Fréttablaðið - 22.02.2010, Síða 40

Fréttablaðið - 22.02.2010, Síða 40
20 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is KÖRFUBOLTI „Þetta var alveg óvart,“ sagði María Lind Sigurðardóttir hógvær eftir úrslitaleik Subway- bikars kvenna á laugardaginn en óvænt og frábær frammistaða Maríu tryggði henni útnefninguna besti maður úrslitaleiksins og átti stóran þátt í að Haukakonur unnu bikarinn. María skoraði 20 stig á 23 mínút- um í leiknum, hitti úr 9 af 12 skot- um og tók 7 af 9 fráköstum sínum í sókninni. „Þetta er örugglega besti leik- urinn sem ég hef spilað á ævinni og ég held að stigametið mitt hafi verið 18 stig,“ sagði María og bætti við: „Það er oft sem litla liðið kemur og vinnur svona leiki. Þannig að við vissum að það var ekkert að marka einhverjar spár. Við vissum það að þeir sem berjast meira, þeir vinna,“ sagði María. Kvennalið Keflavíkur náði ekki að fylgja eftir frábærum leikjum liðsins á árinu 2010 og urðu enn á ný að yfirgefa höllina með silfrið um hálsinn alveg eins og 2007 og 2009. Haukakonur unnu fráköstin í fyrri hálfleik en þær hreinlega rústuðu Keflavíkurliðið í fráköst- um í þeim seinni þar sem liðið tók meira að segja þrjú fleiri sókna- fráköst en Keflavík tók af varna- fráköstum. Haukar fengu 31 stig eftir sóknafráköst í leiknum, þar af skoruðu þær fyrstu tólf stig sín í lokaleikhlutanum eftir að hafa tekið sóknafráköst í sókninni. Hér lá munurinn í leiknum enda erf- itt að vinna leik þegar þú tekur 38 færri skot á körfuna en andstæð- ingurinn. „Þetta var ömurlegt. Þær rústa okkur í fráköstunum og þar liggur bara munurinn. Við vissum alveg að þær væru sterkar í fráköstun- um en mínar stelpur stigu bara ekki út og vildu bara ekki vinna þennan leik,“ sagði Jón Halldór Epvaldsson, þjálfari Keflavíkur, eftir leikinn. Liðin skiptust á um að hafa for- ustuna í fyrri hálfleik en Haukar voru einu stigi yfir í hálfleik, 46- 45, eftir að Heather Ezell skoraði lokakörfu hálfleiksins eftir að hafa tekið enn eitt sóknafrákastið. Haukarnir komust mest fimm stigum yfir í þriðja leikhluta en munurinn var aðeins tvö stig fyrir lokaleikhlutann, 62-60. Keflavík- urkonur töpuðu hverju frákast- inu á fætur öðru í upphafi fjórða leikhlutans og Haukarnir gengu á lagið, gerðu út um leikinn á meðan og tryggðu sér bikarinn. „Þetta var frábær barátta hjá stelpunum í dag. Þetta er það sem skilur á milli í svona leikjum þegar getumunurinn er ekki mikill. Við vissum alveg hvað við getum og við viljum vera með stóru liðun- um. Við þurfum að minna á okkur og það var bara það sem við gerð- um,“ sagði Henning Heningsson, þjálfari Hauka. „Við lögðum upp með það að vörnin myndi skila þessu. Við vorum með ákveðna taktík í vörn- inni sem átti að geta tekið svolítið frá þeirra leik og brotið þeirra leik svolítið upp. Það heppnaðist mjög vel í seinni hálfleik en ekki eins vel í þeim fyrri. Við fórum yfir það í hálfleik og náðum að laga þetta,“ sagði Henning og hann gat ekki annað en hrósað hinni ungu Maríu Lind Sigurðardóttur í hás- tert. „María Lind er mjög góður leik- maður. Hún hefur kannski ekki fengið öll þau tækifæri sem hún hefur átt skilið en það er ekki hægt að segja annað en að hún hafi