Fréttablaðið - 08.03.2010, Blaðsíða 48
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nýtt: innbyggð videoupptaka
Nýtt: FM- útvarp
Nýr
iPod nano
1 Steingrímur íhugaði að segja
af sér eftir synjun forsetans
2 Liggur þungt haldinn eftir
eldsvoða
3 Lilja hafnar ásökunum
Jóhannesar
4 Segir sólbaðsfíkn dauðans
alvöru
5 Stærstu eigendur Byrs
„misnotuðu aðstöðu sína“
Vill verða dagskrárstjóri
Umsóknarfrestur fyrir stöðu
dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins
rann út í gærkvöldi. Á föstudag
greindi Fréttablaðið frá því að
Björn Þórir Sigurðsson, mark-
aðsstjóri Morgunblaðsins, hefði
sótt um stöðuna og tiltók einnig
nöfn nokkurra reynslubolta sem
orðaðir hafa verið við eitt valda-
mesta starfið í íslensku sjónvarpi.
Felix Bergsson, leikari, útvarps- og
sjónvarpsmaður, greindi svo frá
því seint í gærkvöldi á
Facebook-síðu sinni
að hann hefði sótt um
starfið. Hann hefur
meðal annars verið spyrill
í spurningaþættinum vin-
sæla Popppunkti á RÚV.
- kg
Flugelds-fögnuður
Einhverjir flissuðu í gær yfir frétt á
vefsíðu BBC um þjóðaratkvæða-
greiðsluna á laugardag, en fyrir-
sögn fréttarinnar var „Ísland fagnar
höfnun Icesave-samningsins“. Til
að undirstrika hinn mikla fögnuð
Íslendinga sem rætt var um fylgdi
með fréttinni myndskeið af rakettu
sem sprakk á himni yfir ótilgreind-
um stað á Íslandi. Höfðu sumir
á orði að myndatökumanni BBC
hefði líklega tekist að festa á filmu
eina flugeldinn sem skotið var upp
af þessu tilefni.
Vitlausar spurningar
Þráinn Bertelsson lýsti því yfir í
síðustu viku að 5 prósent þjóðarinn-
ar væru fábjánar. Mörgum þykir það
hóflega áætlað hjá þingmanninum,
en þrátt fyrir það vöktu ummælin
mikla athygli. Í kjölfarið bárust
Fréttablaðinu tölvupóstssamskipti
sem áttu sér stað áður en ummælin
féllu. Í þeim spyr kjósandi Þráin
um töf á störfum allsherjar-
nefndar og hann svarar að
bragði að spurningin sé
sú vitlausasta sem hann
hafi fengið áður en hann
bendir á formann
nefndarinnar. - afb