Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 56
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
44 sóttu um
Alls sóttu 44 um starf
dagskrárstjóra Ríkissjón-
varpsins sem Þórhallur
Gunnarsson gegndi
áður. Sumar umsóknir bárust aðeins
nokkrum mínútum fyrir miðnætti
á sunnudaginn og hugsanlega eiga
enn einhverjar eftir að berast með
pósti. Páll Magnússon útvarpsstjóri
hyggst taka sér sinn tíma til að fara
yfir umsóknirnar og gat í samtali
við Fréttablaðið ekki svarað því
hvernig tilkynnt yrði um hver hreppir
hnossið. Fréttablaðið hefur greint frá
því að í þessum 44 manna hópi eru
meðal annars leikarinn Felix Bergs-
son og Björn Þórir Sigurðsson,
markaðsstjóri Morgunblaðsins.
Baltasar og
dauðasyndirnar
Baltasar Kormákur
kvikmyndaleikstjóri hefur
í mörg horn að líta
um þessar mundir.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hefur skandinavíska
framleiðslufyrirtækið Zentropa
óskað eftir fundi með leikstjóranum.
Þar á að kynna fyrir honum sam-
norrænt verkefni um dauðasyndirnar
sjö með það að augnamiði að hann
leikstýri hluta verksins. Hugmyndin
mun vera að sjö norrænir leikstjórar
fái eina dauðasynd til umfjöllunar
en verkefnið er á algjörum byrjunar-
reit og handritsgerð ekki hafin. - fgg
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4400
Félögum í Vildarklúbbi Íslandsbanka gefst tækifæri til að
taka Íslandsbankapunktana sína út í peningum til 25. mars.
Punktana er einnig hægt að leysa út með öðrum hætti allan
ársins hring og getur hver félagi valið þá leið sem hentar
honum best. Einfalt er að fylgjast með punktastöðunni í
Netbanka Íslandsbanka.
Með fjölbreyttum viðskiptum við Íslandsbanka safnar þú
punktum án fyrirhafnar.
Skráðu þig í Vildarklúbb Íslandsbanka á islandsbanki.is.
Punktar
verða að peningum
Fermingargjafir
fyrir unga
hestamenn
www.lifland.is
Lynghálsi 3 • Lónsbakka Akureyri
Litríkur söfnuður
Auðlind í þjóðareign
eru ný samtök sem
stofnuð voru á
laugardaginn fyrir
viku. Á stofnfundinn
mættu þrettán manns, þar á meðal
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri grænna, Karl V. Matthíasson,
fyrrverandi þingmaður og Jón Baldvin
Hannibalsson fyrrverandi utanrík-
isráðherra, Formaður var kjörinn
Þórður Már Jónsson viðskiptalög-
fræðingur, sem einnig er annar
varaþingmaður Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi. Markmið sam-
takanna er að vinna að breytingum
á núgildandi kerfi um aflaheimildir í
sjávarútvegi. - kh
1 Litháar fengu fimm ára dóm
2 Á annað hundrað erlendir
fjölmiðlam. komu til Íslands
3 Stígamót krefjast úrbóta
4 Óvissustigi ekki aflétt
5 Litlar líkur á þverpólitískri sátt