Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 46
38 13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. ullarband, 6. frá, 8. tæki, 9. meðal, 11. 950, 12. kompa, 14. tárfelldu, 16. vörumerki, 17. persónufornafn, 18. ennþá, 20. mun, 21. málmhúða. LÓÐRÉTT 1. steintegund, 3. pot, 4. stjórnmál, 5. angan, 7. felustaður, 10. fjór, 13. and- lit, 15. yndi, 16. bekkur, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. lopi, 6. af, 8. tól, 9. lyf, 11. lm, 12. klefi, 14. grétu, 16. ss, 17. sín, 18. enn, 20. ku, 21. tina. LÓÐRÉTT: 1. talk, 3. ot, 4. pólitík, 5. ilm, 7. fylgsni, 10. fer, 13. fés, 15. unun, 16. set, 19. nn. „Við Halla erum búin að vera góðir vinir lengi og höfum þekkst í langan tíma,“ segir Ásgeir Kolbeins- son athafnamaður en söng- og leikkonan Halla Vil- hjálmsdóttir var ein þeirra sem heiðruðu Ásgeir og félaga hans þegar Austur steikhús var opnað í Aust- urstræti um helgina. Nærvera Höllu vakti nokkra athygli enda sjaldséð hér á Íslandi því hún býr í Sví- þjóð. Ásgeir var ánægður með opnun nýja staðar- ins og sagði hana hafa gengið vonum framar. „Þetta heppnaðist gríðarlega vel og ætli það hafi ekki 250 manns kíkt til okkar á föstudagskvöldið.“ Halla kom til landsins fyrir páska. „Ég gerði þetta líka í fyrrasumar, var þá hér í sex vikur og tók mér smá frí frá Svíþjóð,“ segir Halla en hún býst við að vera ögn lengur á landinu núna, jafnvel út sumarið. „Ég ætla að gá hvort það sé ekki eitthvað að hafa hérna. Svo erum við pabbi að vinna að plöt- unni minni og það er margt gott sem er að koma út úr því,“ segir Halla en bætir því við að enginn ákveðinn útgáfudagur hafi verið negldur niður. - fgg Halla og Ásgeir saman á Austur Á AUSTUR Halla og Ásgeir Kolbeins hafa verið vinir lengi en hér eru þau ásamt Viðari Þorlákssyni við opnun steikhússins Austur. FRÉTTALBLAÐIÐ/VILHELM Danski leikarinn Nicolas Bro fer á kostum í hlutverki dómsmálaráð- herrans Thomas Buch í dönsku sakamálaþáttunum Forbrydelsen, eða Glæpnum, sem sýndir eru á sunnudagskvöldum á RÚV. Bro er íslenskum kvikmyndaáhuga- mönnum að góðu kunnur fyrir leik sinn í Dags Kára-myndinni Voks- ne Mennesker en hann lék einn- ig lítið hlutverk í síðustu mynd íslenska leikstjórans, The Good Heart. Bro viðurkennir að hann sé einlægur aðdáandi Dags. „Ég bíð bara eftir því að hann hringi í mig og biðji mig um að leika í næstu mynd hans. Mér væri alveg sama hversu stórt hlutverk það væri, ég myndi taka því,“ segir Bro í sam- tali við Fréttablaðið. Bro þykir takast einstaklega vel upp sem dómsmálaráðherr- ann Buch í Glæpnum II. Bro sjálf- ur segir þennan sérkennilega stjórnmálamann fyrst og fremst vera hugarfóstur handritshöfund- anna þótt vissulega sé eitthvað af honum sjálfum í þessari skraut- legu persónu. Sjálfur hafi hann viljað að Buch væri gamaldsdags stjórnmálamaður með hugsjónir. „Maður saknar svoleiðis manna, stjórnmálamanna sem vinna eftir eigin sannfæringu og eru reiðu- búnir að vera mennskir og viður- kenna mistök sín. Ameríkuvæð- ing stjórnmálanna, allavega hérna í Danmörku, hefur ekki haft góð áhrif,“ segir Nicolas. Önnur þáttaröð af Glæpnum sló eftirminnilega í gegn í Danmörku á sínum tíma og hefur notið tölu- verðra vinsælda hér á landi. Bro segist ekki hafa neina einfalda skýringu á því af hverju þættirnir hafi náð svona mikilli hylli meðal sjónvarpsáhorfenda. „Kannski er það þessi myrki undirtónn og að þættirnir eru ekki uppfullir af einhverjum klisjum. Það er ekki mikil sápa í þessum þáttum held- ur fjalla þeir bara um venjulegt fólk sem er að vinna sína vinnu,“ segir Bro. Framleiðendur þáttanna NICOLAS BRO: ER EINLÆGUR AÐDÁANDI DAGS KÁRA PÉTURSSONAR Íslandsvinurinn sem fer á kostum í Forbrydelsen FRÁBÆR Í FORBRYDELSEN Danski leikarinn Nicolas Bro fer á kostum sem dómsmálaráðherrann Thomas Buch í spennuþáttaröð- inni Glæpnum sem sýnd er á sunnudagskvöldum á RÚV. Bro segist vera einlægur aðdáandi íslenska leikstjórans Dags Kára og myndi ekki hugsa sig tvisvar um ef Dagur hringdi og bæði hann um að leika í mynd eftir sig. LÖGIN VIÐ VINNUNA „Ég er búin að vera að hlusta svolítið mikið á hitt og þetta undanfarið. Mest hef ég hlustað á Dj Major Lazer og lagið Pon de Floor.