Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 41
ÞRIÐJUDAGUR 13. apríl 2010 33 Mickey Rourke er ekki eins og fólk er flest. Hann er mikill dýravinur og var víst nánast óhuggandi eftir að hundurinn hans Loki drapst í fyrra. Rourke kom meðleikur- um sínum í Iron Man 2 á óvart þegar hann var að búa sig undir tilfinninga- lega erfiða töku. Leikar- inn dró upp mynd af Loka til að ná fram réttu hughrifun- um. „Hann hélt á myndunum og varð nánast á einu auga- bragði ákaflega sorgmæddur. Þetta var alveg ótrúlegt. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt. Við skemmtum okkur samt konung- lega saman og við vorum mjög heppin að hafa fengið hann til liðs við okkur,“ s a g ð i Ro b er t Downey Jr. þegar hann var beðinn um að útskýra þessa hegðun mót- leikara síns. Mjúkur Mickey SAKNAR LOKA Rourke nær fram sínum einstaka sorgarsvip með því að hugsa um Loka, hundinn sem hann missti í fyrra. Leikkonan Elizabeth Taylor er trúlofuð samkvæmt fréttum bandarískra miðla. Hinn heppni heitir Jason Winters og starfar sem umboðsmaður í Hollywood. Engin dagsetning hefur verið ákveðin fyrir brúðkaupið en það myndi verða níunda hjónaband Taylors. „Það er ekkert leyndarmál að þau hafa lengi verið saman og eru ástfangin. Það kemur því ekki á óvart að þau hafi opinber- að trúlofun sína. Núna halda þau þessu þó bara fyrir sig,“ segir heimildarmaður US Magazine. Jason Winters, sem er 49 ára, gerðist nýlega umboðsmaður Janet Jackson. Hann yrði átt- undi eiginmaður hinnar 78 ára gömlu Liz Taylor þar sem hún giftist Richard Burton tvisvar. Þau skötuhjúin kynntust í gegn- um poppstjörnuna Michael Jack- son og hafa verið vinir um langt árabil. Nú hefur Amor greini- lega skotið örvum sínum í hjörtu þeirra. Liz Taylor hefur verið einhleyp síðan hún skildi við Larry Fortensky árið 1996. Níunda hjónaband Liz Taylor HAMINGJUSÖM Liz Taylor og Jason Winters eru trúlofuð. NORDICPHOTOS/GETTY Leikarinn Jim Carrey kom sér í þó nokkur vandræði þegar hann ákvað að tjá sig um framhjáhald Tigers Woods á samskiptasíðunni Twitter. Fjöldi fólks brást illa við þegar Carrey sagði að Elin Nord- gren, eiginkona Woods, hljóti að hafa vitað um framhjáhald kylfingsins. „Engin eiginkona er það blind að þetta hafi getað farið fram hjá henni. Hún hlýtur að hafa verið viljugur þátttakandi í þessari rússíbanareið, sama hver ástæðan fyrir því hefur verið,“ skrifaði Carrey á síðu sína. Eftir að fjöldi fólks skammaði leikarann fyrir ummælin reyndi hann að slá á léttari strengi og skrifaði: „Þið viljið þá væntanlega ekki ræða um Söndru Bullock.“ Carrey tjáir sig um Tiger SAKLAUST GRÍN? Jim Carrey vakti hörð viðbrögð þegar hann tjáði sig um eiginkonu Tigers Woods á Twitter. Furðufuglinn Courtney Love er mikið fyrir að tjá skoðanir sínar á alheimsvefnum og nú nýlega nýtti hún tæknina til að tjá söng- konunni Jessicu Simpson aðdáun sína. „Ég vona að ég sé ekki að segja neitt heimskulegt, en mér finnst þú kynþokkafull og hef ávallt talið þig vera duglega söngkonu sem á betra skilið. En af hverju tyggur þú stanslaust nikótíntyggjó, þú sem hefur aldrei reykt?“ Það kemur líklega fáum á óvart að Simpson hefur ekki svarað spurningu Love á Netinu. Jessica svarar ekki Love SVARAR EKKI Jessica Simpson hefur ekki svarað undarlegum spurningum tónlistarkonunnar Courtney Love. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.