Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 13. apríl 2010 Í ágústmánuði árið 1988, komu hingað til lands sextán styrk- þegar frá Kellogg Foundation í Bandaríkjunum, fjórtán konur og tveir karlar. Hópurinn kaus að nota hluta af styrknum til að koma til Íslands, hitta íslenskt áhrifafólk á ýmsum sviðum og kynna sér viðhorf þess og feril. Einkum þó íslenskra kvenna í stjórnmálum og öðrum áhrifa- stöðum. Ein úr hópnum, prófessor í læknisfræði við Yale-háskóla í New Haven, hafði samband við vinkonu sína hér á landi sem undirbjó og skipulagði þessa þriggja daga heimsókn, sem tókst í alla staði mjög vel. Meðal annars áttu þær fund með for- seta Íslands, Vigdísi Finnboga- dóttur. Hún spjallaði við þær um landi og þjóð, sagði sögur af lífi hennar fyrr og síðar, um sjósókn og sjómenn, baðstofur og land- búnaði, fornritin og mikilvægi tungunnar. Þær komu út af þessum fundi upptendraðar, og ein þeirra sagði með áherslu: „If we had monar- chy in America, we would make her queen, and let her rule for- ever!“ Góð gjöf Vigdís Finnbogadóttir nýtur virðingar og vinarhlýju hvar sem hún kemur. Ekki aðeins fyrir árin í embætti forseta og störf sín á alþjóðavettvangi, heldur fyrir það sem hún er. Hún sjálf. Hún er líka óþreytandi í ræktuninni. Hún ræktar, jörð- ina, þekkinguna, vináttuna og tungumálið. Vigdís veit að gjafir geta verið með ýmsu móti. Orð geta til dæmis glatt og lifað leng- ur en margt annað. Árið 1988 sat ég í rútu á Álandseyjum ásamt fleiri Íslend- ingum í kynnisferð um eyjuna. Forseti þingsins í Mariehamn stóð fremst í rútunni, lýsti því sem fyrir augun bar og ræddi við hópinn. Sagði okkur meðal annars að forseti Íslands hefði heimsótt Álandseyjar og það gleymdi enginn þeirri heimsókn. Í ræðu sinni hefði Vigdís Finn- bogadóttir meðal annars sagt eitthvað á þá leið að ef maður legði saman það besta í Íslend- ingi og það besta í Finna, væri útkoman Álendingur!“ Þessi orð fyrnast ekki. Rútuferðin var afar áhuga- verð. Þarna er eyþjóð, um það bil tíu sinnum fámennari en við, en sjálfstæð og er nú aðili að ESB. Þegar okkur voru sýnd mann- virki og framkvæmdir, var það með sama stolti og drýldni og býr í okkur. Eins og í sjónhending skynjaði maður hvernig útlendingar frá milljónaþjóðum upplifa Ísland og Íslendinga. Þjóðargersemi Vigdís Finnbogadóttir er í raun og sannleika þjóðargersemi. Hún hefur ekki endilega verið óum- deild, frekar en aðrir sem veigur er í, en næstum því. Þessi kona sem hefur til að bera fágæta reisn og styrk, gerir þjóð sína stærri. Bæði í eigin augum og annarra. Ekki bara í dag, heldur um alla framtíð, eins og ameríska konan sagði. Glæsi- leg með æskubirtu í svip og sinni, og glampa í augum , rétt eins og þegar hún stóð í íslenska prjóna- kjólnum á svölunum um árið meðan fólk streymdi að til að samgleðjast fyrstu konunni sem kosin var forseti. Þegar hún gaf ekki lengur kost á sér í embættið og flutti frá Bessastöðum, var lengi talað um hana sem Vigdísi forseta í dag- legu tali. Sjálfri fannst mér að vegna sambands hennar og þjóð- arinnar, væri við hæfi að það héldi áfram. Að hún væri kölluð Vigdís forseti, rétt eins og Jón forseti. En núna finnst mér lang- flottast að nafnið hennar eitt er nóg. Það er bara ein Vigdís, þó að margar heiti þessu nafni. Allar þjóðir, smáar og stórar, samsama sig með bestu lista- mönnum sínum, afreksfólki og virtum leiðtogum. Það upphef- ur sig með því að minna á þessa samlanda sína. Þess vegna er þetta fólk bæði dýrmætt fyrir list sína og okkar sjálfsmat. Við erum ágætlega sett með góða listamenn, en það er ekki mikið um leiðtoga á stjórnmálasvið- inu þessa dagana sem gera mann stoltan og sjálfumglaðan. Og ég segi