Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 4
4 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR Í frétt blaðsins um leikskólamál í Reykjavík sem birtist í blaðinu í gær var talað um systkinaafslátt þegar systkinaforgangur átti við. ÁRÉTTING Handklæða- ofnar Hitastýrð sturtusett með öllu Sturtusettin komin aftur l - f r it t r t rt tt ll VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 12° 2° 4° 4° 2° -2° 4° 4° 21° 7° 11° 12° 24° 1° 5° 13° -1°Á MORGUN 3-10 m/s Hvassast sunnan til. FIMMTUDAGUR Fremur hæg NV- og V-læg átt. 7 7 6 7 5 6 6 8 5 8 2 10 12 9 9 3 5 4 7 8 11 9 7 5 5 7 6 5 4 3 3 6 VOR Í LOFTI? Í dag verður heldur úrkomusamt sunn- an- og vestantil en horfur eru fínar fyrir norðaustan og við austanvert landið, hægur vindur og gæti sést til sólar. Næstu dagar verða mildir, með hæg- viðri og lítilsháttar vætu, einkum S- og V-til. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður DÓMSMÁL „Þetta mál undirstrikar þá óhugnanlegu staðreynd að hér þrífst mansal. Við munum berjast gegn því af fullum krafti.“ Þetta segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra um mansals- dóminn sem gekk í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Ráðherra segir dóminn mikil tíðindi, en kveðst vilja slá þann varnagla að eftir eigi að fjalla um hann í Hæsta- rétti. Fjölskipaður héraðsdómur dæmdi fimm Litháa í fimm ára fangelsi. Þá voru þeir dæmdir til að greiða litháísku stúlkunni 1,8 milljónir króna í miskabæt- ur. Íslendingur sem ákærður var fyrir aðild að málinu var sýknað- ur. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir að í þessu máli hafi kona náð rétti sínum. „Það er ekki í okkur neinn hefndarþorsti en þetta eru svívirðilegir glæpir og með þessum dómi er sannað að þeir eru teknir alvarlega. Þetta er tímamótadómur að því leyti að í fyrsta skipti er staðfest að man- sal eigi sér stað hér. Að því leyti er hann sögulegur“, segir Guð- rún. Upphaf málsins var að undir miðnætti 9. október í fyrra var lögreglu tilkynnt að um borð í flugvél frá Varsjá væri stúlka sem hefði ærst á leiðinni og verið færð í bönd. Á flugvellinum biðu þrír Litháanna sem ætluðu að taka á móti henni. Stúlkan var undir vernd lög- reglu, en nokkrir Litháar héldu uppi fyrirspurnum um hana hjá lögreglu. Mönnunum tókst að hafa samband við stúlkuna og færa hana í íbúð, þar sem tveir þeirra „prófuðu“ hana eins og segir í dómskjölum. Þegar fjöl- miðlar fóru að fjalla um hvarf hennar urðu þeir óttaslegnir og einn þeirra fór með hana á hótel þar sem hann skildi hana eftir. Við réttarhöldin kom fram að stúlkan hafði verið seld í vændi í Litháen, þar sem henni var hald- ið í áfengis- og vímuefnaneyslu og sætti hún misþyrmingum. Eftir það var hún göbbuð hingað til lands með samvinnu manns, sem hafði komið sér í kynni við hana í Litháen og þeirra sem voru dæmdir í gær. Dómurinn taldi sannað að tilgangur mann- anna hér hafi verið að hagnýta sér hana kynferðislega. Þrír mannanna hafa áður hlot- ið dóma hér á landi og í heima- landinu, þar á meðal fyrir rán. Þetta er í fyrsta sinn sem sakfellt er fyrir mansal hér á landi. Annað mansalsmál er nú fyrir dómi. Catalina Mikue Ncogo hefur verið ákærð fyrir slíka háttsemi, og auk þess frelsissvipt- ingu, ólögmæta nauðung og tvær líkams-árásir. jss@frettabladid.is Fimm dæmdir fyrir mansal Allir Litháarnir fimm sem voru ákærðir fyrir mansal voru dæmdir til fimm ára fangavistar í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Íslendingurinn sem var bendlaður við málið var sýknaður fyrir dómi. DÓMUR FALLINN Þrír mannanna hafa áður hlotið dóma hér á landi og í heimalandinu, þar á meðal fyrir rán. