Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 34
 13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR26 FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx Eitt tilvik fannst þar sem starfs- maður Landsbankans mælti með því að kunningi hans legði fremur peninga á bók en í peningabréf. Aðrir fengu skilaboð um að pen- ingamarkaðssjóðir væru hættulitl- ir. Rannsóknarnefnd Alþingis vill láta kanna refsiábyrgð. Vísað hefur verið til Fjármálaeftirlitsins (FME) og, eftir atvikum, sérstaks saksókn- ara úttektum úr peningamarkaðssjóðum á árinu vegna gruns rannsóknarnefndar Alþingis um að munur hafi verið á aðgengi eigenda hlutdeildarskírteina að upplýsing- um um stöðu sjóðanna fyrir bankahrun. Þá telur nefndin að kanna þurfi hvort stjórn, framkvæmdastjórar og lykilstarfs- menn verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélaga stóru bankanna þriggja hafi skapað sér refsiábyrgð með því að brjóta starfsskyldur við stjórnun og eftirlit sjóð- anna. Eins þurfi að rannsaka viðskipti á milli sjóða. Greining rannsóknarnefndarinnar leið- ir í ljós starfsmenn og tengdir aðilar, sem tóku út á bilinu 50 til 100 prósent eignar sinnar, voru fleiri en ótengdir aðilar. „Eins kemur fram að fyrirtæki tengdra aðila eru stærsti hópur þeirra sem tóku út 99 til 100 prósent af eign sinni,“ segir í skýrslu rann- sóknarnefndarinnar. Þóttist hringja úr útibúi Þá kemur fram að ónógt eftirlit virðist hafa verið með starfsemi peningamarkaðs- sjóða af hálfu FME og misbrestur á að viðskiptavinum væri gerð grein fyrir áhættunni sem fólst í fjárfestingu í slíkum sjóðum. Í sumum tilvikum virðist jafnvel sem viðskiptavinir hafi fengið kolrangar upplýsingar um áhættu. Í flestum tilvikum voru skilaboð starfsmanna sjóða bankanna þriggja þau að fjárfestingin væri áhættu- lítil eða áhættulaus. „Ekki virðast allir þó hafa fengið sömu ráðgjöf en athyglisvert dæmi um það er að finna í tölvubréfi frá 28. maí 2008 þar sem starfsmaður Landsbankans mælir fremur með innlánsreikningi en peninga- bréfum við viðskiptamann sem virðist vera kunningi,“ segir í kafla skýrslu rann- sóknarnefndarinnar um verðbréfa- og fjárfestingarsjóði. Þá kemur fram að nefndinni þyki tölvu- póstsamskipti milli tveggja starfsmanna Landsbankans í febrúar 2008 athyglisverð í ljósi afstöðunnar til markaðssetningar og sölu áskriftar að peningamarkaðssjóð- um. „Þó að ég sé að hringja fyrir söluverið eða eitthvað annað þá segist ég alltaf vera að hringja úr útibúinu þar sem viðskipta- vinurinn er í viðskiptum, það gerir það persónulegra,“ segir í tölvupósti sem vísað er til. Þá segir í bréfi starfsmanns Kaup- þings til viðskiptavinar í mars 2007: „Ertu að spá í áhættulaust? Ef svo myndi ég velja Peningamarkaðssjóð.