Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 38
13. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
RÚNAR JÚLÍUSSON FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1945.
„Ég hef margoft fengið til-
boð um að fara í framboð
en jafnoft hef ég sagt nei.
Ég kann betur við mig í tón-
listinni þar sem umhverfið
er þægilegra.“
Guðmundur Rúnar Júlíusson
var einn dáðasti tónlistar-
maður þjóðarinnar frá því
hann steig á svið með Hljóm-
um 1963 og þar til hann lést í
lok árs 2008.
Málþing sem fjallar um opinn aðgang að vísindalegum upp-
lýsingum verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu
klukkan 15.00 í dag. Málþingið er haldið á vegum áhuga-
hóps um málefnið og Áslaug Agnarsdóttir, sviðsstjóri þjón-
ustusviðs Landsbókasafns Íslands, er ein þeirra sem standa
að hópnum.
„Með hugtakinu opnum aðgangi er átt við að afrakstur
vísindastarfs, sem kostað er af opinberu fé, sé aðgengilegur
öllum. Er þar um að ræða rannsóknir sem unnar eru fyrir fé
háskóla af starfsmönnum háskóla eða þá þeirra sem hljóta
styrki úr opinberum rannsóknar- eða samkeppnisjóðum,“
segir Áslaug.
Baráttan fyrir opnum aðgangi er ekki síst til komin að
hennar sögn vegna þess að í seinni tíð, eftir að efni fór að
birtast í auknum mæli rafrænt, hafi það reynst bókasöfn-
um afar dýrt að kaupa aðgang að efninu. „Bókasöfn hafa
til dæmis alltaf unnið að því að kaupa efni og afla heimilda
fyrir þá sem til þeirra leita en eftir að kostnaðurinn jókst
svo gífurlega fóru ýmis verkefni af stað sem miðuðu að því
að gera efnið aðgengilegt með eins litlum tilkostnaði og hægt
væri. Get ég þar nefnt sem dæmi verkefni sem við höfum
umsjón með hér á Landsbókasafni fyrir hönd menntamála-
ráðuneytis – að kaupa landsaðgang að rafrænum gagnasöfn-
um og tímaritum – sem notendur hafa svo ókeypis aðgang að
á hvar.is. Þessi aðgangur kostar nú rúmlega hundrað millj-
ónir á ári. Til móts við þetta hefur sprottið upp hreyfing sem
byrjaði árið 2001 í Búdapest, þar sem yfirlýsing um opinn
aðgang var samþykkt.“
Umræða um opinn aðgang hefur verið ofarlega á baugi í
háskólasamfélögum um allan heim en á Íslandi hefur doði
ríkt hvað málefnið varðar að sögn Áslaugar. „Okkar mark-
mið er að kynna þetta hugtak og fá sem flesta til að styðja
við opinn aðgang, meðal annars með því að fá íslensku
háskólana og aðra þá sem veita rannsóknarstyrki, svo sem
Rannís, til að mynda sér stefnu um opinn aðgang, líkt og
gert hefur verið víða erlendis, til dæmis í mörgum rann-
sóknarráðum og háskólum á Norðurlöndum, svo sem í Kaup-
mannahöfn, Bergen, Stokkhólmi og Helsinki og í Bandaríkj-
unum, meðal annars í Harvard-háskóla, MIT og Stanford.“
Vefsíðan openaccess.is hefur verið sett upp af hópnum til
upplýsinga um málefnið og tvær leiðir kynntar sem hægt
er að fara til að birta efni í opnum aðgangi. „Annars vegar
er það græn leið svokölluð, þar sem efnið er birt í varð-
veislusafni þeirrar stofnunar sem viðkomandi starfar hjá,
og svo er það hin aðgerðin, þar sem greinin er gefin út í
opnum aðgangi með leyfi útgefandans. Slík leið er kölluð
gullna leiðin.“
Einn helsti sérfræðingur heims í opnum aðgangi, Peter
Suber, frá Harvard-háskóla, er fyrirlesari á málþinginu.
