Fréttablaðið - 23.03.2010, Blaðsíða 46
30 23. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. sía, 6. mannþyrping, 8. kvikmynda-
hús, 9. skarð, 11. verslun, 12. sjósetja,
14. dá, 16. í röð, 17. lítið býli, 18.
ennþá, 20. ekki heldur, 21. sníkjur.
LÓÐRÉTT
1. nauðsyn, 3. í röð, 4. land, 5. sam-
tíningur, 7. hungraður, 10. drulla, 13.
verkur, 15. baklaf á flík, 16. húðpoki,
19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sáld, 6. ös, 8. bíó, 9. rof,
11. bt, 12. flota, 14. trans, 16. hi, 17.
kot, 18. enn, 20. né, 21. snap.
LÓÐRÉTT: 1. þörf, 3. áb, 4. líbanon,
5. dót, 7. soltinn, 10. for, 13. tak, 15.
stél, 16. hes, 19. na.
„KFC er uppáhaldsmaturinn
minn. Ég borða það á afmæl-
inu mínu og er meira að segja
byrjaður að reyna að búa það
til heima hjá mér. Zinger Tower
er uppáhalds.“
Jón Gnarr frambjóðandi.
„Þetta byrjaði með því að ég vildi fá fótboltamark
aftur á Varmárvöllinn. Við strákarnir spiluðum
mikið á þetta mark, en svo var það bara tekið. Það
var rosalega vont. Þegar það var hringt í mig og
mér boðið sæti á lista, þá var mér hugsað til marks-
ins og sagði bara já takk,“ segir Steinþór Hróar
Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr. Hann er
í þriðja sæti á framboðslista Vinstri hreyfingarinn-
ar - græns framboðs í Mosfellsbæ.
„Ég ætla að verða fulltrúi unga fólksins í bænum
enda margt hægt að gera fleira heldur en að redda
þessu marki,“ segir Steindi. Hann er Mosfellingur
frá blautu barnsbeini og veit hvernig er að alast upp
í bænum.
VG er núna með einn mann í bæjarstjórn en
Steindi er ekki í neinum vafa um að hann komist
inn. „Ég fer alveg pottþétt í bæjarstjórn. Þetta verð-
ur stórsigur! Og markið er bara byrjunin. Ég er með
alveg fullt af hugmyndum. Vonandi er svo einhver
peningur í þessu, ég er reyndar ekki búinn að kanna
það.“
Steindi hamast nú við að taka upp efni fyrir átta
sjónvarpsþætti sem byrjað verður að sýna á Stöð 2
í lok apríl. Þættirnir heita Steindinn okkar og auk
Steinda er Ágúst Bent úr Rottweilerhundum aðal-
sprautan í þáttunum. „Þetta eru grínsketsaþættir
með fullt af gestaleikurum. Þetta verða einhverjir
bestu þættir sem gerðir hafa verið,“ segir Steindi
fullur sjálfstrausts. En er hann ekkert smeykur um
að verða stimplaður kommagrínisti? „Nei, nei, alls
ekki. Ég vil bara fá fótboltamarkið aftur. Það er
númer 1, 2 og 3. Svo er ég með teikniborðið fullt af
hugmyndum fyrir unga fólkið.“ - drg
Steindi Jr. í framboð fyrir VG
STEINDI JR MEÐ HINUM Í VG MOSÓ Frambjóðendurnir sem
skipa sex efstu sætin. Frá vinstri: Ólafur Gunnarsson, Bryndís
Brynjarsdóttir, Högni Snær Hauksson, Karl Tómasson, Sigur-
laug Ragnarsdóttir og Steindi Jr. MYND/HILMAR GUNNARSSON
„Það er einfaldlega ekki til pen-
ingur fyrir slíku. Þannig er alla-
vega staðan í dag. En það getur
alltaf breyst þótt ég eigi ekkert
von á því,“ segir Hera Björk Þór-
hallsdóttir, fulltrúi Íslands í Euro-
vision. Ekkert myndband verður
gert við framlag Íslands, Je ne
sais quoi, eins og gert hefur verið
síðustu tólf skiptin sem Ísland
hefur keppt. Myndbönd hafa
verið framleidd alveg síðan Anna
Mjöll söng Sjúbbídú árið 1996
eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst. „Við verðum að skera niður
eins og allir aðrir, því miður, en
þessi myndbönd hafa ekki alltaf
verið að skila því sem þau eiga að
skila,“ bætir Hera Björk við.
Reynir Þór Eggertsson Euro-
vision-sérfræðingur segir þetta
skiljanlega ákvörðun og tekur
undir orð Heru. „Þessi Euro-
vision-myndbönd hafa verið að
fá sáralitla spilun utan heima-
landsins og raunar held ég að
þessi myndbönd hafi lítið að
segja,“ segir Reynir og bendir á
að Alexander Rybak, sem vann í
keppninni í Moskvu á síðasta ári
með miklum yfirburðum, hafi
ekki gert neitt myndband. „Það
er miklu líklegra til árangurs að
vera með öfluga maskínu á Net-
inu og vera dugleg við að fara í
viðtöl á Netinu. Þetta vinnst oft á
umræðunni þar sem hún smitar út
frá sér.“ Svo Rybak sé aftur notað-
ur sem dæmi þá voru Eurovision-
sérfræðingar fyrir löngu búnir að
spá honum sigri í keppni og það
virtist bera tilætlaðan árangur.
