Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 12
12 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR Fyrirtæki leita bæði til skipafélaga og flugfélaga til að senda vörur til og frá landinu. Til að senda peninga, þá tala þau við okkur. Kjartan Geirsson, erlend viðskipti. Það er minna mál að skipta um banka en þú heldur. Kynntu þér málið á mp.is eða hafðu samband í síma 540 3200. Borgartúni 26 · Ármúla 13a Varfærni, einfalt þjónustuframboð og örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir fólk og fyrirtæki. Þannig á banki að vera. Gjaldeyrisreikningar Erlend viðskipti Innheimtuþjónusta Fyrirtækjaráðgjöf Netbanki & þjónustuver Kreditkort Ávöxtun innlána Veltureikningur Fjármögnun Ábyrgðir VENUS ÚR SNJÓ Nágrannar listakonu í New Jersey kvörtuðu þegar fögur snjókerling birtist í garði hennar í líki Venusar frá Míló. Skömmu síðar var snjóstyttan komin í þessi föt. NORDICPHOTOS/AFP NÁTTÚRA Hvalveiðar hafa losað gríðarlegt magn gróðurhúsaloft- tegunda út í andrúmsloftið í gegn- um tíðina, þar sem mikið magn kolefnis er geymt í líkama svo stórra dýra. Þetta kom fram á ráð- stefnu haffræðinga í Bandaríkjun- um nýverið. Vísindamenn segja að í framtíð- inni sé mögulegt að fyrirtæki sem vilji leggja áherslu á mótvægisað- gerðir gegn kolefnislosun kaupi veiðikvóta fyrir hvali eða önnur stór sjávardýr í þeim tilgangi að veiða ekki dýrin heldur leyfa þeim að deyja náttúrulegum dauðdaga. Ríflega 100 milljónir tonna af gróðurhúsalofttegundum hafa farið út í andrúmsloftið vegna hvalveiða síðustu 100 árin, segir Dr. Andrew Pershing í samtali við BBC. Hann hefur ásamt sam- starfsmönnum sínum við Maine- háskóla í Bandaríkjunum rannsak- að kolefnissöfnun í líkama stórra sjávardýra. Hvalveiðarnar hafa því haft svipuð umhverfisáhrif og bruni skógar á stærð við allt Ísland, eða akstur á 128.000 Hummer-jeppum í 100 ár. Pershing lagði þó áherslu á að þetta magn gróðurhúsaloft- tegunda væri mjög lítið saman- borið við þá milljarða tonna sem mannkynið losi árlega. Séu hvalir og önnur stór sjávar- dýr veidd enda líkamsleifar þeirra á landi, og kolefnið sem bundið er í líkama þeirra kemst hratt út í andrúmsloftið. Það átti jafnvel enn frekar við fyrr á öldum þegar lýsi af hvölum var notað sem elds- neyti, segir Pershing. Fái þeir hins vegar náttúruleg- an dauðdaga sökkvi þeir til botns. Sé dýpið nægilegt þar sem þeir sökkva geti liðið hundruð ára þar til kolefnið kemst út í andrúms- loftið. Þannig ætti að vera mögulegt að draga úr gróðurhúsaáhrifum framtíðarinnar með því einu að veiða ekki hvali, stóra hákarla, túnfisk og önnur stór sjávardýr, segir Pershing. Þannig mætti hugsa sér að fyrirtæki kolefnis- jöfnuðu rekstur sinn með því að kaupa veiðikvóta en veiða ekki dýrin. „Hugmyndin er sú að mæla á vísindalegan hátt hversu mikið magn af kolefni er hægt að geyma í fiski- og hvalastofnum, og leyfa svo löndum að selja kvótann til kolefnisjöfnunar,“ segir Pershing í viðtali við BBC. „Þetta gæti bæði haft þau áhrif að draga úr kolefnislosun og að draga úr veiði á þessum tegund- um.“ brjann@frettabladid.is Vill nota veiðikvóta til kolefnisjöfnunar Hvalveiðar hafa á síðustu einni öld losað svipað magn gróðurhúsalofttegunda og skógarbruni á svæði á stærð við Ísland. Hægt væri að draga úr veiðum og kolefnislosun með því að leyfa löndum að selja kvóta til kolefnisjöfnunar. DREGINN Á LAND Mikið magn kolefnis er bundið í líkama stórhvela. Deyi dýrin og sökkvi í sæ eru líklegt að kolefnið verði bundið í hafinu árhundruðum saman. Séu hvalirnir dregnir á land losnar kolefnið hins vegar fljótt út í andrúmsloftið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SAMGÖNGUR Félag íslenskra bif- reiðaeigenda (FÍB) gefur félags- mönnum „festubana“ á meðan birgðir endast. Öðrum býðst að kaupa gripinn á þúsund krónur. „Gamall og góður félagsmað- ur í FÍB sem kominn er á eftir- laun hefur fært félaginu að gjöf mjög gott kanadískt hjálpartæki fyrir bíleigendur til að bjarga sér úr festum í snjó og hálku,“ segir á vef FÍB, en félagsmaðurinn gjaf- mildi flutti hjálpartækið áður inn. „Og þegar hann flutti á dögunum í nýtt húsnæði, gaf hann FÍB þær umframbirgðir af þessu ágæta hjálpartæki sem hann átti enn í bílskúrnum sínum.