Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 54
38 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. áfall, 6. verkfæri, 8. kk gælunafn, 9. eldsneyti, 11. tveir eins, 12. samfokin fönn, 14. mánuður, 16. pípa, 17. iðka, 18. rell, 20. stöðug hreyfing, 21. ögn. LÓÐRÉTT 1. strit, 3. líka, 4. munúðlífi, 5. að, 7. læstur, 10. þunnur vökvi, 13. útsæði, 15. lokka, 16. egna, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. lost, 6. al, 8. gæi, 9. kol, 11. ll, 12. skafl, 14. apríl, 16. æð, 17. æfa, 18. suð, 20. ið, 21. arða. LÓÐRÉTT: 1. baks, 3. og, 4. sællífi, 5. til, 7. lokaður, 10. lap, 13. fræ, 15. laða, 16. æsa, 19. ðð. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Karl Óskarsson. 2 Framsóknarflokksins. 3 Manchester United. „Þetta er eitthvað sem ég hef gengið með í maganum í tíu ár og núna fannst mér rétti tíminn til að láta verða af þessu,“ segir Selma Björnsdóttir sem hyggst flytja sig um set og setjast að í menningarborginni Bristol á suð- vesturströnd Englands. Þar ætlar Selma að setjast á skólabekk og taka meistaranám í drama-leikstjórn við Bristol Old Vic Theater School þar sem ekki ómerkari menn en Óskars- verðlaunahafinn Daniel Day Lewis og stórleik- arinn Pete Postlethwaite hafa numið sín fræði. Selma segir margt hafa áhrif á þá ákvörðun sína að velja Bristol. Þar sé blómleg menning, leikhúslífið sé lifandi og ekki mega gleyma tón- listarsenunni sem hefur alið af sér listamenn á borð við Portishead og Massive Attack. „Mikil- vægast er samt að ég er fjölskyldumanneskja og Bristol er engin London. Það hafa nokkrir Íslendingar stundað nám við þennan skóla, fólk eins og Magnús Geir Þórðarson, og þeir hafa allir talað ákaflega vel um þennan skóla,“ segir Selma og bendir á að skólinn sé lítill og hafi orð á sér fyrir að vera heimilislegur. „Og svo er hann staðsettur í fjölskylduvænu hverfi sem skiptir mig miklu máli.“ Að sögn Selmu líst fjölskyldunni bara nokkuð vel á flutningana en hún heldur ein utan í næsta mánuði til að finna hentuga íbúð fyrir þau fjög- ur. Námið sjálft er fimmtán mánuðir og að sögn Selmu líst hinum sjö ára gamla Gísla Birni langbest á þessa ráðstöfun. „Hann er farinn að æfa sig að segja Manchester United. Hann fær að sjá Wayne Rooney með eigin augum og það er nóg fyrir hann,“ segir Selma. - fgg Selma Björnsdóttir á skólabekk í Bristol FLYTUR ÚR LANDI Selma Björnsdóttir er komin inn í Bristol Old Vic Theater School og verður þar næstu fimmtán mánuði við nám. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Eiríkur Jónsson, landsþekktur sundáhugamaður og ritstjóri Séð og Heyrt, fékk það í gegn að hit- inn á gufunni í Sundhöll Reykja- víkur var hækkaður. Hitastigið er nú á milli 45 og 47 gráður, að sögn Katrínar Irvin, rekstrarstjóra Sundhallarinnar. Fréttablaðið greindi frá óánægju Eiríks með hitastig guf- unnar en hann skrifaði á bloggi sínu að hitastigið þar inni væri eins og heima í stofu. Katrín sagði þá að gufan væri rétt stillt en fleiri sundlaugargestir settu sig í samband við Sundhöllina og höfðu sömu sögu að segja. „Við viljum auðvitað koma til móts við gesti og hlustum á ábendingar frá þeim,“ útskýrir Katrín. „Þetta hefur aðeins verið í umræðunni en nú skilst mér að sundlaugargestir séu sáttir við hitastigið.” Eiríkur var að vonum ánægð- ur með ákvörðun rekstrarstjór- ans um að hækka hitastigið þegar Fréttablaðið hafði samband við hann. „Ég fékk þessi skilaboð sjálfur frá henni í gegnum vinnu- félaga minn hérna uppi á Birtíngi. Þetta var það eina í stöðunni, að hækka hitann. Annars er eina lausnin á þessu máli að reisa and- dyri. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að hitinn leki út þegar fólk opnar dyrnar,“ sagði Eirík- ur sem hugðist fara og kynna sér nýja hitastigið í gærkvöldi. -fgg Sundhöllin lætur undan kröfum Eiríks NÁ SÁTTUM Katrín Irvin hefur nú hækkað hitastigið á gufubaðinu í Sundhöll Reykjavík- ur en Eiríkur Jónsson hafði kvartað undan hitastiginu á blogginu sínu. Fjölmenni var á stuttmyndahátíð- inni Northern Wave á Grundarfirði um helgina. Valdís Óskarsdóttir hélt fyrirlestur og þingmaðurinn Lilja Mósesdóttir tók þátt í fiskisúpu- keppninni sem landsliðskokkurinn Hrefna Rósa Sætran dæmdi. Hún þótti hörð í horn að taka en á sama tíma sanngjörn. Leikstjórinn Ragnar Bragason sást einnig á svæðinu, sem og rapparinn Sesar A og varaborgar- fulltrúinn Marsibil Sæmundar- dóttir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins mun hljómsveitin Amadou & Mariam frá Malí spila hérlendis í vor. Hljómsveitin samanstendur af hjónunum Amadou Bakayoko og Mariam Doumbia sem eru bæði blind. Þau hafa unnið með fjölda þekktra tónlistarmanna, þar á meðal Damon Albarn úr Blur sem tók upp síðustu plötu þeirra og David Gilmour úr Pink Floyd. Á síðasta ári hituðu þau upp fyrir Blur og Coldplay auk þess sem þau spiluðu fyrir Barack Obama Bandaríkjaforseta þegar hann fékk afhent Nóbels- verðlaunin í Ósló í desember. Jóhannes Haukur Jóhannesson fékk óvænta gjöf frá starfsfólki nærbuxnaverslunarinnar Joe Boxer á sýningu Hellisbúans nýverið. Það færði honum heilan poka af nærbuxum. Jóhannes týndi heilla- nærbuxunum sínum í miðborg Reykjavíkur ekki alls fyrir löngu en ætti nú að geta fundið sér nýjar til að taka við því hlutverki þótt sýningum á Hellisbúanum fari nú fækkandi en þeim lýkur 23. apríl. - afb, fb, fgg FRÉTTIR AF FÓLKI „Það væri slæmt fyrir bæinn og tónlistarlífið að missa staðinn,“ segir Haukur Tryggvason, veit- ingamaður á Græna hattinum á Akureyri. Framtíð Græna hattsins er óljós eftir að leigusamningi við staðinn var sagt upp. Áformað er að opna annars konar skemmtistað í húsinu, en erindi þess efnis liggur fyrir hjá skipulagsstjóra Akureyrar. Græni hatturinn hefur verið einn vinsælasti tónleikastað- ur landsins undanfarin misseri. Á síðasta ári voru 130 tónleikar haldnir á staðnum. „Það hefur gengið alveg ótrúlega vel,“ segir Haukur og bætir við að staður- inn sé alltaf að sækja í sig veðr- ið. „Ferðafólk er farið að stíla ferðirnar inn á dagskrána. Stór- ir hópar hafa samband í hverri viku og spyrja hvað sé að gerast á Græna hattinum.“ Veitingastaðnum Friðriki V. var einnig lokað á dögunum, en eins og Græni hatturinn var hann landsþekktur. Tónlistarmaðurinn Pálmi Gunnarsson býr á Akur- eyri og segir að Græni hatturinn hafi verið heimastaður tónleika- halds í bænum. „Það er hundleið- inlegt að horfa upp á, þegar verið er að mjaka upp ákveðnu menn- ingarstigi, að það nái upp að vissu marki og svo sé skellt í lás. Það er alveg glatað,“ segir Pálmi ómyrk- ur í máli. „Það er skelfilegt helvíti ef þetta er niðurstaðan. Það eina sem maður getur vonað er að það verði fundinn annar staður til þess að byggja upp eitthvað svipað.“ Menningarhúsið Hof rís nú á Strandgötu á Akureyri, en Pálmi býst ekki við að það fylli skarð- ið sem Græni hatturinn skil- ur eftir sig. „Burtséð frá því að hér sé að rísa einhver steypuhöll sem á að kallast menningarhús,“ segir hann. „Það sem þar verður boðið upp á er ekki í nágrenni við Græna hattinn. Það er allt annar pakki.“ Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri Akureyrar, telur ekki að menningarlífið í bænum sé í útrýmingarhættu. „Þetta var hvoru tveggja fínasta starf- semi sem hefði gjarnan mátt vera áfram til staðar. Það er hins vegar ekki á okkar valdi og þá verðum við að vona að einhverjir aðrir sjái tækifæri í stöðunni og byggi upp eitthvað sambærilegt, eða eitthvað nýtt sem hefur sama aðdráttarafl.“ atlifannar@frettabladid.is PÁLMI GUNNARSSON: ALVEG GLATAÐ EF GRÆNI HATTURINN LOKAR MENNINGARSTAÐIR Á AKUREYRI SKELLA Í LÁS MENNINGIN Á UNDANHALDI Friðrik V. lokaði á dögunum og framtíð Græna hattsins er óljós. Pálmi Gunnarsson tónlistar- maður segir leiðinlegt að horfa upp á þetta, en Hermann Jón bæjarstjóri telur að menn- ingarlíf Akureyrar sé ekki í útrýmingarhættu. „Núna er ég bara að hlusta á nýju plötuna með Joönnu Newsom og smáskífuna með DLX ATX.“ Ása Dýradóttir, bassaleikari í Mammút. Restaurant Pizzeria Gallerí – Café Hafnarstræti 15, sími 551 3340 Þriðjudagstilboð. Allar pizzur og pastaréttir á hálfvirði í dag. hornid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.