Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Bergstaðastræti 4 – 101 Reykjavík – Sími: 562-0335
Gullsmíðaverkstæði Árna Höskuldssonar
lokar 13. mars næstkomandi
Opnunartími 13:00 til 18:00 virka daga
laugardaginn 13. mars 11:00 til 17:00
40% afsláttur af öllu
Mikið úrval skartgripa
www.heilsuhusid.is
EBBA GUÐNÝ kennir hvernig búa
má til hollan og góðan mat fyrir
börn frá 6 mánaða aldri.
Miðvikudaginn 17. mars
í Heilsuhúsinu Lágmúla kl: 20. - 22.
Verð kr. 3500 kr. Upplýsingar
& skráning í síma 694 6386
og ebbagudny@internet.is
Hvað á ég að
gefa litla barninu
mínu að borða?
Patti húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
fusite 6731 leðursett 3+1+1
199.95
0 kr
Verð á
ður
399.90
0 kr
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n ritun
í s ím a 5670300
ÍSLANDSMÓT Í KRAFTLYFTINGUM 2010
fer fram laugardaginn 13. mars. Umsjónaraðili er Kraft-
lyftingafélag Mosfellsbæjar en mótið er í fyrsta sinn
haldið undir íþrótta- og lyfjaeftirlitslögsögu Kraftlyftinga-
nefndar ÍSÍ og Lyfjaeftirlits ÍSÍ. www.kraft.is
„Er þetta nú eitthvað til að tala
um?“ svarar Sólbjört hæversk,
þegar blaðamaður spyr hvernig
hún komi því eiginlega í verk að
æfa tólf sinnum í viku. Hún kveðst
bara skipuleggja tímann vel, byrjar
daginn með þolæfingum eða heitu
jóga og er svo að púsla dagskránni
fram eftir viku.
Heitt jóga er nýjasta líkamsrækt-
in sem Sólbjört leggur stund á og
finnst það gott mótvægi við þol-
fimina. „Þetta eru góðar teygjur og
styrktaræfingar. Ég var til dæmis
með verk í bakinu, sem mátti örugg-
lega rekja til brjóskloss, en hef ekki
fundið fyrir honum eftir að ég byrj-
aði í jóga. Þannig að ég er heilluð af
þessu, í bili.“
Ekki segist Sólbjört hafa æft
íþróttir á sínum yngri árum, þótt
hún hafi verið fjörugur krakki og
alla tíð þótt gott að hreyfa sig. „Ég
tók þátt í þessum útileikjum sem
voru vinsælir á mínum uppvaxtar-
árum, eins og hornabolta og fall-
inni spýtu. Krakkarnir í hverfinu
söfnuðust bara saman og léku sér
á meðan tími gafst, þetta var ekk-
ert skipulagt af fullorðnum eins og
tíðkast nú.“
Sólbjört fór síðar að stunda lík-
amsrækt um það leyti sem slíkt
fór fyrst að ryðja sér til rúms hér-
lendis á sjöunda áratugnum og ráku
margir upp stór augu þegar fréttist
að hún væri farin að stunda leik-
fimi. „Viðhorfið þá var allt annað
en í dag. Fólki fannst þetta fráleit
hugmynd, skildi ekki hvaða erindi
svona grönn manneskja eins og ég
átti í leikfimitíma sem kvenfélög-
in skipulögðu fyrir konur. Nú þykir
hins vegar sjálfsagt mál að fara í
ræktina.“
Sólbjört hefur alltaf verið heilsu-
hraust en segist þó ekki geta rakið
það beint til líkamsræktar. Vissu-
lega finni hún þó á sér mun eftir
allar æfingarnar, sérstaklega hvað
varðar aukið þol og styrk. „Ég hef
verið svo lánsöm að eiga góðri
heilsu að fagna sem er ekki sjálf-
sagt mál. Heilsa er ekki eitthvað
sem maður getur keypt, heldur á
og getur haldið, meðal annars með
góðum æfingum.“ roald@frettabladid.is
Æfir tólf sinnum í viku
Það er engum ofsögum sagt að Sólbjört Aðalsteinsdóttir sé mikill íþróttaiðkandi. Ef hún er ekki á vellin-
um að spila tennis, stunda þolfimi eða lyftingar iðkar hún jóga af krafti og dansar samkvæmisdansa.
Tennis er aðeins
ein af mörgum
íþróttum sem
Sólbjört leggur
stund á.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
Miðvikudaga
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447