“ - óká Fengu gamlan lager að gjöf: FÍB gefur félög- um festubana FESTUBANINN Í snjó og ófærð getur festubaninn komið í góðar þarfir vanti bílinn grip. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ EFNAHAGSMÁL „Við munum ekkert líða það að ákveðinn geiri hérna moki til sín hagnaði, það mun enginn sæta því,“ sagði Gylfi Arn- björnsson, for- seti ASÍ, þegar hagspá sam- bandsins var kynnt á dögun- um. Í spánni er gert ráð fyrir lítilli styrk- ingu á krón- unni til ársloka. „Auðvitað mun þessi afkoma í útflutningsgrein- unum fara inn í hagkerfið. Það hefur alltaf gerst á Íslandi þessa áratugi sem við höfum verið með sjálfstæðan gjaldmiðil að yfirhagnaður í sjávarútvegi og öðrum atvinnugreinum fer inn í aðrar greinar,“ sagði Gylfi. Stjórnvöld og Seðlabankinn þyrftu að skilja að ef ekki næð- ist fram fimmtungs eða fjórð- ungs styrking á krónunni yrðu horfur á vinnumarkaði ekki bjartar. „Þá verða auðvitað átök um það.“ - gar ASÍ um hagnað af útflutningi: Átök ef krónan styrkist ekki GYLFI ARNBJÖRNSSON DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs- aldri hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði á skilorði, fyrir sérstak- lega hættulega líkamsárás. Þá var maðurinn dæmdur til að greiða fórnarlambinu rétt tæpar 767 þúsund krónur í miskabæt- ur. Sá dæmdi var ákærður fyrir að ráðast á mann og kasta í hann glasi á veitingastað í Grindavík í apríl á síðasta ári. - jss Átta mánuðir fyrir árás: Sló mann með glerglasi í andlit FJÖLMIÐLAR Út er komið fyrsta tölublað fréttarits sem ber heitið Róstur. Blaðið er hvorki sagt taka við styrkjum frá stjórnmálahreyf- ingum né selja auglýsingapláss, en með þeim hætti haldist það óháð. Fólki er hins vegar boðið að styrkja útgáfuna. Í leiðara er því haldið fram að eignarhald fjölmiðla hafi mikil áhrif á hvernig fréttaflutningi sé háttað, sem og auglýsingar, því varla vilji blaðamenn bíta í hönd- ina sem fæðir þá með því að fjalla um auglýsendur á gagnrýninn hátt. Ágóði blaðsins rennur til góð- gerðarmála og starfsmenn vinna án launa. - óká Nýtt fréttarit lítur dagsins ljós: Gefa út Róstur LÖGGÆSLA Lögreglan mælist nú með mest traust meðal þjóðar- innar, samkvæmt nýrri mælingu Þjóðarpúls Gallups sem tekur til fjórtán stofnana og embætta. Rúm- lega 81 prósent segist nú bera mikið traust til lögreglunnar. Háskóli Íslands sem lengst af hefur verið sú stofnun sem notið hefur mests trausts kemur þar á eftir en 76 pró- sent bera mikið traust til hans. Ríflega 57 prósent bera mikið traust til embættis sérstaks sak- sóknara. Rúmlega 31 prósent ber mikið traust til dómskerfisins sem er lítil breyting frá því í fyrra. Traust til ríkissaksóknara mælist litlu minna en 29 prósent lands- manna bera mikið traust til hans. Traust til borgarstjórnar Reykja- víkur eykst um fjögur prósentu- stig frá því í fyrra en 22 prósent bera mikið traust til hennar. Traust til Seðlabank- ans eykst milli mælinga en 15 prósent lands- manna bera mikið traust til hans. Einung- is 13 prósent þjóðarinnar bera mikið traust til Alþingis. Þá bera 11 prósent mikið traust til Fjármálaeftirlitsins en sambæri- legt hlutfall í fyrra var rúmlega tvöfalt lægra. Eins og í fyrra nýtur bankakerfið minnsts trausts að þessu sinni en einungis fimm pró- sent Íslendinga segj- ast bera mikið traust til þess. -jss LÖGREGLAN Rúmlega 80 prósent landsmanna bera mest traust til lögreglu. Þjóðarpúls Gallup kannar traust til fjórtán stofnana og embætta : Lögreglan nýtur mests trausts SJÁVARÚTVEGUR Stjórn markaðs- stofnunar sjávarútvegsins í Alaska tilkynnti fyrir helgina að hún hefði falið óháðum, faggiltum aðila, Global Trust Certification Ltd., að votta fiskveiðistjórnunar- kerfi ríkisins, og fylgir þar for- dæmi Íslendinga. Global Trust hefur verið falið að annast uppsetningu vottunar- kerfis fyrir ábyrgar veiðar Íslend- inga, eftir kröfulýsingu Fiskifélags Íslands sem byggir á leiðbeining- um Matvæla- og landbúnaðarstofn- unar Sameinuðu þjóðanna. - shá Vottun um ábyrgar veiðar: Alaska horfir til íslensks merkis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.