notað það tækifæri sem hún fékk í dag. Þetta var frábær frammi- staða hjá henni. Við vitum alveg hvað María getur og þegar hún setur skotin sín ofan í körfuna þá stoppar hana enginn,“ sagði Henn- ing. ooj@frettabladid.is María spilaði leik lífsins Haukakonur urðu bikarmeistarar í fimmta skiptið eftir 83-77 sigur á Keflavík í Höllinni á laugardaginn. Keflavíkurkonur áttu ekki svar við baráttuglöðum Haukastelpum og bikarsilfrið fór til Keflavíkur í þriðja sinn á fjórum árum. BIKARINN Á LOFTI Telma Björk Fjalars- dóttir, fyrirliði Hauka, með bikarinn í hendi og félaga í liðinu sér við hlið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL MIKIL GLEÐI Í LEIKSLOK María Lind Sigurðardóttir og Henning Henningsson í farar- broddi í fögnuði Haukaliðsins í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KÖRFUBOLTI Keflavíkurstelpurn- ar Birna Valgarðsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir töluðu báðar um að leikmenn liðsins hefðu verið hræddar við að tapa. „Þetta er þvílíkt svekkelsi en við skitum upp á bak í fráköstum. Þegar við erum komnar í svona spennandi bikarúrslitaleiki þá förum við alltaf inn í skelina ef það kemur smá áhlaup á okkur,“ sagði Birna og bætti við: „Það er orðið frekar fúlt að fá alltaf silfur í Höllinni. Þetta átti ekki að fara svona en við vorum bara hræddar við að tapa í fjórða leikhlutanum og því fór sem fór,“ sagði Birna sem var best í liði Keflavíkur. „Við spiluðum ekki nógu vel saman og við létum þessa litlu hluti fara í taugarnar á okkur. Haukarnir voru alltaf skrefi á undan og tóku líka örugglega tuttugu fleiri fráköst heldur en við,“ sagði Pálína eftir leikinn en hún var frákastahæsti leikmaður Keflavíkur þrátt fyrir að vera lít- ill bakvörður. - óój Keflavíkurkonur eftir leik: Hræddar við að tapa leiknum SVEKKTAR Keflavíkurkonur fengu silfrið annað árið í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Subwaybikar kvenna Haukar-Keflavík 83-77 (46-45) Stig Hauka: Heather Ezell 25 (15 frák., 11 stoðs., 5 stolnir), María Lind Sigurðardóttir 20 (9 frák.), Ragna Margrét Brynjarsdóttir 11, Telma Björk Fja larsdóttir 10 (11 frák.), Kiki Jean Lund 9 (5 frák., 5 stoðs.), Guðrún Ósk Ámundardóttir 7, Helena Brynja Hólm 1. Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 22, Kristi Smith 20, Bryndís Guðmundsdóttir 19 (5 frák. 5 stoðs.), Svava Ósk Stefánsdóttir 10, Rannveig Randversdóttir 3, Pálína Gunnlaugsdóttir 3 (7 frák., 5 stoðs.). Tölur úr leiknum Fráköst: Haukar +19 (51-32) Sóknafráköst: Haukar +23 (27-4) Stig af bekk: Haukar +11 (21-10) Stig úr teig: Haukar +4 (32-28) 3ja stiga körfur: Jafnt (7-7) Subwaybikar karla Snæfell-Grindavík 92-81 (44-41) Stig Snæfells: Sean Burton 36, Sigurður Þorvaldsson 14, Jón Ólafur Jónsson 12, Hlynur Bæringsson 10 (19 frák.), Martins Berkis 9, Emil Þór Jóhannsson 6, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 3, Sveinn Arnar Davíðsson 2. Stig Grindavíkur: Brenton Joe Birmingham 17, Þorleifur Ólafsson 16, Darrell Flake 16 (9 frák.), Arnar Freyr Jónsson 15 (11 stoðs.), Guðlaugur Eyjólfsson 9, Páll Axel Vilbergsson 4, Ómar Örn Sævarsson 3 (10 frák.), Ólafur Ólafsson 1. Tölur úr leiknum Fráköst: Snæfell +7 (40-33) Sóknafráköst: Snæfell +11 (14-3) Stig af bekk: Grindavík +12 (26-14) Stig úr teig: Grindavík +20 (44-24) 3ja stiga körfur: Snæfell +8 (13-5) BIKARÚRSLITIN KÖRFUBOLTI Sean Burton átti frá- bæran leik með Snæfelli í bikar- úrslitaleiknum á laugardaginn og skoraði alls 36 stig í leiknum. „Mér leið vel í þessum leik. Ég kom inn í leikinn með það mark- mið að stjórna hraðanum í leikn- um og koma félögunm mínum í Snæfellsliðinu inn í leikinn. Skot- in mín fóru að detta þannig að ég hélt bara áfram að skjóta,“ sagði sagði Sean sem skoraði 16 af stig- um sínum í þriðja leikhlutanum. „Þetta var jafn leikur og ég reyndi bara að gera það sem ég taldi að myndi skila okkur sigri. Ég vissi hvað það yrði æðislegt að vinna þennan leik. Í þriðja leik- hlutanum þurfti eitthvað að ger- ast hjá okkur, ég reyndi að vera ákveðnari og skotin mín duttu,“ sagði Sean Burton. - óój Sean Burton hjá Snæfelli: Ég hélt bara áfram að skjóta 36 STIG Sean Burton. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Haukakonan Guðrún Ósk Ámundadóttir var eini bikarmeistarinn í Höllinni um helgina sem náði því að vera bikarmeistari annað árið í röð. Guðrún var einnig með KR-liðinu sem vann líka Keflavík í bikarúrslitaleiknum í fyrra. „Ég hef aldrei tapað í Höllinni og þetta er alveg dásamlegt,“ sagði Guðrún eftrir leikinn en hún varð einnig bikarmeistari með Haukum 2005 og 2007 og hefur því fengið fjögur bikargull á síðustu fimm árum. „Vörnin skilaði okkur algjörlega þessum sigri. Við vorum að kasta okkur á alla bolta og við stóðum allar saman. Við hjálpuðum hver annarri ef einhver missti leikmann framhjá sér og þá var alltaf komin önnur í staðinn. Við vorum bara frábærar í þessum leik og við trúðum þessu allan tímann,“ segir Guðrún sem skoraði 7 stig í leiknum. Guðrún hrósaði mikið hinni 21 árs gömlu Maríu Lind Sigurðardóttur sem var óvænt maður leiksins. „María var stórkostleg í þesum leik. Hún var sjóð- andi heit, skaut með þvílíku sjálfstrausti og það fór allt ofan í hjá henni,“ segir Guðrún en það voru yfirburðirnir í fráköstunum sem áttu einnig mikinn þátt í sigrinum. „Við sýndum það í fráköstunum að við ætluðum að vinna þennan leik,“ segir Guðrún sem komst í hóp með Hönnu Kjartansdóttur yfir þær sem hafa orðið bikarmeistarar með tveimur félögum tvö ár í röð. Hanna vann bikarinn með Haukum 1992 og Keflavík 1993. „Þessi fer í safnið með hinum þremur og það er alltaf ótrúlega skemmtilegt að vinna bikarinn í Höllinni,“ sagði Guðrún að lokum. HAUKAKONAN GUÐRÚN ÓSK ÁMUNDADÓTTIR: BIKARMEISTARI Í FJÓRÐA SKIPTIÐ Á FIMM ÁRUM Sýndum það í fráköstunum að við ætluðum að vinna > Heather fyrst til að ná þrennu í bikar- úrslitaleik Haukakonan Heather Ezell varð fyrsta konan til þess að vera með tvöfalda þrennu í bikarúrslitaleik kvenna þegar hún skoraði 22 stig, tók 15 fráköst og gaf 11 stoð- sendingar í 83-77 sigri Hauka á Keflavík um helgina. Helena Sverrisdóttir (2005) og Limor Mizrachi (1999) höfðu komist næst því að ná þrennunni í Höllinni en báðar vantaði þær aðeins eitt frákast, Helena var með 27 stig og 11 stoðsend- ingar en Limor skoraði 31 stig og gaf 10 stoðsendingar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.