Samtíðin - 01.12.1968, Síða 18
10
SAMTÍÐIN
myndavél og teikniblokk. Þar teiknaði
hann fugla, dýr og blóm ásamt kynlegum
klettum og ljósmyndaði auk þess allt, sem
hann komst í færi við. Mest gaman hafði
hann af að ganga eftir strandlengjunni með-
fram Hoxasundi. Þar eru rauðleitir ekki all-
háir klettar, ýmist berir eða grasi grónir,
með keltneskum áletrunum. Þarna reikaði
úrsmiðurinn oft tímunum saman aleinn eða
réri á kænu út á sundið og lét bátinn berast
með flóðinu, meðan hann skyggndist sjálfur
um gegnum sjónauka sinn.
Örskammt þaðan er Skapaflói, hið fræga
herskipalægi Breta í báðum heimsstyrjöld-
unum, enda talinn ein öruggasta flotastöð
heimsins. Þar lá um þessar mundir obbinn
af herflota Bretlands, allar tegundir her-
skipa, m. a. bryndrekinn „Royal Oak“ frá
1914, 29 150 lestir með 1200 manna áhöfn,
frægur eftir sigur Breta í sjóorrustunni við
Jótlandssíðu 31. maí 1916, endurgerður sam-
kvæmt kröfum tímans árið 1938.
Skapaflói er 10X10 km að stærð, um-
kringdur eyjum. Mjó sund með tálmunum
af náttúrunnar völdum, bæði ofan sjávav
klettum og blindskerjum. eru þaðan í allar
áttir til hafs. Eru þrjú þeirra mest: Hoxa-
sund, Holm og Hoy. Öll skipgeng sund úr
Skapaflóa voru jafnvel á friðartímum alsett
geysimiklum kafbátanetum, og var gerð
þeirra og lögn auðvitað algert hernaðar-
leyndarmál. Eftir lok heimsstyrjaldarinnar
fyrri í nóvember 1918 hafði þýzki herskipa-
flotinn verið lokaður inni á flóanum, og þar
sökktu þýzku skipshafnirnar honum 22. júní
1919, samkvæmt skipun þýzka flotaforingj-
ans von Reuters.
ÚRSMIÐURINN gerði sér ákaflega títt um
Skapaflóa og sögu hans. Því var það, að
hann var öllum stundum, er tóm gafst, á
rölti meðfram flóanum og Hoxasundi um 12
ára skeið. Þaðan sá hann vel til ferða brezku
herskipanna, er komu og fóru. Ef leita þurfti
staðgóðra upplýsinga um eitt eða annað, sem
Albert úrsmiður reyndist ófróður um, voru
hæg heimatökin að afla þeirra hjá sjóliðun-
um, sem voru trölltryggir viðskiptavinir
hans. Og úrsmiðurinn lagði það ekki í vana
sinn að afgreiða þá þegjandi. Ef samtal hans
við einhvern þeirra dróst á langinn, gátu
aðrir, sem biðu afgreiðslu í búðinni, fengið
að leggja þar orð í belg! í Kirkwall hafði
enginn maður hraðann á. Þar stóð lífið
kyrrt, meðan uggur og óró æxluðust annars
staðar um heimsbyggðina.
Þegar þeir Hitler og Stalin létu heri sína
hefja leiftursókn úr austri og vestri inn í
Pólland í septemberbyrjun 1939, var heims-
styrjöldin síðari hafin. Hinn 3. september
sögðu Englendingar og Frakkar Þjóðverjum
stríð á hendur. Undanfari þessa hrikalega
hildarleiks var innrás Þjóðverja í Tékkó-
slóvakíu í marz 1938 eftir árangurslausar
friðarviðræður þeirra Hitlers og Chamber-
lains.
Albert Ortel úrsmiður varð fyrstur manna
í Kirkwall til þess að hengja brezka þjóð-
fánann yfir dyr sínar, er stríðið brauzt út.
,,Nú er ég Englendingur, en ekki framar
Svisslendingur“, var haft eftir honum við
það tækifæri.
En Albert gerði meira til að sýna Bret-
um fölskvalausan vinarhug sinn. Hann
keypti til að mynda fleiri stríðsskpldabréf
en nokkur annar maður í Kirkwall. Hann
barmaði sér, svo að margir heyrðu, yfir því
að geta ekki fyrir aldurs sakir gengið í her-
inn. Gat nokkur leyft sér að efast um óskor-
aða hollustu úrsmiðsins við Breta eftir allt
þetta?
Umræðurnar í búð hans snérust nú vitan-
lega því nær einvörðungu um styrjöldina.
Þar var af nógu að taka, ekki sízt vegna ná-
lægðar Skapaflóa. Úrsmiðurinn hafði símal-
andi útvarp í búð sinni. Þar gat hver, sem
vildi, hlustað á stríðsfréttir frá morgni til
kvölds. Síðan hófust fjörugar umræður um
stríðið. Sjóliðarnir frá Skapaflóa gátu lagt
þar óspart orð í belg með skýringum, sem
voru á fárra vitorði.
f októberbyrjun 1939 sáu fiskarar austan
við Skapaflóa. að eitthvað óvenjulegt var að
gerast á Hoxasundi, en það hafði þá verið
lokað öllum einkaskipum um nokkurt skeið.
Hópar lítilla herskipa fóru um sundið allan
sólarhringinn eða lágu þar við akkeri á ýms-
um stöðum. Hvort mundi hér vera um eitt-
hvað enn alvarlegra en venjulegt gæzlustarf
að ræða? Um það var óspart rætt í búð
Alberts úrsmiðs. Fiskari nokkur lét i ljós
grunsemd sína um, að verið væri að huga
að tálmunum í sundinu, enda ekki að ástæðu-
lausu. Úrsmiðurinn spurði, hvort ekki myndi
full þörf á að endurnýja þær öðru hverju,
sjávardýr gætu skemmt girðingarstaurana,