Fréttablaðið - 22.02.2010, Page 8
22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
Hljóðið í þingmönnum VG
er þungt þessa dagana
þegar þeir eru spurðir um
heilsufar flokks síns. Fólk
dramatíserar vandann mis-
mikið, en enginn gerir lítið
úr honum. Ofboðslegur titr-
ingur og vaxandi, segir einn
þingmaður. Lausn á Icesave
er talin forsenda þess að um
heilt grói.
Spenna vegna framkvæmdar for-
vals VG í Reykjavík á dögunum og
eftirmál þess eru vísbendingar um
að grunnt sé á því góða í flokkn-
um.
Umræða um meinta andfem-
ínista og laka framkvæmd kosn-
inganna hefur verið áberandi. En
sumir fylgismenn Ögmundar Jón-
assonar, sem fór úr ríkisstjórn
vegna andstöðu sinnar við Icesa-
ve-stefnu Steingríms J. Sigfússon-
ar formanns, telja að fólk Stein-
gríms og Svavars Gestssonar hafi
í forvalinu hefnt sín á Ögmundi
fyrir afstöðu hans í Icesave-mál-
inu. Það hafi barist gegn Þorleifi
Gunnlaugssyni, sem er talinn til
Ögmundarmanna.
Auðvitað þýðir stuðningur við
einn frambjóðanda ekki andstöðu
við samherja annars frambjóð-
anda, en þingmenn flokksins kann-
ast við þessar sögur. Enginn þeirra
sem blaðið ræddi við sagðist þó
hafa tekið þátt í slíkum leik.
Þingmaður VG, hlynntur
Ögmundi, segir augljóst að eitt-
hvað mikið bjáti á í flokknum,
fyrst gengið sé fram af heift gegn
gömlum félaga á þennan hátt.
Annað nýlegt dæmi um titring
í VG eru skrif um ágæti Evu Joly,
þar sem Björn Valur Gíslason,
Steingrímsmegin, og Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, úr Ögmund-
ararmi, hafa verið á öndverðum
meiði.
Þegar vefriti VG, Smugunni, var
lokað á dögunum höfðu þangað
borist nokkrar aðsendar greinar
og harðorðar frá flokksmönnum.
Til dæmis sagðist Sigríður Krist-
insdóttir, fyrrum kjörstjórnarfull-
trúi og VG-félagi til langs tíma,
þar efast um að hún kjósi flokk-
inn í næstu kosningum. Hún tal-
aði um siðleysi í forvalinu og þar
fram eftir götunum.
Svo líkti einn pistlahöfundur,
Freyr Rögnvaldsson, keppinautum
Sóleyjar Tómasdóttur við menn á
borð við Pol Pot, Papa Doc og Pin-
ochet. Þetta væru litlir hræddir
karlar sem þyldu ekki að sjá hug-
rakka unga stúlku sigra.
Stalín kemur einnig að borðinu
Hversu mikið sem það kann að
tengjast femínisima og miðaldra
körlum, verður ekki hjá því litið
að margir flokksmenn telja VG
hafa misst sjónar á lýðræðislegum
hefðum sínum. Þetta var eitt af því
sem flokksmenn gagnrýndu í for-
valinu í Reykjavík. Síðan hafa
komist í hámæli deilur Sóleyj-
ar Tómasdóttur og Hermanns
Valssonar varaborgarfulltrúa,
um hvernig Hermann ætti að
greiða atkvæði. Nú heyr-
ist vopnabrak norð-
an heiða.
Guðbergur Egill
Eyjólfsson, þá for-
maður svæðisfélags
VG á Akureyri, sagði af sér
formennsku á föstudag, óánægður
með hvernig stillt var upp á lista
fyrir norðan, vegna komandi sveit-
arstjórnarkosninga.
Það er í ljósi alls þessa sem
Ögmundur skrifar á heimasíðu
sína á föstudag, og víkur að deilum
fyrir sunnan og norðan. „Það tekur
á þegar vinir deila. Svo lýkur því,“
sagði hann þar og hvatti flokks-
menn til að fylkja liði til sigurs í
sveitarstjórnarkosningum.
En það er ekki sami sáttatónn í
öllum þingmönnum VG. Í svokall-
aðri órólegri deild Ögmundar eru
þingmenn sem segja Steingrím J.
og félaga jaðra við að beita „stal-
ínískri“ reglu um eina flokks-
línu fyrir alla. Þetta smiti út frá
sér: Lilja Mósesdóttir var hvött
á sínum tíma af „vel menntuðum
hópi fólks úr grasrótinni“ til að
segja af sér sem þingmaður, eftir
að hún tók afstöðu gegn Icesave-
samningnum.
Ögmundur óvelkominn?
Svokallað flokkseigendafélag
Steingríms formanns og Svavars
segir á móti að Ögmundur hafi
sjálfur ákveðið að fara úr ríkis-
stjórninni, án samráðs við þing-
flokkinn. Hann hafi meira talað
við blaðamenn. Einn ráðherra
VG segist ekki vita til þess að
Ögmundi hafi verið stillt upp við
vegg í því máli. Ákvörðunin virð-
ist hafa verið Ögmundar.