„Opinn aðgangur kemur öllum til góða. Bæði hefur hann í
för með sér að rannsóknir og rannsóknarniðurstöður verða
sýnilegri og jafnframt geta rannsakendur kynnt sér það
sem áður hefur birst um sama efni og öðlast yfirgripsmeiri
þekkingu á tilteknu sviði.“ juliam@frettabladid.is
MÁLÞING: AÐGANGUR AÐ UPPLÝSINGUM
Viljum stuðning
við málefnið
MIKILVÆGT FYRIR ALLA „Með hugtakinu opnum aðgangi er átt við að
afrakstur vísindastarfs, sem kostað er af opinberu fé, sé aðgengilegt
öllum,“ segir Áslaug Agnarsdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs Landsbóka-
safns Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
María Skúladóttir,
síðast til heimilis að Skjóli,
Kleppsvegi 64,
lést laugardaginn 10. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birgir Óttar Ríkharðsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Ásgeirs Hallssonar,
Hvassaleiti 101, Reykjavík,
og heiðruðu minningu hans. Sérstakar þakkir til starfs-
fólks Droplaugarstaða fyrir frábæra umönnun.
Margrét Halldóra Sveinsdóttir
Guðný Ásgeirsdóttir Stäuble Markus Stäuble
Ásgeir Ásgeirsson Ingibjörg Ýr Pálmadóttir
og fjölskyldur.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Aðalsteinn Einarsson,
til heimilis að Miðtúni 1, Seyðisfirði, lést á heimili
sínu þann 5. apríl síðastliðinn. Jarðsungið verður frá
Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 17. apríl kl. 14.00.
Jónbjört Aðalsteinsdóttir Snorri Jónsson
Einar Aðalsteinsson Hugrún Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir, systir og
mágkona,
Borghildur Magnúsdóttir,
Þingvallastræti 2, Akureyri,
andaðist á heimili sínu 10. apríl sl. Útför hennar fer fram í
Akureyrarkirkju mánudaginn 19. apríl nk. kl. 13.30.
Gísli Gunnlaugsson
Jóhanna María Gísladóttir
Jakob Frímann Magnússon Birna Rún Gísladóttir
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra sem sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs föður
okkar, tengdaföður og afa,
Páls Ólafssonar,
bónda, Brautarholti, Kjalarnesi.
Guðrún Pálsdóttir Sveinn G. Segatta
Ásta Pálsdóttir Gunnar Páll Pálsson
Þórdís Pálsdóttir
Ingibjörg Pálsdóttir
Bjarni Pálsson
Ólöf Hildur Pálsdóttir Sigurður V. Guðjónsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Hjörleifur Guðnason,
Gullsmára 9 í Kópvogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 9. apríl.
Útförin verður auglýst nánar síðar.
Margrét Hjörleifsdóttir Eiríkur Ólafsson
Elín Hjörleifsdóttir Sumarliði Aðalsteinsson
Guðni Hjörleifsson Sigríður Margrét Vigfúsdóttir
Ingólfur Hjörleifsson Steinunn Jónsdóttir
og systkinabörn og fjölskyldur þeirra.
Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir
og frændi,
Sigursteinn Olgeirsson,
Skólabraut 10, Seltjarnarnes,
andaðist á heimili sínu 6. apríl síðastliðinn. Útförin fer
fram í Fossvogskapellu föstudaginn 16. apríl kl. 11.00
að undangenginni kistulagningu kl. 10.30. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Hjálpræðisherinn.
Svanborg Sigursteinsdóttir og fjölskylda,
Helga Olgeirsdóttir og fjölskylda,
Brynja Olgeirsdóttir og fjölskylda.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Stefanía A. Jónsdóttir,
Herjólfsgötu 36,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala 10. apríl.
Jón Guðmundsson
Guðmundur Geir Jónsson Sigríður B. Eggertsdóttir
Jón Eggert Guðmundsson
Jóhannes Geir Guðmundsson Pamela Perez
Björgvin Guðmundsson
og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur og
frændi.
Leifur Gunnarsson,
Huldulandi 3, Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 4. apríl.
Jarðsungið verður frá Hjallakirkju í Kópavogi, föstu-
daginn 16. apríl kl. 13.00.
Hildur Kristinsdóttir
Guðríður Gunnarsdóttir Björn Ólafsson
Gunnar Már Gíslason
Gabríel Már Gunnarsson.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Brynhildur Pálsdóttir,
Sléttuvegi 11, áður Safamýri 21,
sem lést þann 8. apríl á líknardeild Landakotsspítala,
verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 14. apríl
kl. 11. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á líknarfélög.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigríður, Ragnhildur og Brynhildur Benediktsdætur.