Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Bókin heitir Hvorki meira né
minna og hentar þeim sem er
umhugað um heilsuna, einkum
þeim sem eru í fráhaldi,“ útskýr-
ir Fanney Rut Elínardóttir, sem
hefur gefið út fyrstu íslensku
matreiðslubókina þar sem alfar-
ið er sneitt fram hjá sykri, hveiti
og sterkju.
Fanney Rut gerði róttækar
breytingar á sínu mataræði fyrir
ári en hún var haldin matarfíkn
á háu stigi. „Ég fékk nóg og tók
málin í eigin hendur, komin langt
yfir kjörþyngd, pirruð og orku-
laus.“ Eftir að Fanney breytti mat-
aræðinu grenntist hún um 40 kíló.
„Lundin er líka léttari; systkinum
mínum finnst ég alla vega hress-
ari,“ segir Fanney og hlær og bætir
við að hún sé sömuleiðis orkumeiri
en áður.
Fanney Rut viðurkennir að við-
snúningurinn hafi þó ekki gengið
átakalaust fyrir sig. Fyrstu tveir
mánuðirnir hafi tekið á og ekki
hafi verið hlaupið að því að finna
hentugar mataruppskriftir. „Ég
Hentar fólki í fráhaldi
Fanney Rut Elínardóttir var haldin matarfíkn á alvarlegu stigi en sneri við blaðinu og leitaði sér hjálpar.
Hún tók mataræðið meðal annars í gegn og hefur nú gefið út bók með uppskriftum að hollum réttum.
Fanney Rut Elínardóttir fer eftir sérstöku kerfi sem hentar vel fólki í fráhaldi og miðar að því að borða vel úti látnar og léttar mál-
tíðir þrisvar sinnum á dag. Hver máltíð er vigtuð og þannig borðar Fanney Rut hvorki meira né minna en kerfið segir til um.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bláberjapönnukaka
1 egg
30 g sojahveiti
3 msk. vatn
¼ msk. matarsódi
1 msk. Canderel
2 ½ dl bláber, frosin eða
fersk
1-1 ½ dl skyr.is með
vanillubragði frá MS
Blandið öllu vel
saman, nema
bláberjunum og
skyrinu. Hitið olíu á
vel heitri pönnu, hellið
blöndunni á pönnuna
og lækkið niður í
miðlungs hita. Stráið
tæplega helmingnum
af bláberjunum ofan á
pönnukökurnar þegar
endarnir eru byrjaðir
að bakast í gegn og
steikið pönnukökuna
áfram í um það
bil 1 mín.
Snúið
pönnu-
kök-
unni
við og
bakið hana í um það
bil 3 mín. til viðbótar.
Bláberjahliðin er ekk-
ert sérlega falleg og
því er skemmtilegra
að snúa henni niður
þegar pönnukakan er
sett á diskinn. Berið
þessa dásamlegu
bláberja-
pönnuköku
fram með
vanillu-
skyrinu og
ferskum
bláberjum.
DÓ OG FÓR TIL HIMNA
fann ekkert um þetta á íslensku
og þannig kviknaði hugmyndin að
bókinni. Ég vildi deila reynslunni
með öðrum,“ segir hún og bætir
við að þar sem hún hafi alltaf verið
áhugasöm um matargerð hafi hún
átt safn af uppskriftum sem hún
endurbætti og setti saman í bók.
„Systir mín, María, tók mynd-
irnar í stofunni hjá mömmu og
pabba, svo þetta er fjölskylduverk-
efni,“ segir Fanney Rut og tekur
fram að án hvatningar frá sínum
nánustu hefði hún aldrei náð jafn
langt eða matreiðslubókin orðið að
veruleika. roald@frettabladid.is
VERÐ SKÓLAMÁLTÍÐA var misjafnt vorið 2009. Í
nýlegri könnun kemur í ljós að meðalverð skólamáltíða yfir
landið var 279 krónur. Hæsta verð á skólamáltíð var 500
krónur og í einum skóla var skólamáltíðin nemendum að
kostnaðarlausu. Athyglisvert er að mismunandi verð var fyrir
skólamáltíð innan sama sveitarfélags.
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
nÚ RÝMUM VIÐ FYRIR NÝJUM VÖRUM
50%afslátturaf völdum vörum
Hornsófar, tungusófar
sófasett, rúm,
borðstofusett ofl.
aðeins í eina viku
takmarkað magn
gildir til 20. april
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Tímapantanir 534 9600
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur www.heyrn.is
* Tal fólks í margmenni
* Hjal smábarns
* Marr í snjónum
Ertu að fara á mis við hljóð sem skipta miklu máli?
GRÍPTU TIL ÞINNA RÁÐA
Láttu sérmenntaðan
heyrnarfræðing mæla
heyrnina og fáðu faglega
ráðgjöf.
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n ritun
í s ím a 5670300
NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 14. APRÍL
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-frelsi og nýir
möguleikar
Einfaldar í notkun
og hagkvæmar
í rekstri
Fimmtudaga
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447