En þá aftur að Heru, sem var
raunar stödd í London þegar
Fréttablaðið náði tali af henni
ásamt fatahönnuðinum Birtu
Björnsdóttur. Þær voru að leita
að efni fyrir kjólinn sem Hera
hyggst klæðast þegar stóra
stundin rennur upp um miðjan
maí í Ósló. „Við fundum ekki rétta
efnið heima og ég bauðst bara til
að syngja fyrir Iceland Express
ef þeir byðu okkur hingað út. Og
hérna erum við, þrátt fyrir verk-
fall og eldgos,“ segir Hera en
þær stöllur gera þetta eins ódýrt
og mögulegt er, gista á farfugla-
heimili við Hyde Park og hugðust
fara í verslunarferð niður í Soho-
hverfið. freyrgigja@frettabladid.is
HERA BJÖRK ÞÓRHALLSDÓTTIR: Í LONDON AÐ SKOÐA EFNI FYRIR KJÓLINN
Enginn peningur til fyrir
Eurovision-myndbandi í ár
Eldgosið við Fimmvörðuháls eyðilagði aðra
af tveimur heimsmetstilraunum svissneska
flugmannsins Riccardo Mortara. Mortara
hugðist slá met ævintýramannsins Steves
Fossett með því að fljúga hringinn í kring-
um hnöttinn á innan við 67 klukkustund-
um. Það tókst því Mortara flaug hringinn á
57 klukkustundum og 54 mínútum. Honum
mistókst hins vegar að slá met kylfingsins
Arnolds Palmer sem flaug í kringum heiminn
á 57 klukkustundum og 26 mínútum á mun
léttari vél. Mortara segir eldgosið á Íslandi
hafa eyðilagt þau plön og seinkað ferðinni um
fjórar klukkustundir.
Mortara ætlaði að lenda í Keflavík eftir
viðkomu í Kanada en flugvellinum var hins
vegar lokað vegna eldgossins við Eyjafjalla-
jökul og Mortara neyddist til að snúa við. „Við
settum okkur háleit markmið og ætluðum að
slá met Palmers,“ segir Mortara í yfirlýsingu
á Facebook-síðu sinni. „Okkur hefði sennilega
tekist að slá það um fjórar klukkustundir ef
ekki hefði orðið þetta eldgos á Íslandi.“
Eldgosið á Fimmvörðuhálsi hleypti miklum
taugatitringi í áhöfn Mortara eins og kemur
fram á heimasíðu heimsmetstilraunarinnar,
360worldrecord.com. „Ég var vakinn og mér
sagt frá eldgosinu á Íslandi. Þetta var eins
og martröð,“ skrifar Carlo Allauigan, einn úr
áhöfn flugvélarinnar. Mortara flaug Sabrel-
iner 65-flugvél til að setja metið en slíkar
vélar voru fyrstu einkaflugvélarnar sem
byggðar voru handa auðjöfrum og fólki loðnu
um lófana. - fgg
Eldgosið eyðilagði heimsmetstilraun
SLÓ EITT HEIMSMET Mortara sló eitt heimsmet þegar
hann flaug í kringum hnöttinn á tæpum 58 klukku-
stundum. Eldgosið á Íslandi kom hins vegar í veg fyrir
aðra heimsmetstilraun. NORDICPHOTOS/AFP
EKKERT MYNDBAND Í ÁR
Reynir Þór Eggertsson telur Euro-
vision-myndböndin hafa litlu skilað
og skilur vel að þau Örlygur Smári
og Hera Björk skuli ekki ætla
að gera slíkt. Hægt sé að eyða
peningum í aðra og betri hluti.
Þetta verður í fyrsta skipti síðan
Anna Mjöll gerði svart/hvítt
myndband við Sjúbbídú að
framlag Íslands til Eurovision
verður ekki með sitt eigið
myndband.
Tónleikar Peaches
á Nasa á laugar-
dagskvöldið þóttu
heppnast frábær-
lega. Hápunkturinn
var þegar hún
bókstaflega
labbaði um
salinn, á
höndum
tónleikagest-
anna. Tón-
listarkonan
hafði ráðgert
að halda af landi brott í gærmorg-
un en varð strandaglópur vegna
verkfalls flugvirkja. Hafði Peaches
á orði að hún væri ágætlega sátt
við þessa niðurstöðu, ef hún
hefði komist héðan hefði hún í
staðinn orðið föst í London vegna
verkfalls hjá British Airways.
Meira af Peaches og
tónleikum hennar
þar sem hún skipti
ótt og títt um föt
eins og sönnu
tískuíkoni
sæmir. Í
lokalaginu
klæddist
hún
jakka
eftir
íslenska
fatahönnuðinn Munda vonda.
Ekki amaleg meðmæli það fyrir
ungan og upprennandi hönnuð.
Jónína Benediktsdóttir og
Gunnar Þorsteinsson, oftast
kenndur við trúfélagið Kross-
inn, nýttu sér tæknina þegar
þau tilkynntu vinum sínum á
Facebook að þau væru gengin í
heilagt hjónaband. Og þó. Þegar
Jónínu er flett upp á Facebook,
þar sem skoða má
helstu upplýs-
ingar um hana,
hefur gleymst
að breyta einu
smáatriði; hún er
skráð „sing-
le“ í stað
„married“.
- hdm, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
fermingar-
undirbúningur!
Sálmabækur
Verð áður kr. 1.730
SkeifunN i 11
104 Reykjavík
S. 533 1010
Frábært verð
á blekhylkjum,
kartoni, ljós-
myndapapP ír,
umslög um og
öðru fyrir
fermingar-
undirbúninginN .
Sjáðu
verð
dæmi
Spara
spara
nú 1399,-