Fréttablaðið - 23.03.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 23.03.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Ég hef alltaf viljað dansa, en þar sem ég er frá Svínafelli úr Öræfum voru ekki beint aðstæður til að gera neitt að ráði. Þegar ég frétti af þessum félagsskap manaði ég mig í að fara í prufutíma, þótt ég þekkti engan í þessu. Nú er ég komin á fullt og alveg elska þetta,“ segir Dóra Guðrún Ólafsdóttir, sem ákvað að fá útrás fyrir dansþörf- ina með því að skrá sig í háskóla- dansinn um leið og hún byrjaði í námi við grunnskólakennaradeild Háskóla Íslands síðasta haust. Að sögn Dóru er háskóladans- inn áhugamannafélag sem leggur áherslu á fjölbreytta danskennslu, allt frá swingdönsum upp í salsa. Kennsla fer fram bæði í leikfimisal Háskóla Íslands og Mósaík, eða gamla Ýmishúsinu, skammt frá Perlunni. Auk þess stendur félagið fyrir danskvöldum víðs vegar um bæinn. Um þarsíðustu helgi hittist hópurinn til að mynda á skemmti- staðnum Sólon í Reykjavík þar sem Dóra segist hafa skemmt sér konunglega. „Þetta var í framhaldi af nám- skeiði með erlendum gestakenn- ara og alveg rosalega skemmtilegt. Ætli ég hafi ekki dansað samfleytt í einhverja þrettán klukkutíma bæði kvöldin,“ segir hún og hlær og viðurkennir að vera með svo- litlar harðsperrur eftir að hafa spriklað alla helgina. Beðin um að lýsa í hverju aðdráttar afl dansins sé fólgið, er Dóra ekki sein til svars. „Þetta er bara skemmtilegasta líkams- rækt sem ég hef prófað á ævinni og félagsskapurinn alveg frábær. Þarna kemur alls konar fólk saman og allt á þeim buxum að hafa gaman. Tónlistin spillir heldur ekki fyrir, en hún er mikið til gömul, til að mynda frá millistríðsárunum og við hana dönsum við meðal annars Lindi Hop, Rock´n´Roll og Boogie Woogie.“ Dóra segir bæði byrjenda- og framhaldstíma kennda í háskóla- dansinum og því sé engin krafa gerð um reynslu. Dansinn sé fyrst og fremst ætlaður háskólanemum en þó einnig opinn öllum sem vilja taka þátt. „Annargjaldið er 5.000 krónur og mér finnst ég hafa feng- ið það margfalt til baka þar sem ég mæti fjórum til sex sinnum í viku og nýt hverrar mínútu. Ég kvíði aldrei fyrir að mæta og þegar ég er komin á staðinn brosi ég út að eyrum allan tímann.“ roald@frettabladid.is Nýt hverrar mínútu Dóra Guðrún Ólafsdóttir, nemi við grunnskólakennaradeild Háskóla Íslands, fann líkamsrækt við sitt hæfi þegar hún skráði sig í háskóladansinn í haust og dansar nú Swing og Boogie Woogie af innlifun. „Ég fór á stutt dansnámskeið þegar ég var í lýðháskóla í Danmörku og svo hefur maður náttúrlega dansað eitthvað á böllum, en ekkert jafnast á við þetta,“ segir Dóra um háskóladansinn. Hér tekur hún létta sveiflu með Brynjari Edda Rafnarssyni. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N BÓLUSETNINGAR GEGN SVÍNAFLENSU eru enn í gangi. Nú þarf ekki lengur að panta tíma heldur er fólk velkomið á heilsugæslustöðvar höfuðborgarsvæðisins alla virka daga á almennum þjónustutíma án þess að gera boð á undan sér. Heil- brigðisyfirvöld hvetja landsmenn eindregið til að láta bólusetja sig. Miðvikudaga Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447 Fjölþrepa bakbrettið • Eykur sveigjanleika • Linar bakverki • Bætir líkamsstöðu • Auðvelt í notkun • Má nota hvar sem er Opið virka daga frá kl. 9 -18 www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Verð: 7.950 kr. Patti húsgögn Landsins mesta úrval af sófasettum Láttu þér líða vel í sófa frá Patta Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16 p-8185 sett 3+1+1 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is sími 512 5447 Laugardaga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.