðurinn þeim eftir föngum við útvegun atvinnu og dvalarstaðar. Engan furðaði á því, að Svisslendingur skyldi heillast af hafinu. Hvenær sem færi gafst, fór Albert út á strönd með sjónauka,

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.