Fréttablaðið - 19.03.2010, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 13
dum í 101 ár
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.is
Ókeypis forgreining
Þú getur treyst því að við gerum betur við Volkswagen
Þótt Volkswagen bili sjaldan er mikilvægt að eftirlit og þjónusta sé í höndum fagfólks.
Birgir og félagar hafa samtals 101 árs reynslu af Volkswagen þjónustu og tryggja að þú
þurfir aldrei að bíða lengi eftir bílnum þínum. Láttu okkur gera betur við bílinn þinn.
MÁLÞING UM SKOTVEIÐAR
Grand Hótel – Hvammur – 20. mars 2010
DAGSKRÁ | AÐGANGUR ÓKEYPIS ALLIR VELKOMNIR
13:00 Setning málþingsins - Hjalti Guðmundsson, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun
13:10 Sjálfbær veiðistjórnun - Steinar Rafn Beck, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun
13:30 Veiðitölur - Bjarni Pálsson, deildarstjóri hjá Umhverfisstofnun
13:50 Sjálfbærar veiðar - Sigmar B. Hauksson, formaður SKOTVÍS
14:10 Rjúpan - Ólafur K. Nielsen, frá Náttúrufræðistofnun Íslands
14:30 Kaffi
14:50 Gæsir og endur - Arnór Þ. Sigfússon, frá Verkís
15:30 Svartfugl - Arnþór Garðarsson, prófessor við Háskóla Íslands
15:50 Hreindýr - Jóhann G. Gunnarsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun
16:10 Umræður
17:00 Málþingi slitið
Málþing á vegum Umhverfisstofnunar um skotveiðar á
Íslandi verður haldið á Grand Hótel laugardaginn 20. mars. Á
málþinginu verða flutt erindi um helstu veiðitegundir á Íslandi,
veiðistjórnun, sjálfbærar veiðar og veiðitölur.
Akureyri – Egilsstaðir – Ísafjörður - Mývatn
Reykjavík - Snæfellsnes - Vestmannaeyjar
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
STANGVEIÐI Borgarráð samþykkti
í gær tillögu Þorleifs Gunnlaugs-
sonar úr Vinstri grænum um
að beita fulltrúa borgarinnar í
stjórn Veiðifélags Elliðavatns til
að fá það samþykkt að veiðitíma
í vatninu verði breytt þannig að
hann hefjist 1. apríl í stað 1. maí.
Breyting taki gildi strax á þessu
ári og framvegis.
Þorleifur lagði einnig til að
skoðað yrði að gera borgar-
búum kleift að veiða ókeypis í
Elliðavatni. Borgarráð vísaði
þeirri tillögu til umhverfis- og
samgönguráðs. - gar
Borgarráð samþykkir breytingar á veiðitíma Elliðavatns:
Ókeypis í veiði og byrjað fyrr
ELLIÐAVATN Opnað verður fyrir veiði 1.
apríl í stað 1. maí ef borgin nær fram
vilja sínum.
Tveir í gæsluvarðhaldi vegna gruns um fíkniefnabrot:
Fljótandi amfetamín
fannst í farangrinum
LÖGREGLUMÁL Tveir menn sitja
nú í gæsluvarðhaldi í tengslum
við innflutning nær eins lítra af
fljótandi amfetamíni til lands-
ins. Samkvæmt útreikningum
sem gerðir hafa verið hefði efnið
skilað tæpum sex kílóum af amf-
etamíni í neyslupakkningar á
götuna, að því er upplýsingar
Fréttablaðsins herma.
Upphaf málsins má rekja
til þess að pólskur karlmað-
ur á þrítugsaldri var hand-
tekinn á Keflavíkurflugvelli
í lok janúar á þessu ári. Hann
var þá að koma til landsins frá
Kaupmannahöfn.
Tollverðir leituðu í farangri
mannsins og kom í ljós að hann
var með flösku fulla af fljótandi
amfetamíni. Hann var handtek-
inn í kjölfarið og úrskurðaður í
gæsluvarðahald til 29. mars.
Nú í vikunni handtók lögreglan
svo annan mann, einnig pólskan,
sem talinn er tengjast málinu.
Hann hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 23. mars.
Maðurinn sem tekinn var með
amfetamínvökvann hefur ekki
dvalið hér á landi, svo vitað sé,
en hinn sem handtekinn var nú
í vikunni hefur dvalið hér í ein-
hvern tíma. Hann er einnig á
þrítugsaldri og hefur komið við
sögu lögreglu hér.
Lögreglan á Suðurnesjum
vinnur að rannsókn málsins. - jss