Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 4
4 13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR DÓMSMÁL Mál sautján meintra kaupenda vændis á vegum Catal- inu Mikue Ncogo hafa verið send til ríkissaksóknara. Þar verður tekin ákvörðun um hvort einhverj- ir þeirra eða allir verða ákærðir. Kaup á vændi eru brot á ákvæði almennra hegningarlaga. Í ákvæð- inu segir að hver sem greiði eða heiti greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi skuli sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins greiddu kaupendur um tuttugu þúsund krónur fyrir þjónustuna í hvert skipti. Enginn þeirra mun hafa keypt vændis- þjónustuna ítrekað. Catalina situr í gæsluvarðhaldi til 23. apríl. Vitnisburðir kvenna vegna rannsóknar lögreglu á starf- semi hennar benda til þess að hún hafi gerst sek um mansal gagn- vart sumum þeirra. Hún hafi beitt ofbeldi, hótunum um ofbeldi og frelsissviptingu gegn konunum. Við rannsókn málsins hafa konur borið að þær hafi stundað vændi hér á landi á vegum Catalinu og að þær hafi komið til landsins í því skyni að starfa við vændi á vegum hennar. Þá hefur hún reynt að fá samfanga sinn, unga konu, til að starfa fyrir sig í vændi fyrir 500.000 krónur á mánuði þegar hún væri laus úr fangelsi. - jss Í GÆSLUVARÐHALDI Catalina situr í gæsluvarðhaldi. Meintir kaupendur vændisþjónstu Catalinu Mikue Ncogo bíða ákvörðunar: 17 vændiskaupamál til saksóknara Ellefu látnir eftir lestarslys Að minnsta kosti ellefu manns létust og 30 eru særðir eftir að aurskriða féll á lest í norðurhluta Ítalíu í gærmorg- un. Svo virðist sem vatnsleiðsla hafi brostið og aurskriðan orðið vegna þess. ÍTALÍA Íkveikja á Hrauninu Lögreglan á Selfossi rannsakar meinta íkveikja í fangaklefa á Litla-Hrauni í lok síðustu viku. Þar voru tveir menn saman í klefa þegar eldur kom þar upp. Fangaverðir náðu með snarræði að slökkva eldinn. LÖGREGLUFRÉTTIR TAÍLAND, AP Abhisit Vejjajivea, forsætisráðherra Taílands, er nú undir vaxandi þrýstingi að segja af sér og boða til kosninga. Kosningaeftirlit landsins úrskurðaði í gær að flokkur for- sætisráðherrans hafi misnotað fjárframlög sem honum hafi bor- ist. Leysa eigi flokkinn upp og boða til kosninga. Þá sagði hers- höfðinginn Anupong Paochinda í gær að mögulega yrði að leysa þingið upp til þess að skapa sátt. Herinn er valdamikill og hing- að til hefur forsætisráðherrann notið stuðnings hans. Mikil mótmæli hafa verið gegn ríkjandi stjórn landsins undan- farinn mánuð. Á laugardag létust svo fjórir hermenn og sautján óbreyttir borgarar þegar lög- reglu og her mistókst að leysa mótmælin upp. - þeb Kosningaeftirlit í Taílandi: Vilja leysa ríkis- stjórn upp DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi, þar af sjö á skil- orði, fyrir húsbrot, hótanir og rán. Félagi hans var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og sá þriðji var dæmdur til að greiða 80 þúsund króna sekt. Þrír til sem ákærðir voru í málinu, voru sýknaðir. Þrír menn ruddust inn á heimili tveggja ungra manna með hótun- um ef þeir létu ekki verðmæt tæki af hendi. Þeir sögðust bora með borvél í hné þeirra og beindu að þeim hnífi, áður en þeir yfirgáfu húsnæðið með verðmætin. - jss Dæmdir fyrir húsbrot og rán: Hótuðu ofbeldi VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 12° 15° 11° 9° 12° 11° 11° 21° 14° 17° 15° 28° 11° 13° 17° 8°Á MORGUN 6-12 m/s, hvassast vestan til. FIMMTUDAGUR Vestlæg átt, víða 5-8 m/s. 8 7 6 7 8 9 12 8 6 8 3 8 10 9 9 5 6 6 10 4 7 9 6 5 5 8 6 6 4 3 5 5 TÍÐINDALÍTIÐ Í dag má búast við nokkuð björtu veðri austan til en það þykknar þó heldur upp er líður á daginn. Hita- stig verður með ágætum næstu tvo daga en síðan kólnar heldur á landinu. Vestlægar áttir verða ríkjandi út vikuna en vindur verður tiltölulega hægur. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður ■ Refsiverð brot stjórnenda banka og annarra fjármálafyrirtækja. Vanhöld meðal annars talin vera á ársreikningum, sem stjórnendurnir báru ábyrgð á, auk þess sem stjórnarmenn hafi í einhverjum tilvik- um haft ólögmæt afskipti af ákvörðunum um einstök viðskipti. ■ Skuldatryggingakaup Icebank af viðskiptavinum sínum. Icebank keypti til dæmis í árslok 2007 skuldatryggingu fyrir skuldabréf að fjárhæð átta milljarðar af ónefndu fyrirtæki með eigið fé sem nam 105 milljónum. „Líkurn- ar á því að fyrirtækið gæti bætt Icebank 8.000 milljónir króna voru því nánast engar,“ segir nefndin. Grunur leikur á að þetta hafi verið málamyndargerningur notaður til þess að tryggja að Icebank uppfyllti lágmarkskröfur um eiginfjárhlutfall. ■ Meint auðgunarbrot þegar Kaupþing lánaði fyrir sölu á skuldatryggingum á sjálft sig. Kaupendur skuldabréf- anna, og þar með seljendur skulda- trygginganna, voru stórir viðskipta- vinir Kaupþings, sem gátu einungis grætt á viðskiptunum á meðan áhættan lá alfarið hjá bankanum. ■ Fimm lán Kaupþings til kýpverska félagsins Desulo Trading ltd. upp á samtals rúma 20 milljarða til kaupa á bréfum í bankanum sjálfum. Grunur um markaðsmisnotkun. Egill Ágústsson, framkvæmdastjóri Íslensk-Ameríska, er skráður fyrir félaginu. ■ Hálfs milljarðs lán Kaupþings til Caramba, félags í eigu Björns Inga Hrafnssonar, til kaupa á bréfum í Existu. Grunur um markaðsmisnotkun. ■ Veðtökur stóru bankanna í eigin bréfum sem voru langt umfram 10 prósenta hámarkið. Sem dæmi var verðmæti veða Kaupþings í eigin bréfum 214 millj- arðar í lok september 2008, eða 42 prósent af öllum bréfum bankans. ■ Kaup Baugs á eigin bréfum af stærstu eigendum sínum fyrir hluta af söluverðmæti Haga til 1998 ehf. Þetta hafi verið til þess fallið að rýra hagsmuni ann- arra kröfuhafa Baugs. ■ Framvirkir samningar upp á samtals tíu milljarða um skuldabréf í FL Group við tvö félög, Glúx ehf. og Cons- ensus ehf., með það að markmiði að lána FL Group féð án þess að telja það til áhættu Glitnis vegna tengdra aðila. Til tryggingar var meðal annars víxill útgefinn af Icebank, en starfsmenn hans eru taldir hafa verið með í ráðum. ■ Aðrar ótilgreindar óábyrgar lánveit- ingar, þar sem reglum um áhættumat, innri verkferla, til dæmis umfjöllun lánanefnda, og viðmiðum um trygging- ar var ekki fylgt. Viðmiðum um veðköll ekki alltaf fylgt og einnig gríðarlegar fjárhæðir lánaðar eignarhaldsfélögum sem áttu ekki meira eigið fé en hálfa milljón án annarra veða en bréfanna sem lánað var fyrir. ■ Kaupréttarsamningar og framkvæmd þeirra eru í einhverjum tilvikum taldir hafa verið markaðsmisnotkun. Dæmi nefnd um það þegar Landsbankinn meinaði starfsmönnum sínum að inn- leysa kauprétti