Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 50
34 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Íslendingar eru að eignast leikmann í
einu af bestu karlaliðum bandaríska háskólaboltans.
Hinn stórefnilegi Haukur Helgi Pálsson hefur nú gert
munnlegt samkomulag við Maryland-háskólann, sem
er einn af virtustu körfuboltaskólum Bandaríkjanna
og varð meðal annars bandarískur meistari fyrir átta
árum.
Haukur Helgi Pálsson hefur lengi skarað fram úr á
Íslandi, hvort sem það er með Fjölni eða íslenska
drengjalandsliðinu. Hann hefur verið undir smá-
sjánni hjá evrópskum stórliðum og í vetur frétt-
ist af miklum áhuga frá stórum bandarískum
skólum eftir velheppnað tímabil Hauks með
Monteverde-menntaskólanum.
Haukur Helgi hafði úr nokkrum góðum skól-
um að velja en ákvað að fara í ACC-deildina sem
er að margra mati sú besta í Bandaríkjunum.
Þar fær hann að spila á móti skólum eins
og North Carolina, Duke, Virginia,
Florida State, Clemson, Georgia
Tech og Wake Forrest. Þetta er
deildin sem hefur skilað af sér
leikmönnum eins og Michael
Jordan (North Carolina) og
Tim Duncan (Wake For-
rest).
Maryland-skólinn hefur
átt fullt af NBA-leik-
mönnum og meðal
þeirra þekkt-
ari eru Steve
Francis, Joe
Smith, Steve
Blake, Juan
Dixon og Chris
Wilcox en þrír
þeir síðastnefndu
voru allir með í
meistaraliði skólans árið
2002.
„Þetta er magnað. Þetta
er ekki bara ACC-skóli
heldur einn af þeim flott-
ari,“ segir Benedikt Guð-
mundsson, fyrrum þjálf-
ari Íslandsmeistara KR í
karlaflokki og núverandi
þjálfari deildarmeistara-
liðs kvenna í KR. Haukur Helgi lék undir stjórn Bene-
dikts í drengjalandsliðinu og þeir urðu Norðurlanda-
meistarar saman.
„Það hefur enginn Íslendingur farið í svona góðan
skóla og það hefur meira segja enginn verið nálægt
því. Þetta er sterkasta deildin í háskólaboltanum af
því að það er ekkert lélegt lið í þessari deild,“ segir
Benedikt en hann hefur fylgst vel með banda-
ríska háskólaboltanum og þekkir vel til.
„Án þess að hafa einhverjar tölur fyrir
framan mig þá myndi ég giska á það að
það væru 15 til 20 leikmenn úr ACC-deild-
inni valdir inn í NBA-deildina á hverju ári.
Þetta er bara míní NBA-deild. Það eru skól-
ar þarna í ACC-deildinni sem eru betri en
sum NBA-liðin. Það eru skólar sem eru að
missa byrjunarliðin sín inn í NBA-deildina á
hverju ári,“ segir Benedikt.
Benedikt efast heldur ekki um að Hauk-
ur Helgi eigi eftir að standa sig með
Mary-land.
„Þessi skóli væri ekkert að taka
hann inn nema af því að þar hafa
menn trú á því að hann sé af
þessum kaliber. Haukur er líka
eins og Jón Arnór með það að
hann aðlagast því getustigi sem
hann er á. Því hærra sem getu-
stigið er því betur nýtur hann
sín. Það eru ekki allir sem hafa
þann eiginleika,“ segir Benedikt
og bætir við:
„Hann getur síðan alltaf skipt
um skóla ef þetta er ekki að
ganga. Aðalatriðið er að henda
sér út í djúpu laugina og láta
reyna á þetta. Haukur nýtur sín
best með góðum leikmönnum í
kringum sig. Hann á eftir að spjara
sig þvílíkt vel þarna. Þessi strákur á að
fara á eins hátt getustig og hann mögu-
lega kemst. Þar nýtur hann sín best,“ segir
Benedikt Guðmundsson. ooj@frettabladid.is
Enska úrvalsdeildin
Wigan-Liverpool 1-0
Hugo Rodallega (35.)
STAÐA EFSTU LIÐANNA
Man. United 29 20 3 6 67-24 63
Chelsea 28 19 4 5 65-26 61
Arsenal 29 19 4 6 69-32 61
Tottenham 28 14 7 7 50-27 49
Man.City 27 13 10 4 52-35 49
Liverpool 29 14 6 9 45-29 48
Aston Villa 26 12 9 5 37-21 45
Iceland Express kvenna
6 liða úrslit, leikur númer 2
Haukar-Grindavík 81-74 (41-37)
Stig Hauka: Kiki Jean Lund 30, Heather Ezell 19,
Ragna Brynjarsdóttir 8, Telma Fjalarsdóttir 7,
Helena Hólm 6, Guðrún Ámundardóttir 4, María
Sigurðardóttir 4, Bryndís Hreinsdóttir 3.