Þingmaður einn telur að
Ögmundur hafi æ meir tekið ásýnd
fórnarlambs þegar í ljós kom
að hann hefði leikið af sér með
afsögninni og hann fann sig utan
innsta hrings.
Nú sé stjórnin samstæðari og
sterkari og beri deilumál ekki
á torg. Ögmundur njóti því ekki
stuðnings þingflokksins sem hugs-
anlegur ráðherra, enda séu allir
hættir að tala um það sem mögu-
leika að hann snúi aftur. Þvert á
móti fjarlægist hann óðum hring-
iðuna í stjórn flokksins.
Þá segir annar þingmaður erf-
itt að sjá fyrir sér sættir fyrr
en Ögmundur snúi aftur í ríkis-
stjórn.
Iceasave sem forsenda friðar
Einir fimm viðmælendur blaðs-
ins úr þingflokki VG voru spurðir
sérstaklega um hugsanlega lausn
á deilum innan flokksins. Allir
nefndu niðurstöðu í Icesave-mál-
inu sem forsendu friðar.
Einn þingmaður telur hins vegar
að í grunninn snúist deilurnar ekki
um málefni heldur um Steingrím
og Ögmund, tvo leiðtoga flokksins.
Aldrei hafi verið gengið almenni-
lega frá verkaskiptingu milli
þeirra. Það verði þó ekki gert fyrr
en að Icesave loknu.
Ögmundarfólk tekur ekki undir
þetta heils hugar, heldur segja
málið snúast um trúnað við hug-
sjónir. VG sé í þeirri hættu að
fara sama veg og aðrir flokkar,
passi hann ekki upp á lýðræði og
opin skoðanaskipti, sem fyrr segir.
Þetta eigi að vera aðalsmerki
flokksins.
Samkvæmt heimildum hefur á
stundum ekki verið starfsfriður
í æðstu röðum flokksins, vegna
persónulegra deilna. Sérstaklega
hafi staðan verið slæm fram að
30. september, þegar Ögmundur
sagði af sér. Þá hafi hávær átök
á þingflokksfundum komið í veg
fyrir að fólk gæti talað saman.
Opinskáar deilur í fjölmiðlum hafi
síðan reynst mörgum flokksmann-
inum erfiðar, enda sé VG flokkur
sem leggi mikið upp úr samstöðu.
Stjórnarsetan hafi verið afar erfið
að þessu leyti.
Erfiðir hjallar fram undan
Grasrót flokksins, fullyrða sumir
þingmenn, er vonsvikin með stefnu
VG í ríkisstjórn. Það þykir ekki
nægilega vinstrisinnaður bragur
þar á bæ. Aðgerðaleysi hafi komið
í stað frægrar skjaldborgar um
heimilin.
Þá skyldi ekki vanmeta and-
stöðu, sérstaklega landsbyggðar-
fólks, við ESB, og gremju vegna
umsóknar Íslands að því. Stein-
grímur formaður sagði jú annað
fyrir kosningar en að ESB væri á
dagskrá.
En hvorki ESB né Icesave eru
endilega það sem verður erfið-
ast fyrir flokkinn, að sögn þing-
manns. Fram undan er minnst
fimmtíu milljarða niðurskurður
ársins 2011, eftir allt sem á undan
er gengið. Þá fyrst þurfi vinstri
græn að taka á honum stóra sínum
og standa saman.
Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er notað
við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lyfja sem
innihalda claritrómýcín hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lyfja sem innihalda atazanavír. Varúð:
Gæta skal sérstakrar varúðar: Ef verulegt og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar eru við að
kyngja, við blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar- eða nýrnastarfsemi er skert. Börn og unglingar undir 18 ára aldri
eiga ekki að nota lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða
hjá lækni áður en lyfið er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem þreyta, svimi og sjón- og
heyrnartruflanir, geta komið fram og geta haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengar
aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða, vindgangur, ógleði, uppköst, svefntruflanir, sundl, höfuðverkur eða þreyta.
Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við áframhaldandi meðferð. Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir
þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á sólarhring. Ef einkennin hverfa ekki eftir að Omeprazol Actavis hefur verið notað í
14 daga skal hafa samband við lækninn vegna þess að einkennin gætu verið af öðrum
orsökum. Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka fyrir
máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja
sýruþolnu hylkin. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið lyfið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Janúar 2009.
Af litlum neista…
A
Omeprazol Actavis
- öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði
20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki
SGS krefst...
... þess að stöðugleikasáttmálinn
standi! Efling atvinnulífsins verði
algjört forgangsmál.
Nánari upplýsingar á www.asi.is
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
VG er í vanda statt
FRÉTTASKÝRING: Innanflokksátök hjá Vinstri grænum
FRÉTTASKÝRING
KLEMENS ÓLAFUR ÞRASTARS.
klemens@frettabladid.is