Fréttablaðið - 08.03.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 08.03.2010, Blaðsíða 19
FASTEIGNIR.IS 8. MARS 201010. TBL. Fasteignasalan Heimili hefur í einkasölu vandað einbýlishús við Hamravík í Grafarvogi. H úsið er glæsilega hannað, unnið og innréttað. Það er á tveimur hæðum með innbyggðum bíl-skúr og er skráð 237,9 fm. Íbúðarrými er 213,3 fm og bílskúr 24,6 fm. Húsið stendur á 660 fm lóð við óbyggð svæði. Út- sýni er fagurt og skemmtilegar gönguleiðir í ósnertri náttúru í næsta nágrenni. Í bakgarðinum er stór afgirt timburverönd með heitum potti. Svefnherbergin eru fjögur og fjórar stofur. Á fyrstu hæð eru anddyri, gestasalerni, bílskúr, eldhús og stof- ur. Á miðpalli er sjónvarpsstofa , stórt þvottahús með góðri innréttingu og geymslulofti, sem er ekki inni í fermetratölu hússins, og stórt vinnuherbergi. Af mið- palli er gengið út á veröndina í bakgarðinum. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og setustofa og frá henni mikið útsýni. Litlar svalir sem snúa í vestur. Allar innréttingar, gólfefni og tæki eru af vand- aðri gerð. Flísar eru í forstofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum. Parket er á öllum öðrum gólfum og allar innréttingar úr hlyn. Falleg fullfrágengin lóð og upphitað bílaplan. Stutt í ósnerta náttúruna Heitur pottur er í bakgarðinum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.