það satt, að mikið er ég þakklát fyrir að Vigdís Finn- bogadóttir er til – og að hún er Íslendingur. Hún ræktar, jörðina, þekking- una, vináttuna og tungumálið. Vigdís veit að gjafir geta verið með ýmsu móti. Orð geta til dæmis glatt og lifað lengur en margt annað. Hver er svona lítil og sæt? Ótrúlega lítil og nett Dell Inspiron Mini Innifalið: Netfrelsi frá Vodafone Innbyggt 3G netkort 5 GB gagnamagn innifalið í 1 mán. 0 kr. útborgun og 6.990 kr. á mán. í 12 mán. eða 79.990 kr. staðgreitt. Nánari upplýsingar á vodafone.is og í síma 1414. Einstök kona Þessi ofangreindu matsfyrirtæki gefa skuldabréfum, fjármála- afurðum, fyrirtækjum, bönkum ,ríkjum o.s.frv. matseinkunnir. Öll þessi matsfyrirtæki eiga sameigin- legt að vera rekinn fyrir hámarks- ávöxtun hluthafa sinna og eru hlutafélög á almennum hlutabréfa- markaði. Moody´s Corp er skráð á New York Stock Exchange (NYSE). Standard & Poors er partur af McGraw Hill Companies, útgáf- urisans sem gefur m.a. út Busin- essWeek. McGraw Hill er einnig skráð á New York Stock Exchange (NYSE). Fitch Ratings er í meiri- hluta eigu Fimalacs, sem er skráð á kauphöllina í París. Hvernig vinna þessi mats- fyrirtæki og fyrir hverja? Mats- fyrirtækin vinna eftir pöntunum, þ.a.l. fyrir alla sem vilja kaupa sér mat eða eikunn á einhverju. Þessi matsfyrirtæki leggja einkunnir á þjóðir og sjálfstæð ríki. Hver borg- ar fyrir það? Bankarnir okkar þrír sem fóru rúllandi á hausinn í októ- ber 2008 voru með öll þessi fyrir- tæki í vinnu og borguðu mats- fyrirtækjunum þremur hundruð milljóna á ári undanfarin ár, fyrir góðar einkunnir. Af hverju vöruðu ekki þessi fyrirtæki heimsbyggð- ina við þessum íslensku bönkum í tæka tíð? Gaman væri að fá að sjá sundurliðaðan reikning frá þeim fyrir íslensku bankana undanfarin 5 ár. Þessi þrjú matsfyrirtæki vinna fyrir OECD, ESB og öll lönd innan ESB. Einnig vinna öll matsfyrirtæk- in fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þannig að nú getur hverjum sýnst hvað í samskiptum okkar við þessi fyrirtæki. Einnig verð ég að benda á, að þessi sömu fyr- irtæki eru ráðin til þess að gefa einkunnir og eða mat á lánshæfni á nýjum útgáfum hjá bönkum og verðbréfafyrirtækjum á skulda- bréfum og öðrum verðbréfum sem bankar fara með í sölu. Þegar það er gert er, þá er kostnaðurinn iðu- lega settur inn í verðið og kúnn- inn situr uppi með kostnaðinn, án þess þó að vita af því. Ef bönkum var bent á af matsfyrirtækjunum að viðkomandi útgáfa væri hugsan- lega of áhættusöm geta bankarn- ir keypt sér tryggingu hjá hinum ýmsu tryggingarfyrirtækjum sem selja slíka tryggingu og áhættan er minnkuð. Einnig er bönkum boðið að kaupa alls konar aukadót eins og rannsóknarvinnu, gagnabanka- þjónustu, tölvuforrit og aðrar upp- lýsingar á uppsprengdu verði. þetta er kallað í bankaheiminum „soft money“ sem útleggst á góðri íslensku mútur. Í dag er lánshæfismat þjóðar- innar lágt og þá eigum við að nota tækifærið og kaupa upp skuldir okkar erlendis á djúpum afslætti. Ef að stjórnvöld aftur á móti hafa miklar áhyggjur af lánshæfismati íslensku þjóðarinnar, vil ég benda þeim á að panta fund hjá þessum matsfyrirtækjum og byrja að borga fyrir góðar einkunnir ef þeir kæra sig um. Moody´s, S&P og Fitch Rat- ings myndu koma með fyrstu flug- vél, því þeir hafa jú misst eitthvað úr aski sínum. Meginreglan er sú, að sá sem hefur bestu glærugerðarmennina og stærsta efnahagsreikninginn fær hæstu einkunn eins og gamla Kaupþing. Fitch, Moody‘s og Standard & Poors Jónína Michaelsdóttir Blaðamaður Í DAG Guðmundur Franklín Jónsson Kaupsýslumaður Matseinkunnir fyrirtækja A u g lý si n g a sí m i Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.