Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 43
ÞRIÐJUDAGUR 9. mars 2010 27 UMRÆÐA Magnús Jónsson skrif- ar um umhverfisvæna raforku Mikil áhersla hefur á liðnum árum verið á að koma umhverfisvænu raforkunni okkar í verð og enn virðist það vera að áliti margra helsta leið þjóðarinnar í gegnum kreppuna. Á þessu eru þó ýmsar hliðar sem ástæða er til að velta upp og taka til umræðu. Fiskurinn fangafæði Á árum áður gengu fiskveiðar hér við land út á að ná í sem mest magn fisks. Síðutogarar báru að landi allt að 10 daga gamlan ísað- an fisk og stór hluti vertíðarbáta landaði oftast 2-4 nátta netafiski sem var tekinn úr mikilvægasta hluta hrygningarstofns þorsks- ins. Mikið af þessum afla myndi í dag ekki vera talinn boðlegur til manneldis, enda var hans lítið neytt af okkur sjálfum. Sumt af þessum fiski var hert í skreið eða verkað í salt en stærstur hluti afl- ans var unninn í frystar „blokkir“ fyrir Bandaríkjamarkað. Þar var hann þíddur upp og honum velt uppúr fitu og brauðraspi og seldur í fangelsi og skólamötuneyti. Var okkur hér heima talin trú um að mjög gott verð fengist fyrir þessa „gæðavöru“ á bandarískum neyt- endamarkaði. Fyrir löngu hefur verið horf- ið frá þessum veiðiáherslum, vinnsluaðferðum og markaðs- setningu á fiskinum okkar enda alþjóðleg eftirspurn eftir honum farið sívaxandi og verð hækkandi. Nú er allt kapp lagt á að koma sem mestu af fiski sem veiddur er hér við land á dýrustu markaði heims hvort sem það er í Evrópu, Amer- íku eða Asíu. Gæðin og ferskleik- inn eru sett í fyrirrúm til að sem hæst verð fáist og magnið skiptir minna máli. Gæðaorka á gjafverði Allt fram undir síðustu aldamót var orka í heiminum tiltölulega ódýr. Kom það einkum til af því að umhverfiskostnaður af orku- framleiðslu hafði lítið sem ekkert verið metinn auk þess sem orku- framleiðsla var og er enn víða stór- lega niðurgreidd af stjórnvöld- um. Er þessi niðurgreiðsla í heild talin nema allt að 700 milljörðum Bandaríkjadala á ári. Á síðustu árum hefur hins vegar orkuverð hækkað hratt og má það einkum rekja til aukinnar eftirspurnar á orku og minnkandi framboðs olíu en einnig til loftslagsmála og auk- innar umhverfisvitundar víða um heim. Viðbrögð við þessu hafa m.a. víða verið að leggja áherslu á nýja og endurnýjanlega orkugjafa s.s. vind, sólgeislun og sjávarföll eða umhverfisvænt eldsneyti. Ekkert land í heiminum býr við betri orkuaðstæður en Ísland. Nán- ast öll innlend orka hér á landi er umhverfisvæn og mengunarlítil og fer um 80% af henni til stóriðju. Þegar skoðað er verð á raforku í Evrópu kemur í ljós að þessi orka okkar er seld á lægsta verði sem fyrirfinnst í álfunni og þótt miklu víðar væri leitað. Raforkuverð til almennings hér er u.þ.b. þriðjung- ur af því sem það er að jafnaði í ríkjum ESB og í Danmörku kost- ar rafmagn 4-5 sinnum meira en á Íslandi (1 Evra = 180 kr.). Verðið á raforku til stóriðjunnar er svo enn miklu lægra en það sem almenn- ingur greiðir hér. Ekki er að sjá að lífskjör og samkeppnishæfni þeirra þjóða sem verðleggja ork- una hæst sé lakari en Íslendinga, nema síður sé. Misheppnuð markaðssetning? Svo lengi sem ég man hefur því verið haldið fram hér að engin alþjóð- leg eftirspurn væri eftir hinni umhverfisvænu orku hér á landi nema hjá álfyr- irtækjum. Þannig væri enginn áhugi hjá öðrum kaupendum en þeim sem gætu helst keypt alla orku hvers og eins risaorkuvers. Þetta er mér umhugsunarefni nú á sama tíma og flestar þjóðir leggja ofur- áherslu á að breyta samsetningu orkuframleiðslu sinnar og alþjóð- leg fyrirtæki eru nánast á harða- hlaupum um allan heiminn í leit að umhverfisvænni orku. Vitað er að álverum fækkar ört í Evrópu, og á Nýja Sjálandi sem er með álíka orkuaðstæður og Ísland er ekki gert ráð fyrir fjölgun álvera næstu áratugi og er þó aðeins eitt álver í landinu. Getur verið að eitthvað sé að í markaðssetningu okkar á orkunni ekki síður en þegar fiskvinnsla í landinu miðaðist við að koma sem mestu af frosnum þorskblokkum á hinn „ómissandi og dýra“ Banda- ríkjamarkað? Allt hefur sinn tíma og jafnsjálfsagt og það var að reisa virkjanir við Búrfell og Sigöldu í tengslum við álversbyggingar er kominn tími á að hverfa frá orku- magnsstefnunni yfir í orkugæða- stefnuna. Flestar þjóðir sem við viljum bera okkur saman við, t.d. Norðurlönd, ætla sér að byggja efnahagsframfarir og hagvöxt næstu áratuga á sjálfbærni í nýt- ingu auðlinda, minni losun gróð- urhúsalofttegunda og minni orku- notkun. Við hljótum að eiga meiri samleið með þessum grönnum okkar en þeim þjóðum sem enn þurfa að reiða sig á ódýra hráefnis- vinnslu og ofnýtingu takmarkaðra náttúruauðlinda. Við höfum mótað þá stefnu að selja takmarkað magn af góðum fiski okkar eins dýrt og kostur er. Sama hefur a.m.k. að hluta til verið uppi á teningnum þegar um ferðaþjónustuna er að ræða. Við viljum frekar fá færri ferðamenn sem eyða miklu en fleiri sem eyða litlu. Við eigum takmarkaðar auð- lindir á landi og í sjó og eigum að selja þær dýrt. Um leið þurfum við að tryggja á þeim eignarhald þjóðarinnar, sjálfbærni þeirra og gæði. Orkan okkar er þar ekki undanskilin. Höfundur er veðurfræðingur. Orkan og fiskurinn MAGNÚS JÓNSSON Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.