Samtíðin - 01.12.1968, Blaðsíða 20

Samtíðin - 01.12.1968, Blaðsíða 20
12 SAMTÍÐIN (--- ' ‘ ÁTTRÆÐA hllTKMENAIl) Iflarc Ckagall LISTMÁLARINN heimsfrægi, Marc Chagall, er eins og óskasonur íslenzku þjóðarinnar, Jóhannes S. Kjarval, dæmi- gerður starfsmaður, er vinnur enn sem ungur væri og á sér fjölda óleystra við- fangsefna. Við hann hafa birzt mörg merkileg viðtöl. Við tökum hér upp nokkrar setningar meistarans úr einu þeirra, sem við rákumst nýlega á í frönsku hlaði. Chagall opnaði hús sitt fyrir blaða- manninum, eins og hann væri að fram- kvæma helgiathöfn, og mælti: „Afsakið, en ég er ekkert annað en málning á fingrunum. Ég er að koma úr 2000 km ferðalagi, en hvað er það fyrir ekki eldri mann en mig“. Og hann geng- ur léttur í spori á undan gestinum inn í rúmgott anddyri stóra nýja hússins síns á hæðinni skammt frá Saint-Paul-de- Vence i Suður-Frakklandi. Göngulag hans minnir á Chaplin. Svo kveikir hann ljós við glugga, sem er helmingi hærri en hann sjálfur, og segir: „Litið þér á leirmyndirnar mínar og vegginn þarna, sem er allur úr mósaík, og sólina, sem gengur sína leið. Allt þetta hef ég búið til handa konunni minni. Hérna sjáið þér myndir eftir mig. Hér er mynd af bleikri Iiryssu fyrir vagni; hún er frá 1927. Til vinstri á arinhillunni er rismynd af Davíð konungi í granít frá 1952. — En nú þarf ég að kalla á kon- una mína! Það er hún, sem þér þurfið að hafa samtalið við. Það er hún, sem kann að tala við yður, en ekki ég“. Og listmálarinn verður á svipinn eins og full- orðinslegur feiminn drengur. Talið berst að lofti Parísaróperunnar, sem Chagall var fenginn til að skreyta fyrir nokkrum árum eins og frægt er orðið. „Feikna Iieiður fyrir mig“, segir hann, „stórkostlegur!“ Svo verður hann sorg- mæddur á svipinn og segir: „Ég lief sætt miklum árásum fyrir það verk. Það ger- ir afbrýðisemin“. Síðan hýrnar aftur yfir honum, og hann hætir við: „En ráðherra eins og Malraux getur ekki skjátlazt. Feiknarlega mikilhæfur ráðherra. Hann spurði mig ekki einu sinni að því, hvort ég vildi vinna þetta verk. I huga hans var það þegar afráðið fyrirfram. En svo upp- hófust þjáningarnar. Oft neitaði ég að vinna þetta ofhoðslega verk“. Þögn. Chagall virðir fyrir sér eitt af málverk- um sínum á veggnum. „Þér sjáið þetta málverk", segir hann. „Það er fullgert. Ég hef sett nafnið mitt á það. Það er kraftaverk eins og loftið í Óperunni, kraftaverk, sem gerist í hvert skipti, sem ég byrja á nýju málverki, byrja að festa það á hreinan striga, þangað til ])ví er lokið, til síðasta pensildráttar, meðan ég er að setja nafnið mitt á það, ramma það

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.