“ Rebekka Bryndís Björnsdóttir, tónlistar- kona í hljómsveitinni Hjaltalín. Það styttist enn frekar í sýningar á Bachelorette- þáttaröðinni þar sem Ísland kemur tölu- vert við sögu enda kom piparmeyj- an Ali Fedotow- sky hingað til lands ásamt níu heppnum piparsveinum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins var Eyþór Guðjónsson víst einn af þeim sem sinntu tökuliðinu. Eyþór og Mike Fleiss, framleiðandi þáttanna, eru miklir vinir eftir Hostel-ævintýri Eyþórs sem Fleiss framleiddi. Og ögn meira af Bachel- orette því Skjár einn mun sýna umrædda þáttaröð með Ali í aðalhlutverkinu. Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, dagskrárstjóri stöðvarinn- ar, segir þó ekki vitað hvenær þáttaröðin verður á dag- skrá, íslenskum áhorfendum verði þó eitthvað örlítið seinna sinnt en þeim amerísku. Tónlistarmaðurinn Bubbi Mort- hens fagnar sem kunnugt er þrjátíu ára starfsafmæli sínu og hyggst halda í mikla tón- leikareisu um landið af því tilefni. Frítt verður inn á tónleikana en Stöð 2 hyggst fylgja kóngin- um eftir og taka upp nokkra tón- leika með honum sem síðan verður skeytt inn í þrjá þætti um líf og starf Bubba. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Myndir ljósmyndarans Sigursteins Baldurs sonar, eða Steina fjalls eins og hann kallar sig, af eldstöðvunum við Fimmvörðuháls hafa birst í heimsfjölmiðl- um á borð við CNN og The Guardian auk fjölda dagblaða í Kína, Indlandi og víðar. Sigursteinn hefur unnið að uppsetningu ferðavefsins Planeticeland undanfarin ár en þar geta áhugasamir ferðast um landið með því að skoða myndir sem teknar eru á fimmtán kílómetra fresti og sýna landslag og staði í 360 gráða vinkli. „Þetta er einn stærsti sýndarveruleiki í heimi og þarna getur fólk upplifað það að ferðast um land- ið á Netinu. Við neyðumst þó til að hætta með vefinn innan skamms því hvergi er fjármagn að finna. Í staðinn mun ég leggja aukna áherslu á landslagsmyndir auk þess sem ég er farinn að leggja drög að verk- efni sem ég nefni Waiting For Katla,“ útskýrir Sigursteinn sem hyggst koma um tuttugu myndavélum fyrir á ýmsum stöðum í kringum Kötlu. Vélarnar munu taka myndir á tuttugu mínútna fresti og því ætti að nást mynd af gosinu ef af því verður. „Mig langar að mynda Suðurlandið og svæðið í kringum jökulinn því gera má ráð fyrir því að þetta landsvæði verði fyrir miklum breytingum á næstunni. Mig langar með þessum hætti að búa til minnismerki um þá atburði sem hafa átt sér stað.“ Áhugasömum er bent á aðdáendasíðu Steina Fjalls á Facebook. - sm Selur gosmyndir sínar um allan heim MYNDAR KÖTLU Sigursteinn Baldursson ljósmyndari hyggst vakta Kötlu og ná þannig myndum af Kötlugosi verði það að veruleika. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN hafa einnig gert mikið úr verklag- inu við gerð þáttanna, leikarar fá til að mynda að vita sem minnst um framvinduna. „Ég veit samt ekki alveg hvort það hafi skipt einhverju máli fyrir mann sjálfan. Og þó, þetta hafði kannski einhver áhrif á stemninguna á tökustað en ég veit ekki hvort það komst til skila, það getur vel verið.“ Bro hefur komið nokkrum sinnum til Íslands, meðal annars í tengslum við tökurnar á The Good Heart. Hann segist elska land og þjóð og man sérstaklega eftir útreiðartúr sem hann fór í ásamt fríðum flokki Íslendinga. „Ég var mjög lélegur knapi,“ segir Bro og skellihlær. freyrgigja@frettabladid.is HAFNARFJARÐARKIRKJA.IS SÍÐASTA HJÓNANÁMSKEIÐIÐ Vegna fjölmargra áskorana verður bætt við auka hjóna og sambúðarnám- skeiði í Hafnarfjarðarkirkju 9. og 10. maí næstkomandi. Leiðbeinandi er sem fyrr sr.Þóhallur Heimisson. Á námskeiðunum er nú lögð sérstök áhersla á hvernig hægt er að styrkja innviði fjölskyldunnar og samband hjóna á þeim erfi ðu tímum sem ganga yfi r land og þjóð. Skráning fer fram á thorhallur33@gmail.com. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að fi nna á hafnarfjardarkirkja.is Athugið að takmarkaður fjöldi kemst að. Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn... Blaðberinn bíður þín

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.