Fréttablaðið - 22.02.2010, Side 39
MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 19
Fyrsta lífvarðanámskeið á Íslandi
Öryggisvarðaskólinn
14 til 28 Nóvember 2009
Sími: 698 1666
k li i
Lífvarðanámskeið á Íslandi í mars
Terr security býður upp á
starfsmöguleika á heimsvísu
Listdans ★★★★★
Endalaus
Íslenski dansflokkurinn
Dans og textahöfundur: Alan
Lucien Öyen. Tónlist: Ólafur Arn-
alds. Ljós: Aðalsteinn Sigurðsson.
Búningar: Elín Edda Árnadóttir.
Dansarar: Aðalheiður Halldórs-
dóttir, Cameron Corbett, Guð-
mundur Elías Knudsen, Hannes
Þór Egilsson, Hjördís Lilja Örnólfs-
dóttir, Katrín Á. Johnson, Katrín
Ingvadóttir, Lovísa Ósk Gunnars-
dóttir, Steve Lorenz.
Er ástin spurning um orð eða fram-
kvæmd? Eitthvað á þessa leið hafa
þau spurt sig, ungu listamennirn-
ir úr Íslenska dansflokknum sem
settu saman sýninguna Endalaus
sem nú er verið að sýna í Borgar-
leikhúsinu. Ástin getur verið frasi,
leiður frasi, sjálfsagður hlutur,
hversdagslegt hjal eða ofasfengin
upplifun. Að dansa og á sama tíma
sýna grafík á veggjum sem verð-
ur til um leið og orð og hreyfing-
ar auk undirliggjandi og stundum
ögrandi tónlistar blossar upp, er
það sem við fáum að sjá. Liðugir
líkamar sem segja sögur og sveigj-
ast eftir höggum andstæðinga á
fiman og flinkan máta.
Höfundar sýningarinnar eru
þeir Alan Lucien Öyen og Ólafur
Arnalds. Alan Lucien Öyen hefur
unnið til fjölda verðlauna fyrir
verk sín. Hann er danshöfundur frá
Noregi sem leggur áherslu á ríkar
tilfinningar og ljóðrænu í verkum
sínum. Handritið er alfarið hans,
en dansarar tala hér jöfnum hönd-
um og gerir það verkið aðgengi-
legra kannski þeim sem óvanir eru
hreinræktuðum dansi. Að vísu er
hér talað á ensku, en hún er svo
skýr þessi enska að allir ættu að
skilja. Ólafur Arnalds semur tón-
listina og hefur hann getið sér gott
orð fyrir verk sín bæði í samvinnu
við Sigur Rós og eins einn og sér.
Hann blandar saman klassík og
poppi og hér er hann svolítið ein-
tóna en um leið ögrandi og tónarn-
ir eiga mjög vel við undirliggjandi
erfiðleika fólks sem komið er í
kastþröng tilfinninga og orðasam-
skipta. Sófaborðið er á milli okkar
eða kemur upp á milli okkar, eitt-
hvað á þá leið mælir ein kona, og
samtímis birtist sófaborð reynd-
ar með öðrum húsgögnum teikn-
að snilldarlega á vegg og urgandi
tónlist fylgir með. Þetta er sýning
sem unun er að því að horfa á sama
hvort heldur er ísmeygilegur dans
eða smart grafík.
Dansararnir voru hver öðrum
betri og skemmtilegt að sjá hversu
margbreytilegur hópurinn er, það
eru greinilega ekki stærðarstaðl-
ar í þessum dansflokki, allt í lagi
að vera lítill og fínt að vera stór.
Einstök atriði báru af eins og sam-
skipti hjóna sem greinilega eru
búin með kvótann í sínu samlífi
og barátta upp á líf og dauða er
sýnt á ofurfiman hátt af líkömum
sem virtust breytast í gúmmí og
almennt notkunin á rýminu sem
stækkaði upp í allsherjar flæði og
niður í smæstu kompur með töfr-
um ljósanna. Góð sýning fyrir alla.
Elísabet Brekkan
Ástin verður aldrei þreytt
FRÁBÆR SÝNING Unun er að horfa á sýningu Íslenska dansflokksins, Endalaus.
Eysteinn Guðni Guðnason frum-
sýnir heimildarmynd sína, Hring-
urinn II, 2. mars, nákvæmlega 25
árum eftir að Friðrik Þór Friðriks-
son frumsýndi mynd sína Hring-
urinn. Sú mynd var tekin upp í bíl
sem ók hringinn í kringum landið
án þess að leikarar kæmu við sögu
og gerði Eysteinn slíkt hið sama
síðasta haust.
Myndin verður sýnd á hvor
sínum húsveggnum fyrir utan
heimili Eysteins á Laugaveg-
inum þar sem óprúttnir aðilar
skvettu nýverið rauðri málningu.
„Ég er búinn að hafa augastað á
þessum veggjum sem eru hvor
á móti öðrum því þetta er mynd
með tveimur römmum, einum að
framan og einum aftan á,“ segir
Eysteinn, en myndin var tekin
upp þannig að einni myndavél var
beint fram veginn og annarri aftur
á bak meðan á ferðalaginu stóð.
Einn rammi var tekinn upp á tíu
metra fresti. „Þetta er óhefðbund-
in mynd og þar sem bíóin bjóða
ekki upp á tvö tjöld í sama saln-
um ákvað ég að finna aðra leið til
að sýna hana. Þetta er kjörin stað-
setning á Laugaveginum og mér
varð hugsað til hennar. Ég var að
hugsa að það þyrfti að fara að mála
þessa veggi og svo skvetta þeir
þessari málningu þarna, þannig að
það var alls ekkert svo slæmt. Það
gaf mér tilefni til að mála veggina
aftur,“ segir hann.
Eysteinn segist ekki vita hverjir
voru þarna að verki en tekur fram
að hann sé alls enginn útrásarvík-
ingur. Hann var fljótur að mála
yfir skvettuna, enda segir hann
það afar mikilvægt. „Það er tvennt
sem maður græðir á því. Maður
tekur burtu tilganginn hjá krotur-
unum og kemur í veg fyrir áfram-
haldandi krot, því ef það kemur
eitt þá laðar það að sér fleiri.“ - fb
Í fótspor Friðriks Þórs
EYSTEINN GUÐNASON Kvikmyndagerðar-
maðurinn ungi sýnir heimildarmynd
sína, Hringurinn II, 2. mars næstkom-
andi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI