Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.03.2010, Blaðsíða 2
2 9. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR Hin raunverulega áhætta liggur í því að ríkisstjórn- in hefur skaðað trúverðugleika Íslands.“ SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS. ALÞINGI Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, flutti í gær skýrslu um stöðuna að lokinni þjóðar- atkvæðagreiðslu. Í kjölfarið fylgdu umræður og af þeim má ljóst vera að lítil samstaða er um hvernig túlka beri þjóðaratkvæðagreiðsl- una. Jóhanna sagði umræðuna hins vegar sýna að enginn hefði talað gegn því að vinna að sameig- inlegri lausn málsins. Hún liti því svo á að menn hefðu skuldbundið sig til þess. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði ríkis- stjórnina hafa misst allt traust og framtíðarlíf hennar ylti á því trausti sem þjóðin bæri til henn- ar. „Ég öfunda ekki þá ríkisstjórn sem þarf að horfast í augu við þá falleinkunn sem 93 prósent þjóð- arinnar gáfu henni.“ Bjarni sagði flokkinn tilbúinn í kosningar hve- nær sem forsætisráðherra mundi boða til þeirra og betra væri að það yrði fyrr en síðar. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokks- ins, sakaði stjórnarliða um að reka málið áfram með útúrsnúningi og spuna. Orð fjármálaráðherra Breta hefðu rennt stoðum undir það sem Framsóknarflokkurinn hefði lengi sagt, að það þjónaði ekki hagsmun- um Breta að leggja íslenskan efna- hag í rúst. Menn þyrftu að sjá að sér og mynda meirihluta um hags- muni þjóðarinnar varðandi Ice- save. „Hin raunverulega áhætta liggur í því að ríkisstjórnin hefur skaðað trúverðugleika Íslands.“ Þór Saari, þingmaður Hreyf- ingarinnar, kallaði eftir kynslóða- skiptum í ríkisstjórninni. Nýja for- ystu vantaði í stjórnarflokkana og ætti að leyfa varaformönnum þeirra að taka við keflinu. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagði sjálfgefið að halda áfram þar sem frá var horf- ið, á grundvelli samstöðu. Hann upplýsti að hann hefði í gær rætt við formann samninganefndarinn- ar og fjármálaráðherra Hollands, sem sjálfur hefði rætt við starfs- bróður sinn í Bretlandi, og hann byggist við viðræðum á næstu dögum. Ögmundur Jónasson, þingmað- ur Vinstri grænna, fagnaði niður- stöðu þjóðarinnar. Hann vildi virkja þá samstöðu sem hefði ein- kennt málið. Það hefði skilað tug- milljóna króna betri niðurstöðu. Ef nýtt samningsmarkmið, sem rætt væri um, snerist um að koma ríkis- stjórninni frá, væri hann ósáttur við það. „Þá vil ég að það sé eitt alveg kristaltært að ekki verð ég með í þeirri vegferð.“ kolbeinn@frettabladid.is ALÞINGI Umræður voru á Alþingi um stöðuna eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Fjármála- ráðherra býst við að viðræður við Breta og Hollendinga hefjist á ný á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SPURNING DAGSINS ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ „Besta leiksýning ársins 2009“HÆNU UNGARNIR NÝJAR SÝNINGAR KOMNAR Í SÖLU Mbl., GB Fbl., EB 551 1200 / leikhusid.is Halla, ætlið þið nokkuð að sauma að áskrifendum ykkar? „Nei, en við erum með mjög margt á prjónunum.“ Halla Bára Gestsdóttir er ritstjóri uppskriftabæklings sem áskrifendur svokallaðs Saumaklúbbs fá reglulega. Þar má meðal annars læra að sauma, prjóna, hekla, föndra og elda. HEILSA „Þetta er ekki eitthvað sem fagfólk talar um að fyrra bragði,“ segir Sigríður Ásta Eyþórsdóttir um umræður um kynlíf og krabbamein. Hún hefur ásamt Hildi Hilmarsdóttur haldið fyrirlestra um málefnið síðastlið- in ár. Þær telja að nokkuð skorti á fræðslu til handa krabbameins- sjúkum varðandi þennan mála- flokk. Þær segja til dæmis fáa gera sér fulla grein fyrir afleiðingum krabbameinsmeðferða. Þær geti til að mynda valdið getuleysi og ófrjósemi. -sg / sjá Krabbamein og heilsa Kynlíf og krabbamein: Fagfólk þyrfti að vera opnara FJALLA UM KYNLÍF OG KRABBAMEIN Hildur Hilmarsdóttir og Sigríður Ásta Eyþórsdóttir sóttu ráðstefnu um kynlíf og krabbamein fyrir fimm árum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN TYRKLAND, AP Rúmlega fimmtíu manns fórust þegar harður jarðskjálfti varð í austurhluta Tyrk- lands snemma í gærmorg- un. Skjálftinn mældist sex stig og lagði mörg leir- steinshús, hlöður og bæna- turna í rúst. Einna verst varð ástandið í Okcular, 900 manna þorpi þar sem fimmtán manns létu lífið. „Þorpið er alger- lega jafnað við