Samtíðin - 01.12.1968, Blaðsíða 39
SAMTÍÐJN
31
ÞEIR
VITRU SÖGÐU
ÞÓRARINN BJÖRNSSON: „Vandi
kennara er ekki lítill, og' þarf margt til
að vera góður kennari. Þekkingin ein
luekkur skammt, þó að hún sé nauðsyn-
leg. Kennari verður að vera óeigingjarn í
starfi. Hann verður að gefa óspart af
sjálfum sér. Nemendur þurfa helzt að
finna, að hann njóti þess að veita. Þá
verður kennari að vera gæddur SKILN-
INGSGLEÐI, þarf að fyllast heilögum
fögnuði yfir því að skynja og skýra sam-
hengi hlutanna. Og jafnframt þarf hann
að eiga FURÐUGÁFUNA, hæfileikann til
að undrast og dást að margvíslegum fyr-
irbærum tilverunnar. Það gefur máli hans
lit 0g yl. Skilningur hins fullorðna er hér
ehki nógur. Kennari verður einnig að
ei8a hina fersku sýn barnsins, enda eru
ttiargir góðir kennarar á vissan hátt
barnalegir og varðveita lengi barnssál
Slna og- hrifnæmi hennar. Loks er góður
hennari gæddur sálrænum næmleika, sem
skapar samúðarsamband milli kennara og
nemanda. Án slíkra samúðartengsla er
hætt við, að sáðkorn kennarans falli löng-
11111 í ófrjóan hug. Hið vandasama starf
hennarans er mikið ábyrgðarstarf, eitt
hið mesta í þjóðfélaginu. Kennara er trú-
fyrir því, sem er dýrmætast alls:
niannssálum“.
L. LYONS: „Gerðu meira en tóra —
hfðu. Gerðu meira en snerta — þreifaðu
a- Gerðu meira en horfa — athugaðu.
Lerðu meira en lesa — lærðu. Gerðu
nieira en heyra — hlustaðu. — Gerðu
nieira en hluta — gerðu þér ljóst. Gerðu
nieira en hugsa — kryfðu til mergjar. —
Ge,'ðu méira en tala — segðu eitthvað,
Sein máli skiptir“.
Á
BÓKAMARKAÐINUM
Sigurður H. Þorsteinsson: Islenzk frímerki
1969. Með myndum. Tólfta útgáfa (Catalogue
of Icelandic Stamps). 96 bls., ób. kr. 150.00.
Ingólfur Davíðsson og Ingimar Óskarsson:
Garðagróður. Aðallega í Reykjavik, Hafnar-
firði og á Akureyri. Með myndum og lit-
myndum. 2. útg. aukin og endurbætt. 480
bls., ib. kr. 720.00.
Halldór Laxness: Kristnihald undir jökli.
Skáldsaga. 334 bls., ib. kr. 490.00.
Óiafur Jóli. Signrðsson: Litbrigði jarðar. Saga.
(Islenzk úrvalsrit 4), 88 bls., ób. kr. 150.00.
Ólafur Briem: Norræn goðafræði. Kennslubók
með myndum. 3. útg. 134 bls., ób. kr. 160.00.
Jón Thoroddsen: Maður og kona. Skáldsaga.
6. úgáfa. Teikningar eftir Gunnlaug Schev-
ir.g. Steigrímur J. Þorsteinsson bjó til prent-
unar. 263 bls., ib. kr. 275.00.
Guðrún frá Lundi: Gulnuð blöð. Skáldsaga.
252 bls., ib. kr. 325.00.
Bættir eru bænda hættir: Landbúnaðurinn,
saga hans og þróun. Tuttugu og átta þættir
um helztu atriði í sögu og þróun íslenzks
landbúnaðar. Teikningar eftir Halldór Pét-
ursson. 176 bls., ib. kr. 532.00.
Hátíðarljóð 1968. 26 óverðlaunuð ljóð. 55 bls.,
ób. kr. 125.00.
Magni Guðmundsson: Þættir um efnahagsmál.
Ritgerðir og erindi um efnahags- og þjóð-
mál. 115 bls., ób. kr. 177.00.
Ing-ibjörg- Sigurðardóttir: Vegur hamingjunn-
ar. Skáldsaga. 140 bls., ib. kr. 240.00.
Þorleifur Einarsson: Jarðfræði. Saga bergs og
lands. Með myndum. 335 bls., ib. kr. 400.00.
Knut Hamsun: Pan. Skáldsaga. Blöð úr fórum
Tómasar Glahns liðsforingja. Jón Sigurðs-
son frá Kaldaðarnesi þýddi. 230 bls., ib. kr.
270.00.
Útvegum alíar fáanlegar bækur. Kaupið
bækurnar og ritföngin þar, sem úrvalið er
mest. Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bókaverzlun ísafoldar
Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 1-45-27.