Stig Grindavíkur: Michele DeVault 26, Joanna
Skiba 16, Helga Hallgrímsdóttir 15, Petrúnella
Skúladóttir 9, Íris Sverrisdóttir 6, Jovana
Stefánsdóttir 2
Haukar unnu einvígið 2-0 og mæta KR
í undanúrslitum
Snæfell-Keflavík 105-112 (eftir framl.)
Stig Snæfells: Sherell Hobbs 42, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 15, Sara Andrésdóttir 14,
Hrafnhildur Sævarsdóttir 14, Unnur Ásgeirsdóttir
13, Björg Einarsdóttir 5, Hildur Kjartansdóttir 2.
Stig Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir 37,
Birna Valgarðsdóttir 31, Kristi Smith 29, Svava
Stefánsdóttir 7, Rannveig Randversdóttir 4,
Hrönn Þorgrímsdóttir 2, Pálína
Gunnlaugsdóttir 2.
Staðan var 96-96 eftir venjulegan leiktíma.
Keflavík vann einvígið 2-0 og mætir Hamar í
undanúrslitum.
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI „Við getum ekki einu
sinni tekið áhættu, hann er ekki
leikfær,“ tilkynnti Arsene Weng-
er, knattspyrnustjóri Arsenal, í
gær. Hann var að tala um hinn
spænska fyrirliða liðsins, Cesc
Fabregas, sem verður ekki með í
seinni leiknum gegn Porto í sex-
tán liða úrslitum Meistaradeild-
arinnar.
Fabregas hefur verið frábær í
vetur en fór meiddur af velli eftir
að hafa skorað fyrsta markið í 3-
1 sigri á Burnley um helgina. Ar-
senal á erfitt verkefni fyrir hönd-
um á heimavelli sínum í kvöld eftir
að Porto vann fyrri viðureignina
2-1.
Varnarmaðurinn Sol Campbell
er þó tilbúinn í slaginn en hann
æfði með liðinu í gær.
Wenger er enn bálreiður út
í dómarana í fyrri leiknum en
ljóst er að Arsenal á erfitt verk-
efni fyrir höndum í kvöld þar sem
Portúgalarnir munu reyna að verja
forskot sitt með kjafti og klóm.
Fiorentina er í svipaðri stöðu
og Arsenal en ítalska liðið tekur á
móti FC Bayern í kvöld. Þjóðverj-
arnir unnu fyrri leikinn 2-1 þar
sem sigurmarkið hefði aldrei átt
að standa vegna rangstöðu.
„Bayern er með frábæra ein-
staklinga í sínum röðum en við
höfum mjög sterkt lið,“ segir
markvörðurinn Sebastien Frey hjá
Fiorentina sem er fullur bjartsýni
fyrir leikinn.
„Þegar við náum okkur á strik
eru fá lið sem geta stöðvað okkur.
Við unnum Liverpool í riðlakeppn-
inni og sýndum að allt getur gerst
í boltanum. Við spiluðum gegn liði
sem er mun sterkara en við á papp-
írnum.“
Frey segir að landi sinn, Frakk-
inn Franck Ribery, þurfi að vera
í gjörgæslu til að Fiorentina kom-
ist áfram.
„Hann var nánast í sérflokki á
vellinum. Við þurfum að leggja
áherslu á að gæta hans allan leik-
tímann.“ - egm
Arsenal og Fiorentina þurfa að sækja til sigurs á heimavelli í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar:
Erfitt verkefni fyrir Arsenal án Fabregas
EKKI MEÐ Í KVÖLD Cesc Fabregas í
baráttunni í fyrri leiknum gegn Porto.
NORDICPHOTOS/GETTY
> Guðmundur fer en Guðjón kemur
Sóknarmaðurinn Guðmundur Pétursson er á leið í Breiða-
blik en samkvæmt áreiðanlegum heimildum tók KR tilboði
frá Kópavogsliðinu. Guðmundur lék á lánssamn-
ingi með Blikum í fyrra og varð bikarmeistari
með liðinu. Hann fór ekki leynt með þann
vilja sinn að vera áfram í græna búningnum.
Fleiri lið vildu fá hann en hann hafnaði FH
og Val. Þá er það að frétta úr herbúðum KR
að Guðjón Baldvinsson verður að öllum
líkindum lánaður til félagsins í sumar
frá sænska liðinu GAIS en Guðjón
hefur ekki náð að festa sig í sessi
ytra.
ÍSHOKKÍ Björninn gat tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí í
fyrsta sinn í gær með því að sigra
Skautafélag Akureyrar í Egils-
höll. Gestirnir að norðan knúðu
hins vegar fram oddaleik með
3-2 sigri í hörkuspennandi leik.
Oddaleikurinn fer fram á Akur-
eyri.
Róbert Freyr Pálsson og Daði
Örn Heimisson skoruðu mörk
Bjarnarins í gær en Jóhann Már
Leifsson, Sigurður Sigurðsson og
Josh Gribben skoruðu mörk SA.