jörðu,“ sagði Hasan Demirdag bæjar- stjóri. Þessi hluti Tyrk- lands er strjálbyggður. Í gær varð einnig 4,2 stiga jarðskjálfti í Grikk- landi. Jarðskjálftar eru algengir í báðum þessum ríkjum. - gb HRUNIÐ HÚS Kona í þorpinu Karakocan stendur fyrir framan gjöreyðilagt hús sitt. NORDICPHTOS/AFP Harður jarðskjálfti í austanverðu Tyrklandi snemma í gærmorgun: Tugir létust í afskekktu héraði STJÓRNSÝSLA Ólafur Þór Hauksson, sérstak- ur saksóknari, á ekki von á sligandi álagi á starfsmenn sína þegar rannsóknarnefnd Alþingis sendir saksóknara á næstunni yfirlit yfir alla þá gjörninga í aðdraganda bankahrunsins sem nefndin telur hafa verið refsiverða. „Ég reikna með að margt af því sem þeir tæpa á séu mál sem þegar er byrjað á hér,“ segir Ólafur. Nefndin hafi hins vegar ekki sent mál til saksóknara jafnóðum og þau hafi uppgötvast og því sé í raun ómögu- legt að segja hvað nefndarmenn hafi uppgötvað við skýrslusmíðina. Nú styttist óðum í að skýrslan komi út og er þessa stundina verið að leggja loka- hönd á síðustu kaflana. Einn þeirra er sérstakur kafli um þau mál sem nefndin telur ástæðu til að saksóknari taki til rannsóknar. Annar er kafli þar sem nefndin fer yfir það hverja hún telur hafa gerst seka um vanrækslu í starfi. Prentuð útgáfa skýrslunnar verður í níu bindum og yfir 2.000 blaðsíður. Vefútgáfa hennar verður öllu lengri, og verður þar meðal annars hægt að lesa í heild sinni athugasemdir þeirra tólf sem fengu bréf frá nefndinni. Athugasemdirnar eru um 500 blaðsíður. Þá verður sérstakur kafli í skýrslunni um hag- sögu Íslands frá 1990. Í skýrslunni verður mikið um gröf og skýringarmyndir. Ekki fást enn upplýs- ingar um það hvenær von er á skýrslunni. - sh Rannsóknarnefnd Alþingis sendir saksóknara bráðum ábendingar um refsimál: Öll málin berast saksóknara í einu ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON Samstaða um að samstöðu sé þörf Samstaða var á Alþingi um að samstöðu væri þörf um næstu skref. Ekki var samstaða um hver þau skref væru. Stjórnarandstaðan kallaði eftir að stjórnin tæki ábyrgð á niðurstöðunum. Ögmundur Jónasson sagðist styðja stjórnina. EFNAHAGSMÁL Lánshæfismatsfyr- irtækið Standard & Poor’s ákvað í gær að halda lánshæfismati sínu á ríkissjóði Íslands óbreyttu þrátt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Ísland er því áfram á athugunar- lista með neikvæðum horfum. S&P telur að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar þýði ekki að alþjóðlegum skuldbindingum Íslands sé hafnað. Hún endur- spegli almenna óánægju með skilmála tvíhliða lánsins sem Bretar og Hollendingar buðu til að fjármagna kröfur sínar. - jhh Ísland áfram á athugunarlista: Lánshæfismati haldið óbreyttu ÍRAK, AP Nouri al-Maliki, for- sætis-ráðherra Íraks, og flokki súnní-múslima er spáð kosninga- sigri í Írak. Nokkrir dagar eru reyndar þangað til úrslit kosn- inganna á sunnudag verða birt, en spárnar byggja á mati tals- manna íraskra stjórnmálaflokka, sem hafa fengið að fylgjast með talningunni. Reynist spá þeirra rétt má túlka það sem andstöðu almenn- ings við herskáa hópa sem barist hafa gegn stjórninni og innrásar- herjum Bandaríkjamanna og Breta. - gb Kosningarnar í Írak: Nori al-Maliki er spáð sigri Karzai boðar friðarráðstefnu Hamid Karzai, forseti Afganistans, hefur boðað til friðarráðstefnu í Kabúl í vor þar sem sett verður fram áætlun um aðlögun talibana að samfélaginu og viðræður við leiðtoga uppreisnar- manna. AFGANISTAN Leit reyndist óþörf Þyrla LSH var í gærmorgun undirbúin til leitar að Kristni SH-112, 100 tonna línubáti frá Ólafsvík. Áður en til þess kom létu skipverjar vita af sér. Talið er að bilun hafi orðið í sjálfvirka til- kynningarskyldubúnaðinum um borð í bátnum. ÖRYGGISMÁL KANADA, AP Mötuneyti þjóðþings- ins í Toronto í Kanada ætlar að bjóða upp á selkjöt á morgun til þess að sýna stuðning við bar- áttu kanadískra selveiðimanna við Evrópusambandið. Með þessu uppátæki mötu- neytisins fá kanadískir þing- menn jafnframt tækifæri til að sýna stuðning sinn í verki við málstað selveiðimanna. Evrópusambandið bannaði í júlí síðastliðnum innflutning á selaafurðum frá Kanada á þeim forsendum að veiðiaðferðir þar séu grimmilegar og ómannúð- legar. - gb Deila Kanada við ESB: Selkjöt í mötu- neyti þinghúss SELIR Evrópusambandið bannar inn- flutning selkjöts. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.