Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 6
 13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR6 FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx „Skilaboð almennt frá yfirvöldum voru þau að menn hefðu bara miklar áhyggjur af stöðunni, menn eru náttúrlega – ég var náttúrlega, tel ég nokkuð hreinskilið, menn höfðu alltaf mestar áhyggjur af okkur, eða svo höfðu þeir aðeins minni áhyggjur af okkur yfir sumarið, þannig að ég fékk alls konar skilaboð úr öllum áttum um að ég væri algjörlega, vissi ekkert hvað ég væri að gera, alveg vonlaus í öllu. Þannig að það voru svona almennt skilaboðin, það voru svo sem engin sérstök skilaboð.“ LÁRUS WELDING Í YFIRHEYRSLU HJÁ RANNSÓKNARNEFNDINNI Seðlabanki og ráðherrar brutu stjórnsýslulög, eigin verklagsreglur, óskráðar meginreglur og jafnvel stjórnarskrá þegar ákveð- ið var að bregðast við ósk Glitnis um lán til þrauta- vara með þjóðnýtingu. Seðlabankinn hafði ekki forsendur til að meta hvort sú leið sem hann gerði til- lögu um væri forsvaranleg. Þjóðnýting Glitnis er harð- lega gagnrýnd í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis. Spjót- um nefndarinnar er bæði beint að bankastjórn Seðlabankans og ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Seðlabankinn aflaði ekki nauðsyn- legra gagna um stöðu Glitnis og lagði ekki mat á hugsanleg viðbrögð markaðarins og þá hættu sem þjóð- nýtingin gat haft í för með sér fyrir fjármálakerfið. Seðlabankinn hafði í raun ekki forsendur til að meta hvort leiðin sem hann lagði til að ríkisstjórnin færi í málinu væri forsvaranleg, segir í skýrslunni. Atburðarásin hófst 25. september, á fundi þar sem Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður bankans, óskaði munnlega eftir aðstoð Seðlabankans við Glitni vegna erfiðleika bankans við að standa í skilum með lán sem voru þá að komast á gjalddaga innan skamms. Við meðferð málsins var ekki fylgt eigin áætlun Seðlabankans um viðbrögð við lausafjárvanda og veitingu svonefndra þrautarvara- lána til fjármálafyrirtækja. „Seðla- bankinn leitaði ekki til viðeigandi sérfræðinga bankans og þeir sér- fræðingar sem þó unnu að undir- búningi og mati á málinu voru flest- ir kallaðir til síðla sunnudagsins 28. september,“ segir í skýrslunni. Þá var í raun búið að taka ákvörðun um að ríkið eignaðist 75% hlutafé í bankanum. Það var tilkynnt eig- endum Glitnis þá um nóttina og almenningi daginn eftir. Í skýrslunni segir að lítill gaum- ur hafi verið gefinn að því að meta trúverðugleika þeirra aðgerða sem Seðlabankinn lagði til gagnvart erlendum lánveitendum og aðil- um á markaði. Það sé ámælisvert. „Ekki er að sjá að líkur á hugs- anlegri gjaldfellingu hafi verið metnar á rökstuddan hátt af Seðla- banka Íslands,“ segir í skýrslunni. „Stjórnendum Seðlabankans mátti sem sérfróðum aðilum á þessu sviði vera ljóst að veruleg hætta væri á að inngrip ríkisins í Glitni, með þeim hætti sem lagt var til, yrði talin ótrúverðug aðgerð.“ Auk bankastjórnar Seðlabank- ans sýndu ráðherrarnir Árni M. Mathiesen og Geir H. Haarde af sér vanrækslu, segir í skýrslunni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, hafði óskað eftir því að Össur Skarphéð- insson, en ekki Björgvin G. Sig- urðsson viðskiptaráðherra, tæki þátt í afgreiðslu á málum Glitn- is fyrir hönd Samfylkingarinnar. Þrátt fyrir það bar bæði Geir, sem verkstjóra ríkisstjórnarinnar, og einnig Árna M. Mathiesen, skylda til að sjá um að Björgvin væri upp- lýstur um málið. Nefndin vísar í þessu sambandi til stjórnarskrár- ákvæða og reglugerðar um stjórn- arráð Íslands. „Málefni er varða fjármálafyrirtæki eins og Glitni heyrðu á þessum tíma undir mál- efnasvið viðskiptaráðherra,“ segir í skýrslunni. Viðskiptaráðherrann frétti hins vegar af málinu fyrir tilviljun þegar það var á lokastigi að kvöldi sunnudagsins 28. september. peturg@frettabladid.is Úr skýrslu rannsóknarnefndar „Og mér var sérstaklega minnisstætt að þegar fundurinn er að hefjast þá snýtir Össur sér og segir yfir fundarborðið að hann hafi bara akkúrat ekkert vit á bankamálum [ … ] Og síðan bara endaði fund- urinn snögglega og ég hugsaði með mér: Bíddu, ætlar enginn að „rappa“ upp hvað var sagt og hvaða ákvörðun var tekin? En ég meina, það var bara ég allavegana náði engri ákvörðun þarna, enda var engin ákvörðun tekin.