“ Um leið er það mat rannsóknarnefndar- innar að fyrirkomulag áhættustýringar félaganna hafi tæpast fullnægt þeim faglegu kröfum sem gera verði til svo mikil vægs þáttar í starfsemi sjálfstæðra fjármálafyrirtækja. „Þá verður að gera athugasemdir við það að Fjármálaeftirlit- ið virðist ekki hafa fundið að því hvernig áhættustýringu var háttað fyrr en árið 2008,“ segir í skýrslunni. Brutu gegn ákvæðum laga Sérstaka athygli nefndarinnar vekur að Glitnir sjóðir og Landsvaki hafi útvistað áhættustýringu til móðurfélaganna, Glitn- is banka og Landsbankans, án gilds útvist- unarsamnings og án samþykkis Fjármála- eftirlitsins. Með því að leita ekki samþykkis FME fyrir útvistun áhættustýringar brutu rekstrarfélög bankanna gegn 18. grein laga um verðbréfasjóði og fjárfestingar- sjóði, að því er fram kemur í skýrslunni. „Að mati rannsóknarnefndar Alþingis verður að telja að þessi útvistun áhættu- stýringar til móðurfélaganna, án sér- staks samnings við móðurfélagið eða samþykkis Fjármálaeftirlitsins, endur- spegli bæði skort á fagmennsku og því óhæði sem rekstrarfélögin áttu að hafa frá móðurfélögum sínum.“ Áhættustýringu Rekstrarfélags Kaup- þings banka var hins vegar ekki útvistað til móðurfélagsins. „Þeir annmarkar voru aftur á móti á framkvæmdinni að sjóð- stjórar sáu sjálfir um áhættustýringu sjóðanna en þannig höfðu þeir eftirlit með sjálfum sér.“ Þá segir að mælikvarðar sem notaðir hafi verið til áhættumats virðist ein- göngu hafa náð til einstakra skuldara, en ekki heildarsamsetningar eigna. Í öllu falli hefði átt að skoða mun betur fylgni ávöxtunar eignanna og tengsla eigenda. „Á síðari stigum virðist ávöxtun hafa verið nánast eini mælikvarðinn sem sjóð- irnir miðuðu sig við, og þá helst ávöxtun sjóða hjá samkeppnisaðilum. Eitt skýrasta dæmi þess er sala ríkistryggðra eigna úr öllum sjóðunum á árunum 2007 og 2008. Virðist áhættudreifingu þar hafa verið fórnað fyrir ávöxtun.“ Í skýrslunni segir að þetta hafi sjóðstjórar staðfest. olikr@frettabladid.is 60 50 40 30 20 10 0% apr. maí jún. júl. ágú. sep. Starfsmenn og tengdir aðilar Tengd fyrirtæki Ótengdir ein- staklingar Ótengd fyrir- tæki Stærstu úttektirnar árið 2008 Eign í sjóði hærri en 15 milljónir króna HEIMILD: LANDSVAKI HF., GLITNIR SJÓÐIR HF., REKSTRARFÉLAG KAUPÞINGS BANKA HF. PENINGAR Reglur um sjálfstæði félaga sem ráku verðbréfa- og fjárfestingar- sjóði virðast hafa verið þverbrotnar, er niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis. Tengd félög tóku allt út úr sjóðum Sjálfstæði rekstrarfélaga verðbréfa- og fjárfesting- arsjóða gagnvart móðurfélögunum, bönkunum, var lítið, að því er fram kemur í áliti rannsóknarnefndar Alþingis. Um leið er bent á að lögum samkvæmt séu slík rekstrarfélög sjálfstæð fjármálafyrirtæki. Glöggt dæmi um skort á að starfsmenn gættu að sjálfstæði rekstrarfélaganna þeirra er sagt þegar framkvæmdastjóri Landsvaka sendi í maílok 2008 bankastjórum Landsbankans tölvupóst með lista yfir stóran hluta eigenda hlutdeildarskírteina. „Ekki verður séð að þessar upplýsingar hafi átt neitt erindi til bankastjóranna,“ segir í skýrslunni. Þá kemur fram að starfsmenn rekstrarfélaga hafi mikil samskipti haft við móðurfélagið. „Einnig voru launakerfi, launagreiðslur og bónusar tengdir móðurfélaginu á einn eða annan hátt, sérstaklega í tilviki Landsvaka og Rekstrarfélags Kaupþings banka.