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA JARÐVÁ Dregið hefur úr skjálfta- virkni í Eyjafjallajökli. Skjálft- ar eru mun færri en þegar mest lét og síðdegis í gær hafði ekki mælst skjálfti yfir tveimur á Richter frá því á sunnudag. Almannavarnir höfðu þó í gær eftir jarðvísindamönnum að skjálftahrinan væri ekki um garð gengin. „Almannavarnir fylgjast náið með framvindunni og óvissustigi verður aflétt í samráði við lög- reglustjóra umdæmisins þegar ljóst er að þessi jarðskjálftahrina er afstaðin,“ segir í tilkynningu. Mest var virknin fyrir helgi, en síðustu sólarhringa hefur skjálftum fækkað niður í nokkra á klukkustund. - óká Óvissustigi haldið áfram: Skjálftar eru færri og minni EYJAFJALLAJÖKULL Óvissustig Almanna- varna nær til gruns um að eitthvað sé að gerast sem síðar geti ógnað öryggi fólks og byggðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SJÁVARÚTVEGUR Loðnuvertíð er að ljúka og loðnuskipin eru flest í sinni síðustu veiðiferð. Greint var frá því á vef Víkurfrétta í gær að þrettán loðnuskip væru þá stödd á veiðum á Faxaflóa. Á aflastöðu- lista Fiskistofu kemur fram að nú þegar hafi verið landað 75 þúsund tonnum, en ef litið er til veiðigetu flotans þá er aðeins dagaspurs- mál hvenær vertíð lýkur. Er það mat manna að ef veður hefði verið hagstæðara í lok febrúar og mars væri veiðum lokið. - shá Mörg skip í síðustu veiðiferð: Stuttri loðnu- vertíð að ljúka Bolvíkingar Íslandsmeistarar Íslandsmóti skákfélaga lauk um helgina. Taflfélag Bolungarvíkur varð Íslandsmeistari annað árið í röð. Tafl- félag Vestmannaeyja varð í öðru sæti og Taflfélag Reykjavíkur í því þriðja. SKÁK TENGJAST ALLIR OFBELDISVERKUM Greiningardeild ríkislögreglustjóra var falið að vinna hættumat vegna öryggis þriggja kvenna sem allar tengjast mansalsmálinu, að því er kemur fram í dómsgögnum. Greiningardeildin taldi yfir vafa hafið að öryggi kvennanna þriggja væri ógnað hér á landi. Forsendur þessa mats séu að litháískir hópar haldi uppi skipulagðri glæpastarf- semi hér. Glæpamenn frá Litháen hafi ítrekað gerst sekir um gróf ofbeldisverk hér, bæði gagnvart löndum sínum, öðrum hópum afbrotamanna, öðrum erlendum hópum og samfélaginu almennt, þar með talið lögreglu. Austur-evr- ópskir glæpahópar hafi flutt menn hingað til að stunda glæpi og ekki sé óhugsandi að þeir geri það til að ná fram hefndum. Litháarnir í þessu máli tengjast allir grófum ofbeldisverkum og líkamsmeiðingum. Oft og tíðum er ofbeldisverkum þeirra ekki fylgt eftir eða kæra dregin til baka sem gefi vísbendingu um að þolendur séu beittir þrýstingi. BANDARÍKIN, AP Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa afsannað þá kenningu, sem margir höfðu hall- ast að, að nikótínmagn í heila nái hámarki um það bil sjö sekúndum eftir að reykingarfólk dregur í sig reyk úr sígarettu. Þess í stað þykir nú ljóst að nikótínið safnist smám saman upp í heilanum meðan reykt er og magn- ið aukist við hvern reykjardrátt. Hámarki nær magnið eftir þrjár til fimm mínútur, hægar í heila fólks sem háð er reykingum en hraðar í heila fólks sem reykir sjaldan. Nánast engar rannóknir hafa verið gerðar á þessu fyrr en núna þegar Jed E. Rose og samstarfsfólk hans við Duke-háskólann kynna sínar rannsóknir. „Núna vitum við að þessir toppar eru ekki fyrir hendi,“ segir Rose. Enn er þó ósvarað þeirri spurningu hvers vegna sumir ánetjast nikótíni en aðrir ekki. Bandarískir tóbaksframleiðend- ur greiddu Rose fyrir þessar rann- sóknir, en hann fullyrðir að fyrir- tækin hafi ekki komið nálægt framkvæmd rannsóknanna. - gb Ný rannsókn á því hvernig nikótín hleðst upp í heila reykingafólks: Safnast hægt upp í heilanum REYKINGAR Nikótín hleðst hægar upp í heila stórreykingafólks. NORDICPHOTS/GETTY AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 08.03.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 229,3348 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,21 127,81 192,6 193,54 173,51 174,49 23,314 23,45 21,593 21,721 17,91 18,014 1,4076 1,4158 194,75 195,91 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.