“ SIGRÍÐUR LOGADÓTTIR, LÖGFRÆÐINGUR SEÐLABANKANS, VAR VIÐSTÖDD ÖRLAGARÍKAN FUND UM ÞJÓÐNÝTINGU GLITNIS. Rannsóknar- Samfylkingarfélagi í Reykjavík heldur opna félagsfundi næstu rjá mi vikudaga, 14. apríl, 21. apríl og 28. apríl, sem allir munu fjalla um sk rslu rannsóknarnefndar Al ingis frá msum hli um. Fundirnir ver a á Hallveigarstíg 1 og hefjast kl. 20.30. ______________________________________________ Mi vikudagur 14. apríl Hva stendur í sk rslunni? Gestir fyrsta fundarins ver a Sigur ur Líndal, lagaprófessor og Jóhann Hauksson, bla ama ur. Fundarstjóri ver ur Helga Vala Helgadóttir, laganemi. ______________________________________________ Mi vikudagur 21. apríl Hva a lærdóm má Samfylkingin draga af sk rslunni? Gestir á ö rum fundinum ver a Valger ur Bjarnadóttir, ingkona og Jóhann Ársælsson, fyrrverandi ingma ur. Fundarstjóri ver ur Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi. ______________________________________________ Mi vikudagur 28. apríl Hva finnst ér um sk rsluna? Á ri ja fundinum ver a engir frummælendur heldur munu flokksfélagar eiga svi i . Haldin ver ur opin hugmyndasmi ja ar sem félagsmenn fjalla um sk rsluna, spyrja spurninga og deila hugsunum sem kvikna hafa eftir vi bur i sí ustu vikna. Umræ um stjórnar Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri. ______________________________________________ Vi hvetjum félagsmenn og a ra sem hafa áhuga á a ræ a og kynna sér efni sk rslunnar a fjölmenna á mi vikudagsfundi félagsins og taka átt í mótun samfélagsins. Allir velkomnir! Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík Kynnt me fyrirvara um breytingar. sk rslan Hörð gagnrýni á þjóðnýtingu Glitnis „Ég var rétt byrjaður, þá trylltist hann, sagði að ég væri að grafa undan tillögum hans og sagði: „Þarna situr forsætisráðherra frammi og skelfur eins og lauf í vindi og getur ekki tekið ákvörðun. Hann hlustar á þig og þú ert að grafa undan þessu. Ef þetta gengur ekki fram mun ég persónulega sjá til þess að þér verði ólíft á Íslandi það sem eftir er.“ Jafnframt sagði hann að ég skyldi ekki hræra í Össuri, þá skyldi hann eiga mig á fæti. Hann var vægast sagt tryllings- legur og mér féll gjörsamlega allur ketill í eldinn. Ég brást við með því að segja að við hefðum verið samherjar til margra ára, ég hefði ekkert annað í huga en framtíð landsins okkar, hann róaðist nokkuð við það en ég sá að hann hugsaði mér þegjandi þörfina.“ TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON UM EINKA- FUND SINN MEÐ DAVÍÐ ODDSSYNI Í AÐDRAGANDA ÞJÓÐNÝTINGAR GLITNIS. ÞJÓÐNÝTING Davíð Oddsson seðlabankastjóri og Lárus Welding, bankastjóri Glitnis, tilkynntu á blaðamannafundi að ríkið yrði eigandi 75 prósenta hlutafjár í Glitni. Úr skýrslu rannsóknarnefndar Úr skýrslu rannsóknarnefndar FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA Sjö sjálfstæðismenn eru á lista þeirra tíu alþingis- manna sem fengu yfir 100 milljóna króna lánafyrir- greiðslu frá íslensku bönkunum frá ársbyrjun 2005 og fram að falli bankanna. Upphæðirnar taka einnig til lána til maka þingmanna og félaga í þeirra eigu. Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráð- herra, trónir á toppi listans og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, er í öðru sæti. Lánin sem þær eru skráðar fyrir skrif- ast að langstærstum hluta á maka þeirra, Kristin Björnsson og Kristján Arason. Herdís Þórðardóttir er þriðja á listanum, en stór hluti lána sem skráð eru á hana eru vegna lána eigin- manns hennar eða sameiginlegs félags í þeirra eigu. Herdís sat á þingi í tvö ár frá 2007 til 2009. Fimmti er Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingunni, sem fékk 755 milljónir að láni. Sjö sjálfstæðismenn eru sem áður segir á listanum, einn samfylkingarmaður og tveir framsóknarmenn. Þrír sitja enn á Alþingi: Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal, öll úr Sjálfstæðisflokki. Flokksbróðir þeirra, Ármann Kr. Ólafsson, er odd- viti sjálfstæðismanna fyrir bæjarstjórnarkosningarn- ar í Kópavogi. Hann skuldaði mest 248 milljónir. - sh Þingmenn og makar þeirra skulduðu bönkunum háar fjárhæðir árin fyrir hrun: Sólveig og Þorgerður með mest 1 Sólveig Pétursdóttir 3.635 milljónir 2 Þorgerður K. Gunnarsdóttir 1.683 milljónir 3 Herdís Þórðardóttir 1.020 milljónir 4 Lúðvík Bergvinsson 755 milljónir 5 Jónína Bjartmarz 283 milljónir 6 Árni Magnússon 265 milljónir 7 Ármann Kr. Ólafsson 248 milljónir 8 Bjarni Benediktsson 174 milljónir 9 Ásta Möller 141 milljónir 10 Ólöf Nordal 113 milljónir Lán til alþingismanna og maka þeirra

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.