í desember 2007 til að halda uppi gengi bréfa í bankanum. ■ Bankarnir allir hafi tryggt óeðlilegt verð á hlutabréfum í sjálfum sér eða stuðlað að því að rangar eða misvísandi upplýsing- ar væru gefnar um framboð, eftirspurn eða verð bréfanna. ■ Gjaldeyrisviðskipti Kaupþings og tengdra félaga fyrir 1.392 milljónir evra á þremur mánuðum um áramót- in 2007 og 2008. Þetta kolfelldi íslensku krónuna og grunur leikur á markaðsmisnotkun. ■ Endurskoðendur bankanna eru taldir hafa brotið starfsskyldur sínar. ■ Stjórnendur peningamarkaðssjóða bankanna eru grunaðir um að hafa brotið með refsiverðum hætti starfsskyldur sínar við fjárstýringu og utanumhald sjóðanna. ■ Fjöldi innherja tók eign sína út úr peningamarkaðs- sjóðunum skömmu fyrir hrun. Mál sem vísað er til saksóknara RANNSÓKNARSKÝRSLAN Endurskoðend- ur bankanna, peninga markaðssjóðir þeirra, afskipti stjórnarmanna af einstökum viðskiptum, kaupréttar- samningar starfsmanna og umfangs- mikil markaðsmisnotkun er meðal þess sem rannsóknarnefnd Alþing- is telur að saksóknari eigi að taka til sérstakrar rannsóknar. Sérstakur kafli er í skýrslunni um málin. Skjalið var fært Birni L. Bergssyni, settum ríkissaksóknara, á sunnudag og mun hann nú leggjast yfir upplýsing- arnar og ákveða hvort málunum verði eftir atvik- um vísað áfram til sérstaks saksókn- ara til sakamála- rannsóknar. Ekki er um tölu- settan lista yfir einstök mál að ræða, heldur fyrst og fremst mála- flokka sem nefnd- in telur ástæðu til að rannsaka sér- staklega með tilliti til þess hvort þar voru framin refsiverð afbrot. Nokk- ur einstök mál eru þó nefnd til sög- unnar. Sjá má listann hér til hliðar. Björn segir í samtali við Frétta- blaðið að töluverð vinna sé nú fram undan við að greina upplýsingarnar í skýrslunni og vísa síðan málum áfram til Ólafs Haukssonar, sérstaks saksóknara. Ekki sé þó mjög margt splunkunýtt í kaflanum. Ólafur tekur í sama streng. „Velflest höfum við séð áður eða erum byrjuð að vinna í,“ segir hann. „En það er eitt og annað nýtt,“ bætir hann þó við. stigur@frettabladid.is Fátt nýtt til ríkissaksóknara Rannsóknarnefndin afhenti saksóknara lista yfir mál sem hún telur þarfnast rannsóknar. Endurskoðendur, peningamarkaðssjóðir og kaupréttir til skoðunar. „Velflest höfum við séð áður,“ segir sérstakur saksóknari. BJÖRN L. BERGSSON ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON Grunur um salmonellusmit Grunur er um salmonellusmit í fersk- um kjúklingi framleiddum af Ísfugli og Matfugli. Frekari rannsókna er þörf til að staðfesta gruninn. Dreifing á vörunni hefur verið stöðvuð og vörurnar innkallaðar. HEILBRIGÐISMÁL AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 12.04.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 226,4107 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,67 126,27 193,88 194,82 170,85 171,81 22,951 23,085 21,362 21,488 17,529 17,631 1,3428 1,3506 191,62 192,76 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Gólfþjónustan er með sérlausnir í smíði borða fyrir fyrirtæki og heimili. Við smíðum borð algjörlega eftir þínu máli svo sem borðstofuborð, sófaborð og fundarborð. SÉRSMÍÐI ÚR PARKETI info@golfthjonustan is | golfthjonustan is S: 897 2225

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.