Fréttablaðið - 19.03.2010, Qupperneq 12
12 19. mars 2010 FÖSTUDAGUR
Höfum þjónað Volkswagen eigen
Þjónustuver og þjónustumóttökur: Opið frá 8-17 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@hekla.is. Netspjall á www.hekla.is.
100% þjónustulán án vaxta Val um upprunalega eða ódýrari varahluti Sérstök hraðþjónusta í boði
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
BÚNINGAR TIL SÖLU Þessir búningar,
sem notaðir voru í Apaplánetumynd-
unum á síðustu öld, verða boðnir upp
í Bandaríkjunum í vor. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Dragist samningar
um Icesave enn á langinn má gera
ráð fyrir að atvinnuleysi, auk sam-
dráttar landsframleiðslu og fjár-
festingar, verði mun meira en
Seðlabankinn hefur gert ráð fyrir
í spám sínum.
Þórarinn G. Pétursson, aðalhag-
fræðingur Seðlabankans, benti
á það þegar kynnt var ákvörðun
peningastefnunefndar bankans
um vexti á miðvikudag, að í síð-
ustu hagspá bankans, Peningamál-
um, sem út komu í janúar, væri að
finna vísbendingu um hvers væri
að vænta í umfangi samdráttarins,
dragist enn að
Icesave leysist.
„Sem dæmi má
nefna að tefjist
stórframkvæmd-
ir fram á seinni
hluta næsta árs
og verði önnur
fjárfesting á
þessu ári um 10
prósentum minni
en gert er ráð fyrir, gæti fjármuna-
myndun dregist saman um fjórðung
á þessu ári og landsframleiðsla um
5 prósent. Atvinnuleysi yrði jafn-
framt hátt í tveimur prósentum
meira í lok ársins en gert er ráð
fyrir í grunnspánni,“ segir í Pen-
ingamálum, en grunnspá bankans
gerði ráð fyrir tiltölulega skjótri
úrlausn Icesave-mála.
Í umfjöllun Greiningar Íslands-
banka í gær segir að vonir lands-
manna um að lausn sé á næsta leiti
virðist fara þverrandi. „Enda hefur
lausn deilunnar nú verið í sjónmáli í
marga mánuði án þess að endahnút-
ur sé bundinn á málið.“ Bent er á að
samningaviðræður um Icesave hafi
ekki enn hafist að nýju eftir að upp
úr slitnaði í byrjun þessa mánaðar.
- óká
ÞÓRARINN G.
PÉTURSSON
Vonir um að lausn Icesave sé á næsta leiti fara þverrandi hjá þjóðinni:
Enn meiri samdráttur í spilunum
REYKJAVÍK Framboðslisti Vinstri
grænna í Reykjavík var sam-
þykktur samhljóða á félagsfundi
í gær. Efstu sex sætin réðust í
forvali sem fram fór í byrjun
febrúar. Kosið verður 29. maí.
Í fyrstu tíu sætum listans eru:
1. Sóley Tómasdóttir, 2. Þorleifur
Gunnlaugsson, 3. Líf Magneudótt-
ir, 4. Elín Sigurðardóttir, 5. Davíð
Stefánsson, 6. Hermann Vals-
son, 7. Björg Eva Erlendsdóttir,
8. Snærós Sindradóttir, 9. Krist-
ín Þorleifsdóttir, 10. Vésteinn
Valgarðsson. - bj
Framboðslisti VG í Reykjavík:
Tilbúin í
kosningar í maí
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hefur lýst
eftir vitnum að íkveikju í Öskjuhlíð
í gærmorgun. Þá voru bensínbrúsar
og blys notuð til að kveikja í tveim-
ur fjarskiptamöstrum, auk þess
sem tilraun var gerð til að kveikja
í því þriðja.
„Það hefur enginn verið hand-
tekinn eða yfirheyrður, við erum
enn að vinna að öflun gagna,“ segir
Friðrik Smári Björgvinsson, yfir-
lögregluþjónn rannsóknardeildar
lögreglunnar.
Brunavarginum eða vörgun-
um tókst ekki að kveikja á búnaði
sem nota átti til að kveikja í þriðja
mastrinu og hefur lögregla því
nokkuð góða mynd af því hvern-
ig aðferðum var beitt. Tvær plast-
flöskur með bensíni voru festar
saman og blys fest við þær. Með því
að kveikja á blysinu var því hægt að
kveikja í bensíninu. Friðrik Smári
segir málið litið afar alvarlegum
augum enda greinilegur tilgangur
þess sem var að verki að valda tjóni.
Ekki sé þó rétt að kalla bensín-
brúsana og blysið sprengjur. Engin
sprenging verði þegar blysið brenni
í gegnum plastið heldur kvikni ein-
faldlega í bensíninu.
„Við vitum ekki hver tilgangur-
inn er, hvort hann var eingöngu að
valda fjártjóni eða eitthvað annað,“
segir Friðrik Smári. Í möstrunum
var fjarskiptabúnaður frá Síman-
um, Vodafone og öðrum fjarskipta-
fyrirtækjum.
Litlar truflanir urðu á fjarskipt-
um vegna íkveikjunnar. Þó duttu
útsendingar stafrænna sjónvarps-
sendinga Vodafone niður í tæpar
þrjár klukkustundir þar sem eld-
urinn skemmdi kapal í öðru mastr-
anna, segir Hrannar Pétursson,
upplýsingafulltrúi Vodafone. - bj
Lögregla rannsakar íkveikju þar sem bensínbrúsar og blys voru notuð til að kveikja í fjarskiptamöstrum:
Lýsa eftir vitnum að íkveikju í Öskjuhlíð
ÍKVEIKJA Ekki fengust í gær upplýsingar um tjón á fjarskiptamöstrunum tveimur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKIPULAGSMÁL Bæjarráð Hafnar-
fjarðar telur Alcan á Íslandi enn
ekki hafa skýrt nægilega vel
vilja sinn vegna áformaðrar end-
urtekningar á íbúakosningu um
stækkun álversins í Straumsvík.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu telja forsvars-
menn Alcan sig hins vegar hafa
svarað öllu sem að fyrirtækinu
lýtur og að kjósa eigi um
óbreytta þá deiliskipulagstil-
lögu sem felld var í íbúakosn-
ingu vorið 2007. Það þýði þó ekki
sjálfkrafa að af stækkuninni
verði.
Bæjarráðið fól í gær sviðstjóra
skipulagssviðs ásamt oddvitum
bæjarstjórnarflokkanna að fá
sem fyrst nánari svör hjá Alcan
varðandi áform um stækkun
álversins út frá upphaflegu deili-
skipulagstillögunni. - gar
Íbúakosning enn í biðstöðu:
Tali skýrar um
álversstækkun