“ Niðurstaða nefndarinnar er að starfsmenn rekstrar félaganna hafi á engan hátt verið ótengd- ir móðurfélaginu og að öllum líkindum hafi starf þeirra litast af þeim tengslum. „Að mati rannsóknarnefndar Alþingis ber þetta fyrirkomulag vitni um verulegan skort á óhæði þessara rekstrar- félaga. Það er afar sérstakt að launakjör sjálfstæðra fjármálafyrirtækja, sem einungis ber að hafa hags- muni viðskiptavina sinna (hlutdeildarskírteinishafa) að leiðarljósi, skuli ráðast ýmist af ákvörðun starfs- manna annars fjármálafyrirtækis eða afkomu þess,“ segir í áliti nefndarinnar. Rekstrarfélög sjóða voru ekki sjálfstæð gagnvart bönkunum sem þau áttu: Starfið litaðist af tengslunum Í VERÐBRÉFADEILDINNI Myndin er tekin í Kaupþingi í mars 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Félög tengd eigendum Landsbankans áttu endurfjármögnun vísa í Peninga- bréfum ISK, en svo nefndist fjárfestingarsjóður Landsvaka sem aftur var í eigu Landsbankans. Þetta er meðal þess sem lesa má úr kafla rannsóknarnefndar Alþingis um verðbréfa- og fjárfestingarsjóði. Fjárfestingarstefna Peningabréfa ISK er sögð hafa verið mjög rúm. „Raunar er erfitt að túlka fjárfestingarstefnu sem hefur svo víð vikmörk sem stefnu af nokkru tagi. Sjóðstjóra eru lítil takmörk sett með svo rúmri stefnu og draga verður þá ályktun að líklega hafi verið fremur einfalt að framfylgja henni,“ segir í áliti nefndarinnar. „Áhugavert er að skoða hversu stóran hluta sjóðurinn átti í einstök- um flokkum verðbréfa sem gefin voru út af stærstu skuldunautum sjóðsins sem tengdust Landsbankanum,“ segir í áliti nefndarinnar. Bent er á að sjóð- urinn hafi aukið fjárfestingu í bréfum Landsbankans í lok mars 2008 þegar hann keypti fyrir 17 milljarða króna í víxilútgáfu sem var tveggja mánaða víxill að nafnvirði 30 milljarðar króna. Af þeirri útgáfu keypti sjóðurinn fyrir 18 milljarða að nafnverði eða 60 prósent allrar útgáfunnar. Á gjalddaga þess víxils fékk sjóðurinn endurgreidda 18 milljarða en keypti samdægurs fyrir 12 milljarða króna að nafnvirði í annarri verðbréfaútgáfu, framlengdi stóran hluta skuldarinnar. „Sjóðurinn endurtók leikinn allt til falls bankanna, fjárfesti í skammtímavíxlum Landsbankans fyrir 12 til 17 milljarða króna að nafnvirði eða fyrir um 10 prósent af heildarverðmæti sjóðsins í hvert skipti.“ Þá kemur fram að sjóðurinn hafi að jafnaði haldið um níu milljörðum króna í bréfum Samson, eignarhaldsfélags Björgólfsfeðga. „Því má segja að Samson hafi átt vísan aðgang að endurfjármögnun að hluta hjá sjóðnum. Svipaða sögu er að segja af fjárfestingum tengdum Straumi-Burðarási,“ segir í skýrslunni. Samson átti endurfjármögnun vísa Stærstu skuldararnir* Nafn Milljarðar króna Landsbankinn (m. innlánum) 77 Kaupþing banki 26 Straumur-Burðarás 18 Stoðir 17 Baugur Group 13 Eimskipafélagið 9 Samson eignarhaldsfélag 8 Glitnir banki 8 Atorka Group 6 Hagar hf. 3 Samtals: 185 *Peningabréf ISK 31. júlí 2008 Heimild: Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, kafli 14. Heildarverðmæti peningamarkaðssjóða bankanna þriggja jókst um rúm 400 prósent árin 2004 til 2008. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar kemur fram að verðmæti þeirra hafi farið úr 173 milljörðum í 893 milljarða króna. „Athygli vekur að vöxtur heildarverðmætis og fjölgun fjárfestingarsjóða hófst á vormánuðum 2006, um sama leyti og evrópskir fjármagnsmarkaðir lokuðu á fjármögnun íslenskra fyrirtækja vegna neikvæðrar umfjöllunar um íslensku bankana,“ segir í skýrslunni og bent á að þrátt fyrir vöxt hjá verð- bréfa- og fjárfestingarsjóðum hafi aðeins verið einn starfsmaður hjá Fjármála- eftirlitinu með eftirlit með þeim allt fram undir árslok 2007, en þá hafi verið fjölgað. „Þetta takmarkaða eftirlit var í engu samræmi við umfang sjóðanna eða þá fjárhagslegu hagsmuni sem um var að tefla fyrir almenning.“ Peningamarkaðssjóðirnir þöndust út Eftir að Baugur varð stór hluthafi í Glitni banka, í apríl 2007, jukust fjárfestingar í Sjóði 9, peningamarkaðssjóði bankans, í Baugi jafnt og þétt fram undir lok þess árs. „Mest átti sjóðurinn af verðbréfum útgefnum af félaginu í lok nóvember 2007 eða jafnvirði 13,5 milljarða króna,“ segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Upphæðin nam þá 9,7 prósentum af heildareignum sjóðsins. Sjóður 1, annar af verðbréfasjóðum Glitnis, átti mest af bréfum í Baugi í maí árið 2008, en þá nam upphæðin 3,3 milljörð- um króna, eða 6,6 prósentum af heildareignum sjóðsins. Í skýrslunni er staldrað við að Sjóður 1 hafi í apríl 2008 lánað Baugi einn milljarð króna til viðbótar við þátttöku í fyrri tilfæringum með bréf fyrirtækisins á milli sjóða Glitn- is. „Ofangreind viðskipti eru sérstaklega athyglisverð í ljósi þess að á tímabilinu sem skoðað var voru vísbendingar um að Baugur hefði þegar átt í alvarlegum greiðsluerfið- leikum,“ segir í skýrslunni. Baugur hafði ekki staðið skil á greiðslu á víxli í eigu Peningamarkaðssjóðs Kaupþings á gjalddaga 19. mars 2008. Sjóður 9 er sagður hafa velt skuld Baugs áfram með nýrri víxlaútgáfu. „Því má spyrja hversu vel Glitnir sjóðir hafi raunverulega kynnt sér lausafjárstöðu og greiðslugetu Baugs almennt þegar ákveðið var að framlengja 4,2 millj- arða króna skuld félagsins við Sjóð 9 á gjalddaga í mars 2008.“ Níunda júlí 2008 náðu hins vegar fréttir um slæma stöðu Baugs eyrum Glitnis sjóða þegar Baugur stóð ekki skil á greiðslu á víxli. „Að sögn sjóðstjóra hjá Glitni sjóðum var þetta fyrsta vísbendingin sem rekstrarfélagið fékk um slæma stöðu Baugs,“ segir í skýrslunni. Eftir fundi sjóðstjóra Sjóðs 9 og aðstoðarforstjóra Baugs og framkvæmdastjóra Glitnis var ákveðið að framlengja víxilinn gegn allsherjarveði til að tryggja betur möguleika á endanlegum endurheimtum. „Umrætt veð reyndist vera allsherjarveð á 3. og 4. veðrétti í hlutum Baugs Group í einkahlutafélaginu BG Holding ehf. en veðskjöl eru dagsett og undirrituð 27. ágúst 2008. Það er því ljóst að tryggingarréttindi þau sem felast í veðinu eru í besta falli óljós enda stendur veðið aftarlega í kröfuröðinni,“ segir í skýrslunni og bent á að þrátt fyrir að með vanskilum Baugs væru fram komnar alvarlegar vísbendingar um aukna skuldaraáhættu, hafi skráð virði bréfanna í sjóðnum ekki verið fært niður í samræmi við líklegt markaðsverð. Fjárfesting í Baugi jókst eftir breytingu á eignarhaldi Glitnis

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.