- egm
SA vann Björninn í gær:
Akureyringar
fá oddaleik
FÓTBOLTI Í gær funduðu í Kaup-
mannahöfn fulltrúar þeirra þjóða
sem prýða riðil Íslands í undan-
keppninni fyrir Evrópumótið
2012. Reynt var að ná samkomu-
lagi um leikdaga riðilsins en það
bar ekki árangur.
Því þarf að draga um leikdaga
og verður það gert í næstu viku.
Portúgal, Danmörk, Noregur og
Kýpur eru með Íslandi í riðli en
fyrstu leikirnir verða í septemb-
er á þessu ári. -egm
Náðist ekki samkomulag:
Þarf að draga
FÓTBOLTI Wigan vann óvæntan
sigur á Liverpool 1-0 í ensku
úrvalsdeildinni í gær. Möguleik-
ar Liverpool á að ná sæti í Meist-
aradeildinni fyrir næstu leiktíð
minnkuðu með þessum úrslitum.
Hugo Rodallega skoraði eina
mark leiksins á 35.mínútu af
stuttu færi en það kom í kjölfar-
ið á skeliflegum mistökum Dirk
Kuyt sem átti misheppnaða send-
ingu. Emmerson Boyce komst inn
á milli og sendi fyrir á Rodallega.
Fernando Torres fékk bestu
færi Liverpool í leiknum en brást
bogalistin. Charles N’Zogbia
fékk fínt færi til að bæta við öðru
marki fyrir Wigan í síðari háfleik
en Pepe Reina náði að verja frá
honum.
Með sigrinum komst Wigan
upp í fjórtánda sætið með 28 stig.
Liverpool er hins vegar í sjötta
sætinu og hefur leikið fleiri leiki
en liðin fyrir ofan.
Sigur Wigan var sögulegur því
þetta er í fyrsta sinn sem liðið
nær að leggja Liverpool. - egm
Wigan vann Liverpool:
Ansi dýrt tap
hjá Liverpool
SÚR Á SVIP Gærkvöldið var erfitt fyrir
Rafa Benítez og lærisveina hans.
Haukar og Keflavík tryggðu sér sæti í undanúrslitum
Iceland Express deildar kvenna með sigrum í sínum
einvígum í sex liða úrslitum úrslitkeppninnar. Haukar
unnu 81-74 sigur á Grindavík þar sem danska lands-
liðskonan Kiki Lund átti mjög góðan leik með Hauk-
unum í gær og var með 8 þriggja stiga körfur og 30
stig. Hún lék einnig mjög vel í fyrri leiknum á laugardag-
inn þar sem hún var með 22 stig og 9 stoðsendingar.
„Ég átti ekki góða leiki eftir bikarúrslitaleikinn og
var heldur ekki nægilega góð í þeim leik. Ég
myndi segja að þetta væri rétti tíminn til að
þess að spila vel,” sagði Kiki kát í leikslok.
„Ég heyrði að liðið hafi tapað jöfnum leikjum
fyrir áramót en núna erum við að ná að vinna
þessa jöfnu leiki,” sagði Kiki og hún finnur sig
vel við hliðina á Heather Ezell.
„Heather er frábær í því að koma okkur
hinum í liðinu inn í leikinn. Hún er stórkostlegur leikmaður og
nær samt að skora sín stig þótt að hin liðið leggi mikla áherslu
á stoppa hana,” segir Kiki en Hesther var með 19 stig og 11 stoð-
sendingar í gær og margar stoðendingarnar voru á Heather.
„Ég elska að spila með Heather. Hún finnur alltaf opna
manninn og kallar rétt leikkerfi á réttum tíma. Hún er
mjög góður leiðtogi fyrir okkar lið,” segir Kiki en fram-
undan er undanúrslitaeinvígi á móti deildarmeisturum
KR.
„Það verður erfitt að mæta KR en það skiptir ekki
máli hverjum þú mætir hér eftir því það eru allir
mótherjar erfiðir í úrslitakeppninni,” sagði Kiki
og bætir við í léttum tón: „Ég verð að reyna
að muna það sem ég borðaði í dag svo
ég geti fengið mér það aftur í næsta leik
um helgina.”
HAUKAKONAN KIKI LUND: SKORAÐI 30 STIG ÞEGAR HAUKAR TRYGGÐU SÉR SÆTI Í UNDANÚRSLITUNUM Í GÆR
Þetta er rétti tíminn til að spila vel
Enginn Íslendingur hefur
farið í svona góðan skóla
Benedikt Guðmundsson þekkir vel til Hauks Helga Pálssonar og bandaríska há-
skólaboltans. Hann er í skýjunum með að einn allra efnilegasti íslenski körfu-
boltamaðurinn sé á leiðinni í Maryland-háskólann næsta haust.
FRÁBÆR MEÐ LANDSLIÐUNUM Haukur Helgi Páls-
son hefur skorað 555 stig í 32 leikjum með yngri
landsliðum Íslands eða 17,3 að meðaltali í leik.
MYND/SNORRI ÖRN ARNALDSSON